Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1985, Síða 23

Heima er bezt - 01.04.1985, Síða 23
________HELGI HALLGRÍMSSON___ ÞÆTTIR UM ÞJÓÐTRÚARFRÆÐI - VI Enn um álfa á Akureyri Hulduskip við Hallandsklett. Fossinn er í Lambhagalœk. Stöðugt er að tínast til ýmis fróðleikur varðandi álfa og huldufólk á Akureyri og nágrenni, [sbr. greinar mínar í HEB, 33. árg. 5. hefti (1983), 34. árg. 3. og 5. hefti (1984)], og verða hér birtar ýmsar viðbætur til uppfyll- ingar í þá mynd sem þar er reynt að bregða upp af bústöðum og starfi hulduheimsins á þessu svæði. SIGURBJÖRG SÓTT TIL HULDUKONU? Sigurbjörg Jónsdóttir, er lengi bjó á Veigastöðum á Sval- barðsströnd, og andaðist þar 83 ára 1918, var annáluð fyrir dugnað sinn og heppni við ljósmóðurstörf. Að sögn Harð- ar Jóhannssonar bókavarðar frá Garðsá, var því almennt trúað í sveitinni, að Sigurbjörg hefði eitt sinn verið sótt til að hjálpa huldukonu í barnsnauð, og hlotið fyrir það bless- un hennar, og ákvæði um farsæld í þessu starfi, sem altítt var um íslenzkar ljósmæður í fyrri tíð. Eitt sinn hafði amma Harðar innt hana eftir þessu, og sagði hún þá aðeins:,,Eitt- hvað dreymdi mig“, en gaf ekki meira út á það. NÁNAR UM HULDUFÓLKSSKIPIN í frásögn af Þorleifi á Barði (Akureyri) í Grímu hinni nýju IV. bindi, bls. 43, ereftirfarandi klausa: ,,Pað var siður kaupmanna, sem þá voru við Eyjafjörð, að leita frétta hjá Þorleifi um það, hvenær kaupskip þeirra voru væntan- leg. Sagði hann ávallt fyrir um skip þeirra, og fór það æ eftir, er hann sagði. Eigi gat hann þó sagt neitt um þau, fyrr en sem svaraði viku áður en skipin komu í höfn, því að þá sagði hann að hulduskipið kæmi, og væri það sannboði þess, að kaupför væru í nánd. Þetta gat hann og gerði svo þráfalt, að engum kom til hugar að efast um áreiðanlcik hans í því efni.“ (Eftir handriti Tryggva Indriðasonar frá Hóli í Kelduhverfi, 1910). Þorleifur á Barði var Þorleifsson. Samkvæmt manntali 1860, er hann þá 56 ára húsmaður á Barði, ásamt konu sinni Elínu Þorsteinsdóttur (54 ára) og dóttur, Steinunni Helgu (12 ára). Hann dó 10. júní 1869 á Rangárvöllum. Hann var af sumum nefndur Bræðslu-Leifi, af því hann fékkst lengi við lýsisbræðslu á Akureyri. Hann var skyggn og sagði fyrir ýmsa óorðna atburði. Það var almenn sögn á Akureyri, að hulduskipið (eða skipin) kæmu einni til tveimur vikum á undan kaupskipum manna. Heima er bezt 135

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.