Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1985, Síða 2

Heima er bezt - 01.04.1985, Síða 2
„ . . . er sá grunur um of áleitinn, að lestr- arkunnáttu þjóðarinnar sé ábótavant og skriftinni ekki síður . . .“ Lesa og skrifa list er góð Lesa og skrifa Iist er góð læri það sem flestir. Þeir eru haldnir heims hjá þjóð höfðingjarnir mestir. Svo var kveðið í gamla daga, þcgar skólanám ílestra Islendinga náði ekki lengra en ti! að fá vald á þessum tveim- ur náskyldu greinum og cf til vill frum- atriði reiknings. Og ekki var menntun- in meiri hjá öðrum þjóðum, því að kunnugt er að lestrarkunnátta íslend- inga varð snemma furðu almenn, og vér hljótum einnig að dást að hand- bragði margra skrifara á liðnum tíma. \'ísan, sem hér var liöfð að upphafs- orðum, sýnir hug manna og gildismat á þessum tveimur undirstöðugreinum allra mennta. En höfum vér gengið til góðs í þess- um efnum með öllu voru margbrotna skólakerfi? Það væri fásinna og flónska að draga slíkt í efa, en allt um að lestur og önnur kunnátta sé margfalt meiri en hún var, þegar engir voru skólarnir, og heimilin urðu að annast lestrar- kennsluna, er sá grunur um of áleitinn að lestrarkunnáttu þjóðarinnar sé ábótavant og skriftinni ekki síður, þeg- ar vér lítum á, hversu miklu fé og fyrir- höfn er til þessa varið. Um skriftina má það raunar segja að ef til vill verður það fyrr en varir úrelt að halda á penna, vélarnar koma í hans stað. En um lesturinn getum vérvarla ímyndað oss að kunnátta í honum verði óþörf, þótt enginn kunni að sjá fyrir hvað kann að gerast á vorri tölvu- og tækni- öld. En snúum oss að því sem er, en ekki óljósum framtíðarhugmyndum. Mér og íleirum þykir sem mörg teikn séu á lofti er bendi til að lestrar- kunnáttan sé ekki eins góðog vera ætti. Vér heyrum ofoft lesið rangt og stirð- legar en ætla mætti eftir þann skóla- gang, sem öllum unglingum er skylda og hefir verið lengi. Og sú umræða, sem verið heíir undanfarið um fram- burö tungunnar þykir mér benda til þess, að ef til vill megi rekja það sem þar fer miður til ónógrar lestrarkunn- áttu og leikni. Vel má vera að það stafi afónógu viðhaldi lestrarkunnáttunnar eftir að skyldunáminu lýkur, en hitt leitar þó meira á hugann, að frum- kunnáttunni sé eitthvað ábótavant. En það er ekki einungis hér, sem þetta er mönnum áhyggjuefni. Utan úr löndum heyrum vér hinar sömu umkvartanir, háværari ogstuddarenn sterkari rökum en vér gerum oss grein fyrir. Fyrir nokkrum mánuðum las ég bók um sögu enskrar tungu heima og erlendis, eftir amerískan fræðimann og kennara. - Það má skjóta því inn að bókin var bæði bráðskemmtileg og full af nýstárlegum fróðleik. - En þegar höfundur ræðir þróun tungunnar í Ameríku, kemst hann að þeirri niður- stöðu, að verulegur hluti þjóðarinnar sé ólæs, mig minnir hann tali um þriðj- ung eða ef til vill var það helmingur, og þessu er svona farið í einu af fremstu menningarríkjum heimsins, þar sem fullkomnir skólar eru á hverju strái, og alltaf verið að kanna og rannsaka kennslu og skóla, sálfræði og félagsvís- indi. Nú og ekki alls fyrir löngu lásum vér þá frétt í blöðum, að menntamála- ráðherra Frakklands hafi komist að þeirri niðurstöðu að mjög sé þcssum hlutum ábótavant þar í landi, og gera þurfi átak í grunnskólum landsins til þess aö þar verði börnunum kennt rækilega að lesa, skrifa og reikna. Báðir þessir framámenn, ameríski fræðimaðurinn og stjórnmálamaður- inn franski, komast að ekki ósvipuðum niðurstöðum um orsakir þessa vanda- máls. Ameríkumaðurinn kennirólæsið nýjum kennsluaðferðum og verður þar einkum starsýnt á hljóðlesturinn, en Frakkinn, að mér skilst af blaðafrétt- unum, öllu hinu nýja skólakerfi. Ekki skal ég dæma um hversu þessir menn eru réttdæmir, en svo mikið er víst, að ekki er unnt að skella með öllu skollaeyrunum við því, er vér heyrum þessar raddir frá menningarþjóðum úti í heimi, og vér vitum, að þeir eru ekki einir á báti um skoðanir sínar. Vér höfum gert byltingu á öllu skólakerfi voru á síðustu áratugum. Margt í því var staðnað, svo að breyt- inga var þörf í síbreytilegu þjóðfélagi, en vér sóttum fyrirmyndir vorar til annarra þjóða, sem orðið höfðu á und- an oss með breytingarnar, og margt var þar svo nýtt af nálinni, að engin reynsla var fengin af hversu þær myndu reynast. Margt var þar stofu- lærdómur en ekki af lífinu sjálfu. En segja dæmi þau, er ég hefi tilfært ekki eitthvað í þá átt, að reynslan af nýj- ungunum hafi ekki verið svo góð sem skyldi? Ekki veit ég um hver umræða hefir orðið um þessi mál í Ameríku, en hitt er fullkunnugt, að franski mennta- málaráðherrann hefir fengið margt óþvegið orð í eyra fyrir ummæli sín og atgerðir í skólamálunum. En vér get- um samt ekki látið eins og ekkert sé. Mjög eru nú háværar raddir meðal vor um það, hvílík lífsnauðsyn menntun og lærdómur sé. Slíkt virðist nú jafnmikil sannfæring manna og það var áður fyrr, ,,að bókvitið yrði ekki látið í askana“. Sú hugarfarsbreyting er af hinu góða og vonandi að full al- vara sé að baki orðanna. Eg tek heils hugar undir þær raddir, sem halda því fram, að framtíð vor og frelsi hvíli á 114 Heimuerbezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.