Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1985, Page 40

Heima er bezt - 01.04.1985, Page 40
Þorsteinn G. Húnfjörö, bakarameistari á Blönduósi, og Kristín Húnfjörð kona hans, hafa komið upp sérstæðum en lítt þekktum lystigarði bak við heimili sitt í Gamla spítal- anum, sem stendur gegnt Hótelinu á Blönduósi. Ibúðarhúsið og atvinnuhúsnæði þeirra, Brauðgerðin Krútt, skýla garðinum ásamt háum skíðgarði. Hann er neyðarráð- stöfun í baráttunni við sífelldan strekkinginn, sem ætlar allan garðagróður þarna sunnan Blöndu að drepa. / gróðurhúsinu er ég bara með fegurð," segir Kristín, og ræktar fyrst og fremst rósir. Hún heldur nákvæma gróðurhúsbók yfir umhirðu, rósaklippingar, húsþvottinn í febrúar-mars, og svo framvegis. Og það er harðbannað að bölva í gróðurhúsinu hennar Kristínar Húnfjörð. Kristín telur garðinn „sálarbjörg" og fer um hann mörgum sinn- um á dag til að komast í og úr vinnu í brauð- gerðinni. ,,Það getur ekkert komið ístaðinn fyrir garð. þar er ekkert sem kvartar við þig, en brosir alltaf ef þú gerir vel. “ Affallsvatn hitaveitunnar í íbúðarhúsinu er leitt um 40° heitt í gróðurhúsið og þaðan í gosbrunninn og heita pottinn, hæfilega baðvatnsheitt, enda mikið notað. Potturinn var steyptur með súrheysturnamótum úr sveitinni. Spíran er 12 tommu frárennslisrör. Þau flísalögðu svo allt saman sjálf, enda hafa þau leyst flestöll verkefni í garðinum upp á eigin spýtur. Stytturnar steypti þó Örnólfur Örnólfsson í Reykjavík. Grjóthell- urnar sem mynda stétt milli íbúðarhúss og gróðurhúss fluttu þau m.a. norðan af Skaga. Læknishjónin Björg og Páll V. G. Kolka komu þarna á sínum tíma upp ágætum garði sem Þorsteinn minnist glöggt, enda var móðir hans ráðskona á sjúkrahúsinu hjá Mörg dæmi eru um það á Blönduósi, og líka í garði Húnfjörðhjóna, að það klippist á trén, ef þau gægjast upp fyrir girðingar eða húsþök. Sérkennilegasta dæmið er þó eflaust birkitréð fræga við kirkjuna. Það hjúfrar sig upp að kórnum í skjóli fyrir næðingnum sem æðir af Húnaflóa og klippir miskunnarlaust alla sprota sem dirfast að kíkja upp fyrir þakið. MYNDIR OG TEXTI: ÓHT þeim. En þegar Þorsteinn og Kristín eign- uðust Gamla spítalann 1950, er nýja sjúkra- húsið var tekið í notkun, var aðeins eitt tré á lífi, — allir ribsberjarunnar, mannhæðar hátt birki og reynir útdauð meðöllu. Garðurinn er á annað þúsund fermetrar að stærð og hluti hans var á sínum tíma fjórskiptur kartöflu- garður. Þorsteinn hefur barist nær vonlausri baráttu við náttúruöflin i birkirækt, hent jafnmörgum hríslum árlega og hann setur niður. En nú hefur brekkuvíðirinn sannað ágæti sitt og Alaskavíðirinn spratt um hálfan annan metra sumarið 1984. Hjónin rækta engin blóm að ráði, en kaupa sumarblóm og setja niður nokkra lauka. Þorsteinn G. Húnfjörð er fæddur í Ólafs- firði, en ólst upp á Blönduósi. Hann rak Blönduósbakarí 1950-65, var þá 3 ár á Akureyri, en stofnaði Brauðgerðina Krútt á Blönduósi að því loknu. Nafnið er svona til komið: Þegar hann var eitt sinn sem oftar að puða í jarðvinnslu við grunn í garðinum snemma á sunnudagsmorgni var Kristínu nóg boðið og sagði: ,,Það mætti halda að eina krúttið þitt væri þarna úti. “ Og þar með var nafnið fræga fundið. Nú hefur Þorsteinn 15 manns í vinnu og selur mikið um Vestur- land, Norðurland og til Reykjavíkur. Fyrir- tækið byrjaði í 60 m2 húsnæði, en er nú í um 500 m2. Fyrrum líkhús spítalans er skrif- stofa Þorsteins og skurðstofan er eldhús Húnfjörð hjónanna. Kristín er fædd á Dagverðareyri, en bjó víða í æsku. Hún er dóttir Jóa norska, sem kallaður var. Jóhann Daníel Bjarni var þó rammíslenskur, en bjó nógu lengi í Noregi til að fá viðurnefnið og koma heim með norska eiginkonu. Kristín er búin að vinna í bakaríinu í 30 ár ásamt manni sínum, og þar er byrjað klukk- an hálf fjögur að morgni virka daga, en um helgar er bakað frá því kl. 8 á sunnudags- kvöldi til 6 um morguninn, fyrir sendingarnar út um land á mánudagsmorgni. Veturinn 1984-85 er sá fyrsti sem aldrei hefur verið felld niður ferð vegna færðar frá því 1950. Þorsteinn og Kristín eiga 5 börn: Kára, Óskar, Soffíu, Hafdísi og Ebbu, en barna- börnin eru að nálgast tuginn.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.