Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1985, Page 8

Heima er bezt - 01.04.1985, Page 8
- Já, hér eiga allir sín viðskipti við Kaupfélagið og eru þarí reikningi. - Erannaðútilokað? - Það held ég. Annars hef ég aldrei hugsað svo langt! Mjólkursamlag KEA tekur við mjólkinni og svipað er með allar aðrar afurðir bænda hér. - Hver er efnahagsleg staða bænda hér í sveitinni, að þínumati? - Miðað við ástandið annars staðar á landinu býst ég við að staðan sé nokkuð góð hér. Annars fer þetta að miklu leyti eftir því hvernig menn fóru út úr kvótaskiptingunni. Við vorum stálheppin hér í Holtsseli, að því leyti að við vorum búin að byggja og stækka, svo við fengum nógu stór- an kvóta. Þeir sem eru með lítið eru eiginlega dæmdir til að berjast í bökkum. Ég tel að meðalbúið sé alltof lítið, það getur enginn lifað almennilega af því. Og lánin okkar nán- ast hurfu í verðbólgunni, því við sluppum rétt áður en farið varð að verðbindaþau. Svo viðgetum kallast heppin. - Hvað finnst þér um opinbera landbúnaðarumræðu núna? - Það eru til menn í landbúnaði sem ekki ættu að vera þar og koma illu orði á alla stéttina. En umræðan er samt alltof neikvæð. Við íslendingar getum státað af því að vera með bestu búvöruframleiðsluna miðað við flest öll ná- grannalönd okkar, meira að segja Danir viðurkenna að við séum ekki síðri en þeir í mjólkurafurðum, og þekkja þeir þó mjólk eins og best gerist. Ég held það mundi mörgum neytendum bregða við, ef það ætti til dæmis að fara að flytja mjólkurvörur inn. Forkælirinn, sem slöngurnar tengjast í hægra megin á veggnum, snöggkœlir mjólkina úr mjaltakerfinu niður í um 6°. í forkœlinum rennur mjólkin hratt í gegnum fjölda margar þynnur, en kalt vatn í þynnum allt um kring. Stúlk- an er að furða sig á volgu afrennslinu Úr forkælinum. - Hvernig má bæta upplýsingastreymið til borgarbú- ans um það sem í raun er gert í sveitinni? - Til þess að eyða þekkingarleysinu og sambandsleysinu væri ef til vill best að hætta alveg að senda börn og unglinga ísveit, en sendafullorðnafólkið í staðinn. Það hefur dregið mjög úr sveitadvöl barna, bæði vegna aukinnar tækni í sveitum, en líka hefur þeim hlutfallslega fækkað vegna þess að sífellt fleiri búa í borg og bæ, en bændur týnt tölunni á meðan. Sífellt færri Islendingar hafa komist í beina snert- ingu við sveitina. Þess vegna var þetta kannski ekki svo vit- laus hugmynd í kvikmynd Þráins Bertelssonar, Dalalífi, að stofna til sumarbúða fyrir fólk á sveitabæjum og gefa því kost á að spreyta sig við landbúnað. - En heimagisting á sveitabæjum, sem færist nú í vöxt að bjóða að sumarlagi? Gæti hún ekki aukið skilning þétt- býlisbúa? - Ég held að hún dugi ekki til að kynna fólki sveitastörf, því hún er í rauninni bara hótelgisting. - Teljið þið hestamenn í þéttbýli ykkar bandamenn? - Ekki þegar þeir stífla vegina fyrir okkur, svo varla er hægt að komast leiðar sinnar heilu helgarnar, án þess að vera í stórhættu að keyra þá niður. Yfirleitt eru þeir sjálf- um sér og öðrum stórhættulegir í umferðinni. Þeir sinna alltof lítið um að halda þessu utan vegar, eru vísir til að stoppa á ræsi og láta hrossin ganga laus. Það vantar sér- stakareiðvegi. - Eruð þið með hross? - Já, við eigum hross, en höfum ekki gefið okkur nokk- urn tíma til að stunda hestamennskuna neitt. Mamma er alltaf með eitthvað á járnum, og foreldrar mínir höfðu allt- afhesta til taks. - Sinnirðueinhverjum öðrum félagsstörfum en íKEA? - Við höfum nánast engan tíma aflögu, búskapurinn kallar á alla manns krafta meðan við erum bara tvö. Leyfi maður sér einhvern auka tíma er þar með strax farið að vanrækja annað í staðinn. - Hvað gerist ef annað ykkar eða bæði veikjast? Getið þið sótt aðstoð til afleysingaþjónustu bænda? - Hún kemst ekki yfir það sem henni er ætlað. Meðan það er bara einn maður fastráðinn á landinu til þess arna er ekki von, að á þetta sé treystandi. Þar vantar fleira fólk til starfa, svo þjónustan verði virk. - Gætir þú hugsað þér að búa við aðrar skepnur en kýr? - Við höfðum nokkur svín um tíma úti í fjósi og ég varð ekki vör við óþægindi eða lykt af þeim umfram kýrnar. Mér finnst svín fallegar skepnur, ekki síst grísirnir hálfsmánað- ar til þriggja vikna gamlir. Ogsvín eru afar þrifin. Raunar þótti mér alltaf fé skemmtilegra en kýr, meðan við höfðum hvort tveggja, en það er bara ekkert nema vit- leysa að vera með fé hérna, því ekkert land er fyrir það. Svo er tvöfalt erfiði að vera með blandað bú. - Hvað ertu ánægðust með í þínum búskap? - Eiginlega má maður aldrei vera ánægður, því þá er hættast við stöðnun. Ætli það sé ekki affarasælast að vera alltaf hæfilega óánægður. 120 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.