Heima er bezt - 01.12.1963, Blaðsíða 15
hann staðnæmdist örlitla stund til að grípa egg. Víða
hagaði þannig til að sigmaðurinn gat fikrað sig áfram
stað úr stað án þess að þurfa að kasta sér frá berginu
í kaðlinúm. Við sáum manninn grípa hvert eggið af
öðru og stinga í poka sinn, sem var bundinn á bak hon-
um. Eitthvað hafði farið forgörðum af eggjunum, því
við sáum leka í stríðum straumum úr pokanum. Samt
var þetta góð ferð hjá honum, því seinna — þegar við
komum upp á bjargbrúnina — fréttum við að hann hafi
komið upp með 342 egg heil i þessari einu ferð. Það er
með því mesta sem gerist.
FLEKAVEIÐAR.
Nú erum við að komast upp undir eyna og áður en
varir siglum við framhjá einhverjum fjölum á sjónum,
er voru alsetnar fugli. í fyrstunni datt mér ekkert illt
í hug, og það var ekki fyrr en einn bátsverja hrópaði:
„Sjáið þið flekaveiðarnar!" að upp fyrir mér rann ljós,
ný ömurleg staðreynd, sem ég hafði skoðað sem óraun-
verulega sögulega heimild aftan úr miðaldagrárri forn-
eskju, en væri löngu úr sögunni, gleymt og grafið og
það væri gjörsamlega útilokað og óhugsandi að fyrir-
Drangey er öll þverhnípt og viðast hvar samfellt hengiflug í
sjó niður. Sd sem missir fótanna og hrapar á enga lífsvon. I
baksýn er Kerlingin.
Kerlingin.
bæri sem þetta þekktist í nútíma þjóðfélagi. Ég hafði
lesið um flekaveiðar við Drangey í Lærdómslistafélags-
ritunum á seinni hluta 18. aldar og þá voru þær í raun-
inni sjálfsagðar. Ríkti hungur í landinu og önnur vopn
eða aðrar veiðiaðferðir voru ekki tiltækilegar. Drangey
var í þá daga forðabúr Skagfirðinga og fuglinn og egg-
in úr henni komust á nær hvert einasta býli í héraðinu.
Það hefur vafalaust bjargað lífi fjölda fólks fyrr og
síðar. Viðhorfin í dag eru önnur. Hver sem nennir að
rétta út hendina hefur gnægð matfanga og miðalda
veiðiaðferðir og dýrapyndingar eru ekki lengur rétt-
lætanlegar.
ÓMANNÚÐLEGAR PYNDINGAR.
Þarna sáum við fuglinn berjast um á flekanum, vit-
stola af hræðslu og þrá eftir frelsi, þar til allur máttur
var þrotinn þá kúrði hann sig niður og hreyfði sig ekki
þótt báturinn kæmi alveg upp að flekanum.
Flekaveiðar eru mér vitanlega hvergi stundaðar nerna
við Drangey. I aðaldráttum eru þær þannig, að þrem
flekum er fest saman, hver þeirra um metri á lengd og
hálfur metri á breidd. Þeir eru tengdir saman með þunn-
um fjölum. Boruð eru göt á flekana og í gegnum þessi
göt er þrætt snæri. Þegar fuglinn sezt á flekana og
gengur eftir þeim dregst snærið til og snarast að fót-
Heima er bezt 419