Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1985, Síða 29

Heima er bezt - 01.04.1985, Síða 29
landi sínu, Félagsgarði. Á því hvíldi skuld til Thor Jensen, sem fallin var í gjalddaga. Hann skrifaði henni samúðar- bréf og bað hana að hafa ekki áhyggjur af skuldinni, hún gæti beðið betri tima. Ég vil benda á, að þetta gjörðist tæpum þremur árum eftir að Thor Jensen varð gjaldþrota og skuldir hans frá þrotabúinu lágu þungt á herðum hans, því hann greiddi þær að fullu. Móðir mín skuldaði einnig séra Skúla Skúlasyni í Odda og sendi hann einnig vinsamlegar samúðarkveðjur og til- kynningu um það að skuldin gæti beðið. Móðir mín sagði okkur frá þessum mönnum og bað okkur um að gleyma aldrei vinsemd þeirra. Það var henni líkt að segja okkur frá því sem okkur var vel gert, en þegja um alla þá sem reyndust okkur illa. Sennilega hefðum við ekki fengið að heyra um framkomu rektors, ef þetta hefði ekki skeð á heimili okkar. Sjálfsagt hefir rektor haft einhverja laga- bókstafi að styðjast við, en hann var vel efnum búinn, á þeirra tíma vísu og átti bókstaflega tilveru sína sem rektor föður mínum að þakka. Auk allra erfiðleikanna sem steðjuðu að móður minni við lát föður míns, var sorg hennar svo þung að henni lá við að yfirbugast. En henni varð það til bjargar að vinir hennar, séra Haraldur Níelsson og Einar Kvaran rithöfundur voru þá að gjöra tilraunir sínar með sálarrannsóknir. Hún tók þátt í þeim frá upphafi, og gjörbreytti það smátt og smátt viðhorfi hennar, og tók hún þá aftur gleði sína. Þótt móðir min hafi mestan hluta ævi sinnar haft meira en nóg að starfa, hafði hún ávallt tíma til þess að sinna okkur, börnum hennar. Hún hafði glæsilega söngrödd og yndi af að syngja. Var það arfur frá feðgunum, séra Snorra og föður hans, séra Sæmundi Einarssyni, sem báðir voru þekktir sem afbragðs söngmenn, og ótrúlega margir af beztu söngmönnum landsins eru komnir af. Eftir að við fórum að ganga í skóla, skemmti hún bæði sér og okkur með því að skipta okkur í hópa eftir raddblæ og lét okkur syngja þríraddað þá söngva sem við höfðum lært í skólanum. Hún kenndi okkur einnig að dansa og ýmist söng undir eða taldi taktinn. Þótt okkur leiddist að fá ekki að fara með kunningjum okkar í dansskóla, þá held ég að það hafi ekki komið að sök. Hún gaf sig dansinum á vald, þótt dansfélagar hennar hafi verið nokkuð smávaxnir, því eins og mörgu söngelsku fólki, voru henni bæði hljóm- fall og tónar mikið yndi. Sennilega hafði hún aldrei dansað síðan hún var ung stúlka, því faðir minn var haltur, eins og ég hefi þegar sagt og þau sóttu aldrei slíkar skemmtanir. Hún gleymdi sér alveg við söng. Hún var mjög kirkju- rækin og vildi að við færum einnig. Þá var siður að safn- aðarfólkið söng hvert með sínu nefi og það gjörði hún af hjartans lyst. Við börnin vorum dálítið feimin, því fólkið sem næst okkur sat hætti að syngja til þess að hlusta á hana. Hugur hennar snerist um tóna oftar en við vissum. Áður en faðir minn lést, kom hún oft þjótandi frá verkum sínum og greip gítarinn sinn. Henni hafði þá dottið í hug einhver laglína, sem hún varð að prófa, áður en hún gleymdi henni. Það voru þó nokkur smálög sem hún samdi og söng síðan, sér og okkur til gamans. Þvi miður eru þau flest fallin mér í