Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1985, Qupperneq 7

Heima er bezt - 01.04.1985, Qupperneq 7
áhuga fyrir trjárækt, og pabbi tók fullan þátt í því. Elstu trén eru um það bil jafn gömul mér. Því miður er ég hrædd um að það verði ekki jafn auðvelt að rækta trjálund hér á nýja bæjarstæðinu, því vegna þess hve héðan er víðsýnt gefur líka auga leið að meira gustar um. - Grund í Eyjafirði er sögufrægur staður og hér alveg í grenndinni, lifðirðu þig sérstaklega inn í atburði sem hafa gerst þar? - Grundar-Helga og Helguhóllinn eru fastir punktar í tilverunni hérna, ekki síst kannski vegna þess að kringum hólinn hefur verið plantað trjám, en þar átti Helga að vera heygð. Væri hóllinn rofinn átti kirkjan á Grund að brenna. Annars held ég að mér hafi þótt merkilegast að ímynda mér Jón skráveifu, fylgdarmann Smiðs Andréssonar í kam- arauganu. Svo gerðist náttúrlega Víga-Glúms saga hér í sveit að nokkru leyti. Hólminn Vitaðsgjafi er til dæmis núna í landi Espihóls, kjarri vaxinn. - Hefur það sérstök áhrif á ykkur að búa við rætur hæsta fjalls við byggð á Norðurlandi, Kerlingarinnar sjálfrar? - Hún ertalsverðurþátturítilverunni, aðalstoltiðokkar kannski. Eg klifraði fyrst þangað upp þegar ég var tíu ára, ásamt þýskum manni sem dvaldist á Grund. Mamma hafði verið fengin til að leiðbeina honum upp, og ég flaut með. En erfitt fannst mér það, þótt ekki geti nú talist beinlínis hættulegt að klífa þetta fjall, enda mikið stundað. Bæði er hægt að fara úr Glerárdal og sunnan eða norðan að, og kannski erfiðast að fara beint hér upp af. Stefáni Stef- ánssyni skólameistara á Akureyri þótti einu sinni skólapilt- ar hafa verið grunsamlega lljótir að klífa Kerlingu, og sagði, að þeir hefðu ekki farið nema á Jómfrúna, og hefur það nafn síðan fest við strýtuna sem blasir við hér austan í fjallinu. Sumir halda meira að segja, að hún sé Kerlingin sjálf. En þótt Jómfrúin sé talsvert lægri en Kerlingin, er erf- itt að komast upp á hana vegna lausagrjóts. Til dæmis sagði einn þeirra pilta sem á undanförnum árum hefur klifið Hraundranga í Öxnadal, að Jómfrúin væri erfið viðureign- ar. - Hvar finnst þér fallegt annars staðar á landinu en hér? - Mér finnst yfirleitt fallegt alls staðar á landinu, nema helst austur á Sléttu. Ég gæti áeint hugsað mér að búa þar. Mér finnst miklu vinalegra á Ströndunum, í eyðifjörðunum þar, þar sem ekkert undirlendi er og hrjóstrugt ef það finnst. Ég vildi miklu fremur eiga heima þar. - Nú ert þú deildarstjóri í Hrafnagilsdeild KEA, hvað felur það í sér? - Ég er eins konar tengiliður milli Kaupfélagsins og bændanna í hreppnum, held einn fund á ári, undirbúnings- fund fyrir aðalfund Kaupfélagsins að vori, safna sláturlof- orðum og læt jafna niður sláturdögum að haustinu. Svo er ýmislegt sem til fellur, en annars er þetta fremur veigalítið embætti. - Eru allir hér félagsmenn í Kaupfélagi Eyfirðinga, án tillits til stjórnmálaskoðana eða annarrar skiptingar? Guðmundur Jón Guð- mundsson, sambýlismaður Guðrúnar, fæddist á Sigmund- arstöðum í Hálsasveit, Borgar- firði, en fluttist þaðan kornung- ur. Hann ólst upp í Reykjavík og Hafnarfirði, en var í sveit á sumrum, í Þykkvabæ og Vopnafirði. Þar var hann hjá föðursystur sinni, Sigríði Vig- fúsdóttur á Ljótsstöðum, og manni hennar Jóhanni Sigurðs- syni, sem er fæddur þar, en þekktasti sonur Ljótsstaða er eflaust Gunnar Gunnarsson skáld. Árið 1972 kom Guð- mundur sem kaupamaður að Rifkelsstöðum í Eyjafirði og fór þaðan á bændaskólann á Hvanneyri. Þaðan lá leiðin á Brún í Reykjadal, S-Þing., en eftir eins árs dvöl þar kom Guð- mundur til þeirrar dvalar í Eyja- firði sem hefur staðiðsíðan. Mjaltabásinn er niðurgrafinn, þannig að enginn þarf að bogra eða flytja mjaltavélar. Kýrnar eru leystar af básunum í röðum og koma sjálfar að maula heyköggla sem þeim eru skammtaðir í skálar, meðan mjaltir fara fram. 4 kýr standa hvorum megin við mjaltabásinn. Guðrún segir að enn einn kostur þessa fyrirkomulags sé sá, að beiðsli kúnna leyna sér ekki (enda standa 4 naut í grennd). Burður kálfa dreifist alveg jafnt yfir árið í Holtsseli. Starfið við mjaltirnar er mun auðveldara. Ef rafmagnið bregst (sem gerist örsjaldan nú orðið), hafa þau búnað til að tengja við drifskaft dráttarvélar ístaðinn. Heimaerbezt 119

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.