Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1985, Síða 14

Heima er bezt - 01.04.1985, Síða 14
Ekki veit ég um upphaf þeirra atvinnuhátta sem viðhafðir voru í Gnúpverjahreppi fram yfir 1940 og kallaðir Sauðaleitir. Ég verð að viðurkenna, að ég hef ekki leitað að tilurð þeirra aftur í aldir, en get hér þess sem mér er tiltækt um þennan þátt í bún- aðarsögu Gnúpverja. Ætla má að sauðaleitirnar eigi sér nokkuð langa sögu, en þær voru í því fólgnar að snemma vors, oftast um sumarmál, var allt geldfé rekið til af- réttar og þá inn í „Fell“, sem svo var kallað. þ.e.a.s. inn í Búrfell, Skeljafell og Stangarfell, sem lengst af var fremsti hluti afréttar Gnúpverja, enda lengi vel engin afréttargirðing á þess- um slóðum. Það er ekki fyrr en 1916 sem afrétt- argirðingin kemur og þá úr Háafossi í Þjórsá, sunnan í Sandafelli, á svipuð- um slóðum og hún liggur nú. Það er engan veginn víst, að þó að afréttar- girðingin væri komin hafi verið rekið inn fyrir hana, en aðeins rekið í Fellin eins og áður. 1938 eru Fellin hins vegar komin í umsjá Skógræktar rík- isins, þá er Þjórsárdalurinn girtur. Afréttargirðingin fellur inn í þá girð- ingu og er þá breytt lítilsháttar. Eftir þann tíma var ekki um annað að ræða en að reka innfyrir girðingu, enda gengið fast eftir því af ráðamönnum skógræktarinnar og umsjónarmönn- um. Tilgangurinn með því að reka féð svona snemma til afréttar hefir vafa- laust verið sá, í flestum tilfellum, að létta á fóðrum, því hey hafa víða verið STEINDÓR GUÐMUNDSSON, frá Stóra-Hofi Sauðaleitir Gnúpverja af skornum skammti og talið að vor- gróðurinn myndi nægja fénu til framfæris, enda kraftmikill þegar hann kemur undan snjónum. Elti féð snjóröndina eftir því sem snjóinn tók upp inneftir afréttinum en aðeins var um geldfé að ræða, þ.e.a.s. sauði og gemlinga. Ekki er fyllilega ljóst, hversu margir bændur á þessum slóðum notfærðu sér þennan „vorrekstur“, en það er ljóst að velflestir uppsveitarbændur og jafnvel fleiri, ráku geldfé inn 1 „Fell“ um sumarmál, meðan þátttakan var mest á síðustu öld og fram á þessa. Að minnsta kosti var það svo árið 1882, þegar aftaka veður gerði í maí það ár og margir misstu fé þarna innfrá, m.a. Sigurður stórbóndi Jónsson á Stóra- Núpi (síðar í Hrepphólum). Og oftar hefir gert þarna áhlaup þó það hafi ekki valdið neinu verulegu tjóni. Það virðist sem menn hafi hætt þátttöku í sauðaleitum, þegar kemur nokkuð fram á þessa öld. Þá virðist sauðum fara að fækka og er líklegt að fækkun sauða standi í beinu sam- bandi við mjólkursöluna sem hófst hér í sveitinni á þriðja áratugnum. Þegar svo sauðfjárpestirnar bárust til landsins 1935, hættu flestir að hafa sauði. Því fór svo, að síðustu árin sem sauðaleitir voru viðhafðar, var rekið svo snemma vors aðeins frá einum bæ, þ.e.a.s. frá Haga, en síðustu sauðirnir þar voru felldir 1942 ogfarið í síðustu sauðaleitina 1941. Þar höfðu lengst af verið 160-170 sauðir og um 100 gemlingar. Þar drapst fyrsta kindin úr mæðiveiki á útmánuðum 1941, en síðustu hrútlömbin gelt þar vorið 1940, (en sauðirnir þar voru velflestir vorgeldingar). Farið var í sauðaleitirnar seint í júní eða snemma í júlí, allt eftir því hvernig voraði, en reynt var að ljúka smölun afréttarins áður en almennt var farið að reka til fjalls. Grenjaleitir fóru fram á svipuðum tíma eða nokkru fyrr. Svolítið var misjafnt, hvað fara þurfti langt inn á afréttinn í sauða- leitum, sem byggðist á því hvað vel voraði. Venjulegast var farið inn að Kisu, því oftast var féð komið inn í Norðurleit, en sjaldan lengra. Þó skeði það vorið 1930, að þegar smal- arnir komu inn að Kisu var sýnt, að nokkrar kindur voru komnar inn yfir ána og sást ekkert til þeirra. Þær höfðu farið yfir á skafli, sem myndaði brú í gljúfrinu austan við gangna- mannakofann í Kjálkaverinu. Þarna var í forustu „Útigöngumóri“ sem svo var kallaður (samb. Göngur og réttir I bls. 260). Hann hafði ekki lagt í ána, en fundið þessa leið og tók 6 sauði með sér. Þeir voru svo í Arnarfells- múlum um haustið. En Móri var fóðraður á Skriðufelli veturinn áður. Komið gat það fyrir, að Dalsá væri ófær og varð þá að sleppa Norður- leitinni í það sinn. Venjulegast fóru sauðaleitararnir í tvennu lagi. Fyrst fóru þrír menn sem fara skyldu eins langt og þurfa þótti eða komist varð, og smöluðu fram austurhluta afréttarins, þ.e.a.s. öræf- unum fram að Skúmstungnaheiði og Fossheiði. Komu þeir venjulega að kvöldi annars dags fram í Gljúfurleit. Degi seinna fóru svo fjórir menn og héldu þann dag inn í Hólaskóg. Smöluðu þeir venjulega „Fellin“ með sér á inneftirleið. Næsta morgun eld- snemma héldu þeir svo inn afréttinn að vestan og smöluðu Fossheiðina og inn í Kistuver og héldu síðan fram Skúmstungnaheiði og niður í Skúms- tungur, og ef allt gekk að óskum og þoka eða annað tafði ekki, áttu þeir að hitta innanmenn þar, en þeir höfðu þá farið snemma úr Gljúfurleit. Síðan 126 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.