gleymsku, því þau voru flest samin rétt fyrir og eftir alda- mótin. Fjögur þeirra þykist ég þó muna, og hef ég skrifað þau niður af lítilli kunnáttu. Móðir mín sá um að við systkinin fengjum kennslu í tungumálum hjá beztu kennurum, en þungt þótti henni að þurfa að taka einkasoninn úr skóla, þegar hann var ný- sestur í hann. Fjórum árum síðar, þegar verstu erfiðleik- amir voru um garð gengnir, stóð mér það til boða og gerði ég það. Því miður guggnaði ég á því að vera innan um eintóma stráka og hætti. Ég hefi áður minnst á einn af draumum móður minnar. Annan draum man ég, sem var mjög merkilegur. Ein systir mín var á tímabili mjög óþekkur og óviðráðanlegur krakki. Enginn vissi hvernig á því stóð, en sálfræðingar nútímans segðu e.t.v. að um afbrýðissemi hafi verið að ræða. Hún var lengi yngst af okkur, en fékk svo keppinaut fjórum árum yngri. En hver sem ástæðan var, hafði móðir mín engin ráð. Hún var mjög bænheit og bað Guð um hjálp. Um nóttina sá hún í draumi bjaría veru sem breiddi út faðminn og sagði: „Þetta er leiðin.“ Það varð til þess að mamma breytti alveg um aðferð. 1 stað umvöndunar sýndi hún henni alla sína ástúð. Þetta bar strax árangur og urðu þessi vandræði ekki lengri. Eftir því sem við börnin uxum úr grasi, fór líf mömmu að verða rólegra. Hún hugsaði þó alltaf sjálf um sitt stóra heimili, en hafði alltaf einhverja hjálp. Við fórum öll út að vinna og bætti það fjárhaginn. Árið 1918 gekk hér skæð drepsótt, sem kölluð var inflú- ensa. Eins og allir vita varð hún hundruðum manna að bana í Reykjavík og í næstum hverju húsi lá allt heimilis- fólkið samtímis. Þá var mikil kuldatíð og vegna stríðsins var engu til að brenna nema mó og jók það mjög á vandræðin. Heima hjá mömmu lagðist allt fólkið í einu, aðeins hún og amma mín, þá 83ja ára, stóðu uppi. En það var ekki aðeins hennar heimilisfólk sem veiktist í senn. Á miðhæð hússins bjó systir mín og fjölskylda hennar, og á neðstu hæð bjó leigjandi sem einnig var rúmliggjandi. Móðir mín þurfti því að sjá öllu þessu fólki fyrir mat og hjúkrun. Amma mín, þó gömul væri, fór og liðsinnti minni fjölskyldu og fjölskyldu Ólafar systur minnar. Þetta virtist allt blessast ágætlega og enginn af okkar fólki lét lífið. Eitt fórnarlambið tók aldrei veikina. Það var móðir mín. Allt þetta strit og stigagangur með þungar byrðar af eldiviði og öðrum nauðsynjum varð henni ofviða. Hún lagðist banaleguna fyrir jól, með bilað hjarta og nýru. Hún lézt 2. júní 1919, tæpu hálfu ári eftir þetta. Líkami hennar var svo fullur af bjúg að hún gat lítið hreyft sig í rúminu. Síðustu dagana varð hún einnig blind. Hún hafði alltaf fulla rænu og vissi auðvitað hvað í vænd- um var. Því tók hún með fögnuði. Þegar enginn var til að sinna móður minni, var afþreying hennar aðeins ein — að syngja. Hún söng sálma og var einkennilegt að heyra konu, eins langt leidda eins og hún var, syngja eins og ung væri. Móðir mín lézt um fjögur-leytið að nóttu. Viggó bróðir minn var þá staddur á heimili mínu, hann kom til Reykja- víkur til að kveðja mömmu. Kl. 4, nóttina sem hún lézt, vaknaði hann við það að hann heyrði mömmu segja: „Drengurinn minn, þá er þessu lokið.“ Því miður gátum við Heima er bezt 141

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.