Heima er bezt - 01.02.1978, Page 15
Halldór Stefánsson, Hlöðum.
Ljósm.: E. H. Arnórsson, Akureyri.
engi, og kostaði þá 30 krónur. Var það hið eina, sem
Hlaðir áttu sunnan Tréstaðalækjar. Ekki veit ég nú (1977),
hvemig frá þessum merkjum hefir verið gengið, en svona
voru þau öll mín æskuár.
Þá er að greina frá örnefnum og landslagi. Best er að
hefja þá lýsingu á túninu. Það skiptist í Gamlatún og
Nýjatún. Um mestan hluta gamla túnsins var vallargarð-
ur, sumt af honum var gamalt, en meiri hluta hans hafði
Stefán gert á fyrri búskaparárum sínum. En upp úr alda-
mótunum hófst hann handa um mikinn túnauka, og varð
þá Nýjatúnið til, þá var allt túnið girt með garði, nema
nokkur hluti að norðvestanverðu með gaddavír.
Gamlatúnið skiptist í tvennt af alldjúpri vatnsgrafinni
dæld, heitir syðrihluti hennar, sem er grynnri og breiðari
Leyningur en hinn nyðri Gil, eftir því rennur bæjar-
lækurinn, vatnslítil seyra, sem kemur upp í norðanverðum
Leyningnum. Bærinn stendur þar sem hæst ber á austur-
bakkanum við mót Leynings og Gils. Fram af hlaðvarp-
anum er hólbunga, Öskuhóll, og framan í honum snar-
brattur bakki niður í iækinn, Öskubakki, þangað var
kastað allri ösku og bæjarsorpi. Hefir vafalaust verið gert
svo frá öndverðu. Mjög mikið var grafið framan úr
Öskubakkanum af gamalli ösku og flutt i flög, en ekki sá
högg á vatni.
Vestan að dældinni heitir Vesturvöllur, nyrsti og mjósti
hluti hans heitir Skott, og nær það suður á móts við
bæinn. Syðst á því var gamall kartöflu- eða kálgarður,
löngu vallgróinn, en vel mótaði fyrir garðlaginu. (Mig
minnir að hann væri eldri en tíð Stefáns á Hlöðum).
Skammt þar fyrir sunnan voru vallgrónar tóttir, sem
Sauðhús hétu. Voru þau lögð niður fyrir miðja s.l. öld.
Dálítil spilda vestur af þeim í túnjaðrinum hét Horngrýti,
var það mjög illslægt vegna sands í rót, er sifellt fauk
þangað úr melunum fyrir vestan. Nafn þetta lagðist mjög
niður eftir að heimilisgrafreitur var settur þar niður syðst.
Var honum valinn staður þar, því að hvergi er fegurra
stæði á túninu öllu. Þar suður frá og síðan austur með
túngarði allt að Leyningi eru Vesturhúsasléttur og í fram-
haldi þeirra Leyningssléttur austur að gamla vallargarði.
Sléttur þessar voru allar nýrækt gerðar um aldamótin. í
bugnum, sem á sléttunum verður stóðu fjárhús, Vestur-
hús, en tóttarbrot Miðhús austur undir Leyningi. Af þeim
stóðu enn veggjarbrot, og voru þau notuð fram undir
aldamót. Vesturvöllurinn var sléttur að mestu, en þó
naumast véltækur, nema smáblettir, og þúfnastykki var
meðfram Leyningi og Gili.
Suður frá bæ og heimreiðargötum, austan Leynings
heitir Austurvöllur, sléttur að kalla. Austurhús voru fjár-
hús sunnarlega á honum. Austan að Austurvelli var
vallargarður mikill og fom, var hann grjóthlaðinn á þeirri
hlið, er frá túninu vissi, hafði sýnilega oft verið hlaðið
innan á hann, hann „gildaður upp“, sem kallað var. Þegar
tekið var til um ræktun Nýjatúns var hann jafnaður við
jörðu, heita þar síðan Garðssléttur. Á austurbakka Leyn-
ings, suður frá bæ heitir Rani. Yfir Leyninginn var gerður
vegur nokkru sunnar en bærinn, var hann einkum notað-
ur til að aka heim heyi.
Norðan bæjar og heimreiðar heitir Útvöllur. Norðan
við Öskuhólinn og bæinn var slétt brekka, var hún einn
grösugasti bletturinn í túninu, en á gilbarminum niður frá
henni heitir Beinrófa, hún var slétt að mestu, en annars
var Útvöllurinn austan við hana nær allur kargaþýfður,
gekk hann neðst yfir í mýrarsund. í brekkunni niður með
gilkjaftinum og framan í melnum norður frá honum, voru
kartöflugarðar, en gamall garður, löngu gróinn, austan
við þá, hallaði honum að þúfnastykkinu. Norðaustur frá
bænum er hólarani, Fjóshólar, en austan við þá og lengra
suður annar Leyningur. Út með honum gekk annar hól-
rani samhliða Fjóshólum en lægri, heitir hann Járnhóll,
þótti hann harðslægur, milli hólanna er Járnhólslaut.
Austan við Jámhól en sunnan Leynings er Hesthúshóll, og
Hesthúslaut á milli þeirra, markaði fyrir tótt hins gamla
hesthúss uppi á hólnum, en austan í honum stóðu Lamb-
hús, og sunnan undir þeim gömul fjárrétt að heimreiðinni.
Sunnan við hana voru Hesthús og Skúrhús, sambyggt
þeim, en syðst í þeirri samstæðu verkfærageymsla.
Nýjatún liggur norðan og austan að Útvelli og Austur-
velli. Nyrst og vestast heitir Kinn andspænis Útvelli.
Hallar henni til suðvesturs. Uppi á brekkubrúninni lágu
Lónsgötur. Þar fyrir fyrir austan hét einu nafni Löngu-
sléttur suður að heimreiðargötum, þó var þar syðst
Heima er bezt 5 1