Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1985, Side 18

Heima er bezt - 01.04.1985, Side 18
Hvort er Mývatnssveit fríð eða Ijót? 1. Kunn er þjóðsagan um það er Kölski fór að öfundast út í skaparann vegna fegurðar heimsins og reyndi að míga á sól- ina til að myrkva sköpunarverkið. Ekki tókst betur til en svo að úr varð sá Ijóti pollur á Norðurlandi sem Mývatn heitir og er allra vatna Ijótast. 2. Eggerti Ólafssyni og Bjarna Pálssyni þótti sveitin svört og Ijót. 3. Sigurður skáld Jónsson á Arnarvatni orti: „Allt það sem ég fegurst fann . . . . er í þínum faðmi fundið.“ Verður ekki annað sagt en að sínum augum líti hver á silfrið. 4. Á síðari tímum hafa svo fjölmargir menn innlendir sem erlendir rómað fegurð sveitarinnar í ræðu og riti og hefur álit manna mjög breyst frá því sem áður var. Sprungubelti frá megineld- stöðinni Kröflu Saga jarðlaga, sem sjást á yfirborði í Mý- vatnssveit, hófst er nokkuð var liðið á ísöld. Landslag var þá ekki ósvipað því sem getur að líta á þessum slóðum nú, háslétta með móbergstindum og stapafjöllum. Norðaustan sveitarinnar var þá farinn að myndast kúfur þar sem Kröflueldstöðin er nú. Ef stiklað er á stóru í jarðsögunni má nefna að um 130.000 ár eru síðan mikil umbrot urðu við Kröflu. Miðja eldstöðvarinnar seig og myndaðist þá stór ketill, allt að 10 km í þvermál, sem síðan fyllist smám saman af hrauni, vikri og öðru því sem til fellur við eldfjöll. Út frá þessari megineldstöð gengur sprungubelti til norðurs og suðurs marga tugi km. Mörg gos undir jökli Meðan jökull lá yfir landinu áttu eldur og hraun ekki greiðan aðgang upp á yfirborðið í eldgosum. Flest fjöllin sem sjást á myndinni, móbergstindar og móbergshryggir, eru til komin við gos undir jökli. Stapar setja sér- staklega mikinn svip á Mývatnssveit, þótt enginn þeirra blasi við á myndinni. Má þar til nefna Sellandafjall og Bláfjall i suðri, Búrfell í austri og Gæsafjöll i norðri. Austan til í sveitinni rís (Reykja-)Hlíðarfjall bratt og svipmikið, enda myndað við gos í jökli og auk þess úr líparíti, sem er víða að finna svo nálægt megineldstöð. Litlu austar er Dalfjall, allt rist langsum norður-suður af sprungubelti Kröflueldstöðvarinnar. Þar suð- ur af er svo móbergshryggurinn Námafjall sem margir ferðamenn muna eftir, aðallega fyrir gufu- og leirhverasvæðið á Hverarönd, sem liggur austan undir því og er gjarnan kennt við Námaskarð, sem skilur milli Náma- fjalls og Dalfjalls. Ljós brennisteins- og um- myndunarlitur Námafjalls veldur því, að þar sýnist ávallt vera sólskin. Ufiðland Austan undir Dalfjalli er Hlíðardalur. Hraun hafa komið upp i dalnum, hraun hefur runnið ofan í hann og fyrir honum á að liggja að fyll- ast af hraunum. Norður af Hlíðardal eru svo Leirbotnar. Austanvert er Krafla sjálf, mó- bergstindur sem nær rúmlega 800 m yfir sjáv- armál. Enn litlu austar er lágur langur hryggur, Hrafntinnuhryggur, sem er þekktur fyrir fallega hrafntinnu. Var hún meðal annars notuð i skreytingu á Þjóðleikhúsinu. Vinstra megin á myndinni er Eilífur, strýtu- laga móbergstindur norðan við Eilífsvötn. Áberandi fjall er á miðri mynd sem er Jörund- ur. Hann er úr líparíti eins og Hlíðarfjall, enda bera þau svip hvort af öðru. Eilífur og Jörund- ur eru ásamt Katlt, Sighvati og Eggerti útverð- ir Mývatnssveitar í austri. Lengst til hægri á myndinni eru Skógar- mannafjöll sveipuð skýjum. Handan Hóls- fjalla eru Dimmifjallgarður og Haugsöræfi, Oddur Sigurðsson jarðfræðingur hluti af hinum stórfenglega fjallaboga sem gengur norður frá Kverkfjöllum allar götur til Rauðanúps á Melrakkasléttu. Enn austar eru Vopnafjarðarfjöllin og þar ber mest á Hágöngunum, Nyrðri- og Syðri-. Beint yfir Jörund ber Gunnólfsvíkurfjall á Langanesi. Röndótt land Mývatnssveit er vestanvert í eldgosabeltinu á Norðurlandi. Gefur því auga leið að eldgos setja ríkan svip á landið þar. Síðan ísöld lauk fyrir um 10.000 árum hafa miklar breytingar orðið í landslagi. Annars vegar hafa eldgos og hraunflóð umbylt ásýnd sveitarinnar og hins vegar hafa sprungur og misgengi sett mynstur, svo að allt landið er röndótt í norður- suðurstefnu. Laxárhrauneldra Mikið gos varð í Ketildyngju suðaustan sveit- arinnar fyrir um 4000 árum. Rann hraunið niður eftir Seljahjallagili norðan við Bláfjalls- fjallgarð og breiddist yfir meginhluta Mý- vatnslægðarinnar. Sennilega hefur þá ekki verið neitt vatn þar. Þetta hraun hefur verið nefnt Laxárhraun eldra, því að það er eldra tveggja hrauna sem hafa runnið ofan Laxár- dal endilangan og breiðst út í Aðaldal. Laxár- hraun eldra er allt, að heita má, helluhraun eins og dyngjuhrauni ber, þ.e. allslétt og víða eryfirborð þess einsog reipavöndull. Magnað sprengigos og Búrfellshraun Mikið var um eldgos á svæðinu næstu 2000 árin. Mest áhrif á landslagið höfðu Hverfjalls- gosið og Þrengslaborgareldar. Hverfjall myndaðist við magnað sprengigos þar sem hver sþrengingin rak aðra og breiddi þykkt teppi ösku og vikurs yfir austanverða sveit- ina. Þá hefur verið ríkulegur trjágróður þar, sem sést á förum eftir laufblöð af birki, víði, og reyniviði og holum eftir trjástofna í öskunni. Síðan þetta var eru liðin tæp 3000 ár. Austan við Námafjall gekk mikið á um sama leyti. Þar gaus í Kræðuborgum mikið gos og rann þá Búrfellshraun milli Brekkna 130 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.