Heima er bezt - 01.12.1963, Blaðsíða 25

Heima er bezt - 01.12.1963, Blaðsíða 25
Skáldsaga eftír Magneu frá Kleifum HOLD OG HJARTA ÞRETTANDI HLUTI Ég játaði því bara. Það átti víst ekki við, að ég færi að gera neins konar uppistand. Fremsti bíllinn stóð kyrr og hleypti hinum fram fyrir. „Hvað ætla þeir að gera?“ spurði ég. „Ná í Ingimar. Hann hefur varla komizt langt á tveimur jafnfljótum,“ svaraði Brói. Anna horfði stórum augum á okkur Bróa, þegar við komum inn. Ég skildi fyrst ekki fátið, sem kom á gömlu konuna, því hún var ekki vön að verða uppnæm fyrir smámunum, en þegar ég sá í speglinum, hvílíkt heljar glóðarauga ég hafði fengið, skildi ég hana, — ég var ekkert frýnileg útlits. Brói talaði eitthvað við Onnu í hálfum hljóðum og fór síðan út. „Er nú allt orðið gott hjá ykkur aftur?“ spurði gamla konan, þegar við vorum orðnar tvær einar. „Ég veit það ekki,“ svaraði ég, „það veltur allt á Birni.“ Þá brosti Anna hughreystandi og fór óvenju léttstíg fram í eldhúsið. Hún spurði ekki eftir Hans, og ég kom mér ekki að því að segja henni neitt að fyrrabragði. Hún hefur líklega séð, að ég var of niðurdregin til að geta svarað spurningum. Litli Hans-sonurinn brosti til mín, þegar ég heilsaði honum, ég held að hann hafi þekkt mig. Björn kom heim nokkru seinna. Hann sagði, að Hans yrði fluttur suður strax daginn eftir, ef veður yrði svo gott, að sjúkravélin gæti sótt hann. „Hann er miklu veikari en ég hélt. Ég hefði sent hann með vélinni í dag, hefði mig grunað, að hann væri svona illa farinn.“ „Er þá engin von?“ Björn hristi höfuðið áhyggjufullur á svip. „Hvemig vissir þú, að Hans væri veikur?“ spurði ég. Björn leit á mig undrandi, en svo var eins og hann áttaði sig og sagði, að hann hefði lengi verið að reyna að fá Hans lausan til að koma honum á hæli, en Hans vildi bara heldur vera laus og strauk strax af hælinu, og þá var honum stungið inn á Litla-Hraun aftur. „En Ingimar?“ „Hann fær áreiðanlega að dúsa inni nokkur ár. Ég get varla vorkennt honum, maður í hans stöðu að haga sér þannig! Það er ófyrirgefanlegt!“ „Þér er annt um heiður stéttarinnar?“ gat ég ekki stillt mig um að segja. „Já,“ svaraði hann alvarlegur. „Mér er annt um þá stétt, sem ég hefi valið mér að starfa með. Það er ekki neinn leikur að gerast læknir, og þeir sem velja starfið aðeins vegna launanna, eða hvíta sloppsins, ættu að vera útilokaðir frá öllum almennilegum lækningum.“ Ég spurði Björn, hvort ég mætti ekki fara með barn- ið til Hans, svo hann fengi að sjá son sinn. Björn brosti ofurlítið og sagði, að ég hefði víst ætl- að að segja son sinn. Ég roðnaði, en sagði ekki neitt. Björn þurfti að minna mig á þetta, en nú vissi hann, að ég hafði skipt um skoð- un. Hann tók við stráknum og bar hann út í bílinn. Ekkert orð var sagt á leiðinni. Loftið á milli okkar var rafmagnað, og þögnin þrungin spennu. Bráðum yrði þessu ástandi að ljúka, ég þoldi það ekki lengur. Hvers vegna var Björn svona í kvöld? hví sagði hann ekki annað hvort af eða á, hvort hann ætlaði að fyrirgefa mér einu sinni enn og taka mig í sátt? Hans lá og sneri sér til veggjar. Hann fussaði bara, þegar ég sagði honum, að hér væri ég komin með son hans, sem ætlaði að heilsa upp á föður sinn, en þó sneri hann sér aftur til okkar. Andlit hans var nærri eins hvítt og koddinn, sem hann lá á, og augun virtust langt inn í höfðinu. Hann horfði dálítið vandræðalegur á bamið, strauk svo hár þess með einum fingri, laust og varlega. „Halló, karlinn! Jæja, svona lítur þú þá út!“ sagði hann lágt. Hann vissi auðsjáanlega ekki, hvað hann ætti að segja. Síðan sneri hann höfðinu til veggjar. „Svona, nú er ég þá búinn að leika hlutverk hins ást- Heima er bezt 429

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.