Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1985, Page 22

Heima er bezt - 01.04.1985, Page 22
MÝVATNSSVEIT Starfsgreinar nútímans Hótelrekstur hefur verið stundaður marga áratugi bæði í Reykjahlíð og Reynihlíð enda er þar gífurlegur ferðamannastraumur á sumrin. Léttsteypan, sem framleiðir hleðslu- steina, er til húsa þar sem áður var brenni- steinsvinnslan, sú síðasta af mörgum slíkum í Hlíðarnámum. Annað fyrirtæki, trésmíða- verkstæðið Sniðill hefur starfað í hálfan ann- an áratug og haft nóg fyrir stafni enda miklar byggingaframkvæmdir þar sem ný fyrirtæki rísa. Kísiliðjan var reist í Bjarnarflagi 1967-68. Þar var henni valinn staður vegna þess að í Mývatnssveit fara saman tvenn þau náttúru- gæði sem til rekstrarins þarf, þ.e. jarðhiti og kísilgúr. í Mývatni eru þykk lög af kísilgúr, þau hafa sest þar til á undanförnum 4 árþúsund- um, sem liðnar eru frá því að vatnið varð til, þegar Laxárhraun eldra rann. Á botninn bæt- ist um 1 mm af kísilgúr á ári, því að svo er vatnið frjótt, að það verður gruggugt af þör- ungum sumar hvert. Það kalla heimamenn leirlos. Þegar kísilþörungur deyr fellur kísil- grind hans til botns og myndar lög af þessu eftirsótta iðnaðarhráefni. Eins og oft vill verða eru menn ekki á eitt sáttir hvernig nota skuli auðæfin. Nú standa yfir deilur milli Iðnaðarráðuneytisins og Nátt- úruverndarráðs um leyfisveitingu til kísilgúrs- náms á botni Mývatns, og innansveitar deila menn um hið sama. Fyrir nokkrum árum urðu talsverð málaferli út af eignarrétti á botni Mývatns. Var ríkinu dæmdur botninn til eign- ar. Enn er ótalið það fyrirtæki, sem hvað mest hefur verið rætt um. Þar er Kröfluvirkjun. Árið 1975 var hafist handa við að virkja jarðhitann við Kröflu. Þrem árum seinna voru öll mannvirki búin til starfa, og ekki skorti annað en orkuna til að framleiða rafmagnið. Verður þó að segjast, að það er mjög alvarlegur skortur. Hvernig getur slíkt viljað til? Engin samræmd stjórn var á verkinu í heild. Þing- skipuð nefnd sá um að reisa stöðvarhúsið og kaupa vélar, og Orkustofnun átti að sjá um að afla gufunnar. Þetta hélst ekki í hendur. Af hvorugu var þó gagn án hins. Hvað svo sem fór úrskeiðis, þá hefur það ekki verið tekið út af mönnum sem engra hagsmuna eiga að gæta, og er víst lítil von til að það verði gert. Slík úttekt hlýtur að teljast mjög mikilvæg, ekki til að finna sökudólg, heldur til að mönnum verði ekki á mistök af þessu tagi aftur. Svo til að flækja málið byrj- uðu langvinnustu eldsumbrot í sögu þjóðar- innar við tærnar á virkjunarmönnum og eitr- uðu gufuna sem við átti að éta í virkjuninni. Misheppnaðar mannasetningar Lengi hafa menn haft hug á að stjórna vatns- hæð Mývatns. Á fyrsta áratug aldarinnar voru reistar stíflur í ósakvíslum vatnsins og áveit- um stjórnað með því móti. Það fór eins og oft vill verða, þegar maðurinn tekur sér vald yfir náttúrunni. Þegar menn freistuðust eitt sinn (1915) til að hafa óvenju hátt í vatninu gerði mikið hvassviðri og gekk vatnið víða á land og braut. Jarðvegstorfur hurfu sumstaðar með öllu af lágum varþhólmum. Af þessu tjóni hlutusttalsverð