Heima er bezt - 01.12.1963, Side 34
ROLLS RAPID DE LUXE er sérstaklega vönduð
þvottavél, sem framleidd er hjá Rolls Electromatic Or-
ganisation í Englandi, einni af stærstu verksmiðjum
sinnar tegundar þar um slóðir. Hjá verksmiðjunni vinna
á annað þúsund manns (verkfræðingar, iðnverkamenn,
sölumenn o. s. frv) sem framleiða um 3000 þvottavélar
á viku.
Á síðustu árum hafa selzt hundruð þúsunda af ROLLS
þvottavélinni, en það ætti í sjálfu sér að vera trygging
fyrir gæðunum.
2. hluti verðlaunagetraunarinnar um
ROLLS RAPID DE LUXE
ÞVOTTAVÉL MEÐ INNBYGGÐRI
„CENTRIMATIC44 ÞYRILÞURRKU
Og hér kemur svo önnur þrautin, sem þið eigið að
glíma við og reyna að leysa, til að geta tekið þátt í
verðlaunagetrauninni um þessa glæsilegu þvottavél.
2. ÞRAUT.
Við skulnm hugsa okkur, að lítill hnokki kæmi heim úr
skólanmn mtna rétt fyrir jólin, og segði: „Mamrna! Ég
fékk stóra mynd af jólatré í skólanum í dag, og kenn-
arinn sagði mér að lita tréð grænt með vatnslitwmm
m'mum. En ég á ekki nema fjóra liti, gulan, rauðan, blá-
an og svartan. Hvernig fer ég þá að því að mála tréð
grænt?a
Hverju mundir þú svara, lesandi góður? Hvernig er
hægt að leysa vanda barnsins, án þess að kaupa nýja
liti?
AUKAVERÐLAUN
Sá sem fær ROLLS RAPIDE DE LUXE þvottavélina í verðlaun fær einnig sem auka-
verðlaun ca. eins árs birgðir af þvottadufti handa meðalstórri fjölskyldu, það er að segja
70 PAKKA AF PERLU ÞVOTTADUFTI
bezt í þvottavélina
Þegar þér hafið einu sinni þvegið með PERLU komizt þér að raun um, hve þvotturinn
getur orðið hvítur og hreinn. PERLA hefur sérstakan eiginleika, sem gerir þvottinn mjall-
hvítan og gefur honum nýjan, skýnandi biæ sem hvergi á sinn líka. PERLA er mjög nota-
drjúg. PERLA fer sérstaklega vei með þvottinn og PERLA léttir yður störfin. Kaupið
PERLTJ í dag og gleymið ekki, að með PERLU fáið þér hvítari þvott, með minna erfiði.
ÞVOTTADUFTIÐ PERLA ER FRAMLEITT AF EFNAVERKSMIÐJUNNI SJÖFN Á AKUREYRI
438 Heima er bezt