Heima er bezt - 01.04.1985, Side 3
Æ
Forsíðan:
Guðrún Egilsdóttir er blómakona og myndlistar,
en móðir hennar Svanhildur gerði lampann í horn-
inu.
Fagurt er að líta heim að Holtsseli. Nýja íbúðar-
húsið er hægra megin á myndinni, en í baksýn
hæsta fjall við byggð á Norðurlandi, Kerling.
Steindór Steindórsson frá Hlöðum Lesa og skrifa list er góð Forystugrein 114 Gunnar Guðmundsson frá Hofi Kúfiskurinn Lýsing á gömlum veiðiaðferðum 137
Ólafur H. Torfason Það er hvergi hægt að búa ef ekki hér Viðtal við Guðrúnu Egilsdóttur, Holtsseli 116 ÁgústaB.Thors Móðir mín, Henriette Louise Svendsen Minningar 138
Hólmsteinn Helgason Skólaferð árið 1916 II. hluti ferðasögu 122 Hendingar Leiðrétting við vísu Heiðreks Guðmundssonar 142
Steindór Guðmundsson frá Stóra-Hofi Sauðaleitir Gnúpverja Minningar um horfna atvinnuhætti 126 Jón Kr. Guðmundsson Álög eða óhöpp? Þáttur um atvik í A-Barðastrandarsýslu 143
Óskar Þórðarson frá Haga Óvænt gestakoma Minning úr Skorradal 128 Rafnjónsson Perlurí mold 5. hluti framhaldssögunnar 144
Stefán Ágúst Séð um vesturgluggann Ljóð 129 Steindór Steindórsson frá Hlöðum Bókahillan Umsagnir um 7 bækur 149
Oddur Sigurðsson Mývatnssveit Landkynning Heima er bezt 2 130 Áratugir ævinnar Þula 151
Helgi Hallgrímsson Enn um álfa á Akureyri VI. þjóðtrúarþáttur höfundar 135 Ólafur H. Torfason Heimilisfangið er Blönduós Sagt frá Húnfjörðhjónunum og garði þeirra 152
sem bestri og fullkomnastri menntun
og vil ég þá undirstrika sameinuðu
bókviti og verksviti. Það tvennt má
ekki skiljast að og ganga sína götuna
hvort. En þegar allir eða a.m.k. flestir
eru á einu máli um gildi og nauðsyn
menntunar, er enn meira knýjandi að
skóla- og menntakerfið fullnægi þeim
kröfum, sem til þess eru gerðar. Og ég
efast ekki um, að þeir sem staðið hafa
að uppbyggingu hins nýja skólakerfis,
hafi gert það af góðum hug og í því
skyni að menntun þjóðarinnar mætti
verða sem best. En ef það er rétt, sem
hér hefir verið bent á, að undirstöðu-
greinin, lesturinn sjálfur, sé ekki í fullu
lagi hljótum vér að spyrja: Höfum vér
ekki flýtt oss um of, gleymt sjálfri und-
irstöðunni fyrir ljómanum af háreistri
byggingu kerfisins? Agi er nauðsyn í
öllu námi ef vel á að fara. Lestrarnám
krefst mikils aga, það munum vér best
sem gömul erum og byrjað var að
kenna oss að þekkja stafrna. Agi virðist
vera hálfgert bannorð í reglum og við-
horfum hins nýja skóla. Kynni ekki svo
að vera, að þar lægi dýpsta rótin að því
að grundvöllurinn sé veikur? Eitt er
víst, hér þarf að vera vel á verði og taka
þarf öll þessi atriði til náinnar athug-
unar, minnugir orða Eysteins Lilju-
höfundar ,,að varðar mest til allra
orða, að undirstaðan sé réttlig
fundin“. Og lesturinn er undirstaðan.
Heima er bezt 115