Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1963, Qupperneq 19

Heima er bezt - 01.12.1963, Qupperneq 19
EIRIKUR SIGURÐSSON: Siguröur Póréarson frá Flatey á Mýrum (Niðurlag.) BÚSKAPUR OG EFRI ÁR Vorið 1897 fluttu foreldrar mínir að Reyðará í Lóni, en það var eignarjörð Eiríks í Hlíð. Byggðu þau íbúð- arhús um sumarið og bjuggu sig undir framtíðarbú- skap. Með þeim var Solveig, ein af dætrum Eiríks og ólst hún upp hjá þeim upp frá því. En dvölin á Reyð- ará varð styttri en þau höfðu ætlað. Þetta sama vor fiuttu þau Eiríkur og Sigríður með allt sitt fólk til Papeyjar. Hafði Eiríkur keypt eyjuna af Lárusi Guðmundssyni hinum ríka um vorið. Þessi undarlega ráðbreytni kom af því, að Eiríki var ráðlagt af læknum að flytja að sjó af heilsufarsástæð- um. Gekk hann með nýrnaveiki og var þetta eins konar örþrifaráð. En í Papey leit Eiríkur aldrei glaðan dag og fór heilsu hans stöðugt hrakandi. Vegna þessa heilsuleysis fór hann þess á leit við föð- ur minn, að hann flytti einnig til Papeyjar til að taka við ráðsmannsstarfi á heimilinu. Voru þó margir full- orðnir karlmenn þar í heimili. En honum trúði hann bezt fyrir forsjá heimilisins. Þessu gátu foreldrar mínir ekki neitað, þótt þau sæju bæði eftir að fara frá Reyð- ará. Vorið 1897 fluttu þau svo til Papeyjar og var þar með lokið búskap þeirra á Reyðará. Bjargræði var margs konar í Papey og mildð starfs- svið, sjósókn var þar talsverð og stutt að róa. Eggja- og dúntekja á vorin og fuglaveiði í björgunum á sumr- in. En þar var afskekkt og sjóleiðin til lands ekki hættu- laus meðal annars vegna strauma í sundunum. Faðir minn hóf bjargsig þetta sumar, þótt hann væri því gersamlega óvanur. Hann var kjarkgóður og gekk þetta vel. En það sagði móðir mín mér, að oft hafði hún verið hrædd um hann í björgunum, einkum eftir það, að eitt sinn þegar hann kom upp á bjargið, var hann allur blóðugur á höfðinu. Hafði þá losnað ein- hver steinarða úr bjargbrúninni og komið við höfuð- ið á honum. En dvöl foreldra minna varð ekki löng í Papey. Heilsu Eiríks hnignaði stöðugt og var hann mest rúm- fastur um veturinn og lézt 15. maí 1899 aðeins 49 ára að aldri. Hann var jarðsettur þar í kirkjugarðinum við litlu kirkjuna. Löngu síðar, þegar Sigríður kona hans dó, var hún jarðsett við hlið hans. En Hlíðarfólkið undi ekki í Papey. Það seldi Pap- eyna rúmu ári eftir, vorið 1900, eftir þriggja ára dvöl þar, Gísla Þorvarðssyni, sem síðar bjó þar lengi. Foreldrar mínir fluttu þá að Hamarsseli í Hamarsdal og hófu þar búskap. Sumt af yngri börnum Sigríðar fylgdi þeim, en sjálf flutti hún að Reyðará með hin börnin en var þar stutt. Síðar kom hún einnig í Ham- arssel og var þar um tíma. Hamarsselið, sem er þriggja stundarfjórðunga gang- ur frá Hamri er góð sauðjörð, en heyskapur fremur lítill. Aðalengið var úti í svokölluðu Landi, en það er mest mýrlendi. Þá var einnig heyjað út á Selhjalla og uppi í Fellum. Túnið var lítið og þýft. Ekld byrjaði búskapurinn vel í Hamarsseli. Um vor- ið þegar faðir minn var að flytja búslóð Sigríðar Bjama- dóttur á báti suður að Starmýri í Álftafirði, vildi það slys til að skot hljóp úr byssu og lenti það í brjósti föður míns. Lá hann lengi í skotsárinu á Borg í Djúpa- vogi og hjúkraði móðir mín honum fyrst. En síðar um vorið, er hann kom að Hamarsseli og fór að sinna vor- verkum, þoldi hann ekki viðbrigðin, lagðist í lungna- bólgu og lá lengi sumars. Ekki verður hér skýrt neitt að ráði frá búskapnum í Hamarsseli. Þar var margt fólk í heimili, fjör og glaðværð. Fráfærur voru á sumrin og ærnar hafðar úti á Selhjalla eða uppi í Fellum. Silungsveiði var þar á haustin. En göngur voru þar erfiðar og hefur mér ver- ið tjáð, að fé föður míns hafi verið þar sérstaklega erf- itt í gæzlu. Kom það af því, að því var haldið mikið til beitar, en lítið hænt að húsum. Síðar hafa bændur í Hamarsseli þurft að hafa mun minna fyrir fé sínu, en þurfa um leið að ætla því meiri hey. Þegar foreídrar mínir höfðu verið sjö ár í hjóna- bandi, gerðist sá viðburður, að þeim fæddist sonur þann 16. október 1903. Þessi snáði var Eiríkur sá, er þetta ritar. Og þó að Margrét móðir föður míns væri þá orðin öldruð, varð það nú hennar hlutskipti að líta mikið eftir barninu. í Hamarsseli fæddist einnig Guð- björg systir mín þann 1. janúar 1907. Voru þá komin óskabörnin í heimilið. Faðir minn átti góða hesta í Hamarsseli, en þó bar einn af. Það var dökkrauður hestur, sem hét Dreyri. Heima er bezt 423

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.