Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1985, Síða 38

Heima er bezt - 01.04.1985, Síða 38
Svona er þjóðar- búskapurinn ÍSLENSK HAGLÝSING. Ritstjóri Þórður Friðjónsson. Rvík 1985. Almenna bókafélagið. I ritiþessueru 12 ritgerðir eftir 11 höfunda um hagsögu íslands. Koma þar á vettvang margir þeirra, sem mest kveður að í fræðilegum umræðum um þessi mál, sem nú eru í allra munni í þeirri efnahags- kreppu, sem á oss dynur. Greinarnar eru allar skýrar og hverjum manni auðlæsi- legar, og ætti bókin í raun réttri að vera handhæg leiðarvísan í öllu því moldviðri, sem á oss hvín um efnahagsmálin bæði í ræðu og riti. Þessar ritgerðir, sem allar eru hreint fræðilegar, þótt vitanlega megi sjá skoðanir höfundanna, ættu að geta gert oss léttara að átta okkur á og skapa okkur hugmyndir um þessi málefni. En þær eru engin létt lesning og því síður skemmti- lestur alls ófróðum mönnum, enda er bókin ætluð til kennslu í Háskóla íslands, en ritgerðirnar þó ekki skrifaðar í þeim tilgangi í upphafi. Ritstjórinn segir í for- mála að í ritinu sé að finna „sumt af því besta, sem skrifað hefir verið um þjóðar- búskap íslendinga“. Slík ummæli mundi ábyrgur háskólakennari ekki hafa að ástæðulausu. f viðauka er yfirlit um heildarráðstafanir í efnahagsmálum síðan 1956, einnig töflur um þróun nokkurra hagstærða. Er það hvorttveggja forvitni- legt og handhægt öllum, sem vilja fylgjast með þessum roálum. Heima er bezt. ofl Þjóðlegt heimilisrit. Stofnað árið 1951. Kemur út mánaðarlega. Útg.: Bókaforlag Odds Björnssonar. Ritstj.: Steindór Steindórsson frá Hlöðum. Ábyrgðarmaður: Geir S. Björnsson. Blaðamaður: Ólafur H. Torfason. Heimilisfang: Tryggvabraut 18-20, póst- hólf 558, 602 Akureyri. Sími 96-22500. Áskriftargjald kr. 600.00. í Ameríku USD 25.00. Verð stakra hefta kr. 60.00. Prentverk Odds Björnssonar hf. Skemmtileg málfærsla í Njálumálinu Hermann Pálsson: UPPRUNI NJÁLU OG HUGMYNDIR. Rvík 1984. Menningarsjóður. Alltaf spreyta fræðimennirnir sig á Njálu, efni hennar, efnismeðferð og leit að höf- undi hennar. Hér tekur Hermann Pálsson sig til við að rekja ýmsa efnisþætti hennar og leit að höfundinum og einkum þó tengsl hennar við erlend og innlend rit. Er það gert af miklum lærdómi, enda mun enginn íslendingur vera honum lærðari í miðaldabókmenntum, og ekki skýst hon- um skýrleiki í framsetningu og hugsun. Annað mál er, að mér finnst ekki mikið koma til þeirrar áráttu fræðimanna, að vera sífellt að leitast við að sýna fram á, hvaðan þetta eða hitt sé fundið eða fengið. Enda þótt orð og setningar séu lík í tveimur eða fleiri ritum, þá vita menn ekkert um, hvað hinir fornu höfundar hafa lesið, og því verða þetta alleinasta tilgátur. Það liggur við, að manni þyki sem ritskýrendurnir séu að reyna að fá mann til að trúa, að íslenskum höfundum hafi aldrei dottið neitt frumlegt í hug nema að raða saman brotum úr ýmsum áttum, og vér hljótum að spyrja, hefir tveimur mönnum aldrei dottið hið sama í hug, þótt hvorugur hafi vitað af hinum? Vitanlega eru Islendinga sögur ekki eintómur bðk- staflegur sannleikur, enda þótt hin munnlega geymd í þeim sé áreiðanlega miklu meiri en hinir vísu, nýtísku fræði- menn vilja vera láta. Með því að úrskurða þær að mestu eða öllu skáldskap fara þeir út í miklu meiri öfgar en hinir, sem á sín- um tíma trúðu hverju orði þeirra sem heilögum sannleika. Og satt að segja eru þessir menn smám saman að draga sög- urnar niður á flatneskju meðalmennsk- unnar með því að gera þær að skáldsögum og síðan að leitast við að færa rök að því að setningar og hugsun sé fengið að láni sunnan úr löndum. Hermann stingur upp á því að Árni biskup Þorláksson sé höfundur Njálu, rök hans eru álitleg, og Ámi biskup vissulega líklegri en margir aðrir sem hafa verið tilnefndir. En er ekki öll þessi höfundarleit álíka frjótt við- fangsefni og að leita að saumnál í sátu, og þó vonlausari að því leyti, að ekki er óhugsandi að nálin finnist. en aldrei verður sannað hver sé höfundur mörg hundruð ára gamalla rita. Brynjólfur biskup eignaði Sæmundi fróða Eddu. Allir eru nú sammála um að það sé skrök eitt, enda engin rök til frá hans hendi. En verður ekki eitthvað líkt að lokum um alla þessa höfundarleit að Njálu og öðrum fornsögum? Ritskýrendurnir færa allir rök að máli sínu og lesandinn er á sama máli og síðasti ræðumaður, þangað til annar nýr kemur til sögunnar, og ég er hræddur um að svo fari enn, allt um skemmtilega málfærslu Hermanns. En hvað sem því líður er gaman og fróðlegt að lesa rit hans eins og annað, sem frá hans hendi kemur. Gamninu fylgir alvara Gísli J. Ástþórsson: HVAÐ ER EIN MILUÓN MILLI VINA? Rvík 1984. Menningarsjóður. Þetta er gamansöm skáldsaga eins og fleiri sögur höfundar. En „öllu gamni fylgir nokkur alvara" eins og máltækið segir, og á það einnig við hér. Enda þótt höfundur bregði blæju gamanseminnar yfir frásögn sína er alvaran að baki. Lesandinn fær skyggnst um í hugarheimi sögupersón- anna, kjör þeirra og vandamál. Það er býsna margt, sem sagan vekur til um- hugsunar þegar grannt er að gáð, og ósköp kannast maður vel við margar persónurn- ar úr umhverfi sínu, þó að Gísli setji á þær ofurlítinn skopmyndablæ, þ.e. ýkir myndina ögn en þó ekki meira en svo að rétti svipurinn sést í gegn. En vafalaust er það sterkasti þátturinn í sögum hans, þessari jafnt sem öðrum, hve vel hann kann að blanda saman gamni og alvöru, og satt að segja á hann þann „humör“, sem fágætur er meðal íslendinga og ekki síst rithöfunda vorra. St. Std. 150 Heima erbezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.