Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1985, Síða 15

Heima er bezt - 01.04.1985, Síða 15
smöluðu allir það sem eftir var þ.e.a.s. Sandafell, Karnesing og Hólaskóg. Oft var erfitt í þessum sauðaleitum, landið oft mjög blautt og þurfti því að hafa duglega hesta, og ekki óalgengt að smalar lentu í að elta „sauði skjarra“. Og ef áætlunin stóðst og ekkert hamlaði veður eða annað var smölun lokið um hádegi. Og nú var ekki til setunnar boðið, því eftir að menn höfðu fengið sér matarbita var tekið til við rúninginn, því ekki veitti af deginum til þess að ná ullinni af fénu og oft var komið fram á nótt, þegar því var lokið. Það var líka mikils virði að veður væri þurrt, þvi rúningur í rigningu er sóðaverk. Heldur þótti erfitt að rýja það fé, sem kom fyrir í sauðaleitum. því ullin vildi vera flókin á hálsi og víðar, eftir að féð hafði verið að sulla í ám og vötnum, og ekki var laust við að sandur væri þar einnig. En nú höfðu fleiri bæst í hópinn, ekki síst á seinni árum, eftir að farið var að sækja ullina á bíl, þá komu oft einhverjir aðstoð- armenn með bílstjóranum, sem ætíð var Haraldur Georgsson bóndi og sérleyfishafi í Haga. Á meðan ullin var flutt á hestum úr Hólaskógi fram að Haga hafði það verið talinn 5 tíma lestagangur (25 km). Nú var tekið til við rúninginn og ekki slakað á, þar til honum var lokið, aðeins tekinn biti og kaffisopi á hlaupum, þegar menn fór að svengja. Og ekki dugði annað en hafa tölu á því sem rúið var, og var sú venja við- höfð, að einn og sami maðurinn skyldi telja saman. Og skyldi hver og einn láta vita, þegar hann hefði rúið hverja kind og hvort það var sauður eða gemlingur. Á þeim árum sem ég tók þátt í þessum sauðaleitum var það sami maðurinn sem hafði þennan Hjálparfoss í Þjórsárdal. Stundum voru sauðirnir réttaðir á Hjálp. starfa á hendi. Sá hét Jón Þorkelsson og var lengi vinnumaður í Haga, og það heyrðist æði oft kallað „Jón sauður“ eða „Jón gemlingur“, en sjaldan heyrðist „Jón rolla“, þó það kæmi fyrir, því lambær áttu ekki að vera þarna. Það voru aðeins þær sem höfðu tekið forskot á sæluna og voru að strjúka til afréttar og þá þurfti venjulega að marka undir þeim líka. En Jón hafði hjá sér langa spýtu og vasahníf og gerði skoru við hverja kind, sauðina öðrum megin en geml- ingana hinum meginn. (Það voru bæði gimbrar og geldingar). Þegar svo rúningi var lokið, sem gat verið síðla kvölds eða jafnvel kominn nýr dagur, var öll ullin og farangurinn drifinn upp á bíl og mannskapurinn líka, nema tveir menn sem fóru fram með hestana og gjarnan annar mað- urinn frá Haga, því venjulega tóku þátt í sauðaleitum menn frá öðrum bæjum, þó fátt ættu þeir af fé á seinni árum. Réttarstaður í sauðaleitum var ekki í Hólaskógi fyrr en eftir að afréttar- girðingin kom 1916. Áður var rekið saman í Skeiðamannahólma eða jafnvel á Hjálp. Árið 1938, þegar Skógræktin setti upp nýja girðingu þarna í Hólaskógi, var hún færð norðar en sú gamla, svo að réttin sem staðið hafði við hana í um 20 ár var nú orðin næstum inn í miðju gerði. Var því sýnt, að byggja þyrfti nýja rétt, sú gamla orðin léleg enda byggð úr torfi. Síðasta sunnudag í júní 1939 fóru 6 menn saman frá Haga saman inn á afrétt og höfðu hestvagn meðferðis. Héldu allir hópinn inn í Hólaskóg. Þegar menn höfðu áð og matast í Hólaskógi héldu þrír menn áfram til að smala innafréttinn. En það voru þeir Jón Þorkelsson, sem áður er getið og hafði margar sauðaleitir að baki, Sigurgeir Þorsteinsson og Gestur Guðbrandsson frá Kaldbak sem oft var vetrarmaður í Haga. Þrír urðu eftir til að byggja nýja rétt, en það voru auk höfundar þeir Þorgeir Sig- urðsson úr Hafnarfirði, sem búinn var að vera mörg sumur kaupamaður í Haga, og Guðmundur Sveinsson frá Skáldabúðum (síðar á Stóra-Núpi og Haga). Við hófumst nú handa við réttar- bygginguna og ókum grjótinu á hest- vagninum úr hrauninu fyrir austan gerðið. Við unnum þarna langt fram á kvöld og allan mánudaginn, en þá kom til liðs við okkur Jóhann Ólafs- son bóndi á Skriðufelli, og réttar- byggingunni var líka lokið á tilsettum tíma. Næsta morgun áttum við svo að hefja smölun eldsnemma, en þá grúfði þoka yfir öllu, svo við gátum ekki hafið smölun fyrr en klukkan 9 svo allt var þetta heldur seint á ferð- inni. Eins var það hjá þeim sem inn úr fóru. Allt tókst þetta, en heldur í seinna lagi. Þeir sem að innan komu höfðu frá ýmsu að segja, m.a. lentu þeir í viður- eign við tófu í Gljúfurleit og unnu á henni, og þá fyrst og fremst hundur sem með þeim var, gulstrútóttur frá Haga, alþekktur tófubani og lauk lokaviðureign þeirra í hyl í Gljúfrará. Oft kom fyrir að útigangar fundust í sauðaleitum. Vorið 1940 kom fram geld ær frá Ásólfsstöðum í Skeljafelli og var talið fullvíst að hún hefði gengið úti þar um veturinn. Vorið 1941 fundu sauðaleitarar þrjár rytjur á mel, sem er á vestan- verðu Kjálkaverstagli, höfðu þær orðið þar úti um veturinn. Þessar kindur urðu eftir haustið áður í eftir- leitinni, að fullvíst er talið, og ofanvert við Kjálkaverið, síðan gengið um vet- urinn í Kjálkaverinu og bökkunum fram af því, að talið er. Þetta voru tvær veturgamlar gimbrar með lömb- um og sannaðist það á hornunum, sem sauðaleitarar komu með (þær voru frá Þjórsárholti og Hamars- heiði). Af hornahlaupum mátti sjá, að þær hafa lifað langt fram á vetur. En 1 mars þetta ár gerði mikið norðanveð- ur og er talið að þær hafi farist þá, hrakið út á melinn og hreinlega slegið niður, hvort sem bæði lömbin hafa verið með þeim þá eða það hefir hrakið í Þjórsá, en annað lambið vantaði. Nú eru liðin yfir 40 ár síðan sauða- leitirnar lögðust niður og verða sjálf- sagt aldrei vaktar upp aftur, en það var eftirtektarvert, að það fé sem smalað var í sauðaleitum á vorin, gekk innarlega á afréttinum yfir sumarið, — það sást ekki fram við girðingu. Heimaerbezt 127

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.