málaferli sem stóðu fram á þriðja áratug aldarinnar. Þegar Laxárvirkjun kom til skjalanna vildu menn auðvitað geta stjórnað því, hversu mikið rynni úr vatninu og miðla því til virkjun- arinnar. Var reist mikil stífla með vélknúnum lokum í Geirastaðakvísl 1959-1960, en lágar grjót- og jarðvegsstíflur í Miðkvísl og Syðstu- kvísl. Þá komu uþþ deilur um fiskgengd milli Laxár og Mývatns. Var brugðið á það ráð að byggja silungastiga í stífluna í Miðkvísl sum- arið 1961. Ekki minnkuðu deilurnar við það og lauk svo að heimamenn fjölmenntu að Miðkvísl 25. ágúst 1970 og sprengdu burt stífluna með dýnamíti. Enn urðu málaferli og þau allumfangsmikil, þar sem fjöldi manns átti í hlut. Niðurstaða dómsins varð einnig allsérstök fyrir það, að þar voru margir dæmdir í fjársekt skilorðsbundið. í miðri Mið- kvísl stendur eftir silungastigi úr steinsteypu og fer nú örugglega enginn fiskur þar um. Þótt menn hafi mikið á sig lagt til að ráða yfir sveiflum í vatnsborði Mývatns þá hefur náttúran verið þar miklu djarftækari. Norð- lægir vindar hlaða vatninu upp að syðri bakk- anum og grynnkar þá jafnframt við norður- ströndina og í sunnanátt gerist hið gagn- stæða. Þegar til koma miklar umbyltingar í náttúr- unni eins og gerðist í Mývatnseldum, og svo aftur nú um þessar mundir, þá fer öll jörðin á skjön. Má segja að Mývatn hafi steypt stömpum. Norðausturhornið hefur nú á 10 árum lyfst rúmlega hálfan metra umfram Mý- vatnsósa og er því mikill hluti Ytriflóa 1/2 m grynnri en áður. Að sjálfsögðu raskar þetta lífríkinu talsvert, því nú eru margar riðstöðvar silungsins orðnar of grunnar til að þær nýtist sem slíkar. Ef nú ætti að bjarga þessu með því aðloka fyrir útfallið þá myndi hækka í vatninu vestanverðu og sunnanverðu til mikils skaða. Það sýnist því ráðlegast að láta náttúruna um að laga það sem hún færði úr- skeiðis og er öðrum vart til þess treystandi. Jarðbaðshólar í austanverðri Mývatnssveit eru margar eld- stöðvar sem eru sumar svo lítilfjörlegar, að þær heita engu sérstöku nafni. Þær eru ekki mjög gamlar, en þó ekki frá sögulegum tíma, nema Mývatnseldahraunið í Bjarnarflagi og Hrossadal. Þar á meðal eru Jarðbaðshólar, þar sem reist var gufubaðstofa á fyrri tímum yfir gufuauga. Þar hefur verið baðhús á ýms- um tímum, en nú er þar rústin ein því miður. Kröflueldar Um yfirstandandi umbrot við Kröflu og í Mý- vatnssveit er ekki vert að fjölyrða hér, en að því er best verður séð líkjast þau ótrúlega mikið því sem gerðist á sömu slóðum fyrir 250árum. Lútandi? Suður af Námafjalli er regluleg gígskál sem hallar mót vestri. Heitir hún því sérkenniiega nafni Lúdent. Þórhallur Vilmundarson, þró- fessor, hefur bent á að upprunalega kunni skálin að hafa heitið Lútandi. Þessi gígur hef- ur myndast skömmu eftir ísaidalok og er því nær 10.000 ára gamall. Við hann eru tveir minni eldgígar sem hafa gosið andesíti, en það er ísúr bergtegund, milli þess að vera súr og basísk. Lúdent myndaðist skömmu eftir ísaldarlok, fyrir nærri 10.000 árum. Mynd: Oddur Sigurðsson. 134 Heimaerbezl

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.