Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1988, Qupperneq 25

Heima er bezt - 01.03.1988, Qupperneq 25
að heita mátti að þeir fylgdu honum allan ársins hring. Gráni var mjög vitur og gætinn í öllu og óhætt að treysta honum í hvívetna. Stæði hann inni við stafn í húsi sínu þegar komið var að og reka átti út, var rétt að vera vel á verði með veður þann dag, þó gott væri að morgni. Ef hann aftur a móti stóð við hurð er opnað var, þurfti ekki að óttast veður, þó útlit væri hið versta. Varla trúi ég því að komið hefði svo svartur bylur, að Gráni hefði ekki ratað til húsa, og þegar svo stóð á var hann duglegur að kafa ófærð, og tók þá ætíð forustuna að sér. Það var eitt sinn á þorra, að ég hafði beitt sauðunum í 4-5 daga uppi á dal fyrir ofan bæinn. Vár hörð skel á snjónum á láglendi, en rifajörð til fjallsins þar sem ég hafði beitt sauðunum. Meitilfæri var hið neðra, svo að hvergi brotnaði undan fæti og ekki heldur ófærð í fjallinu. Ég fór í fyrra lagi til sauðanna þennan morgun til að reka þá á jörð, því veður var hið besta, en þeir voru hýstir vegna hættu við sjóinn. Þegar ég kom í húsið stóð Gráni inni við stafn og þrýsti sér sem fastast að veggnum. Leist mér ekki vel á þessar tiltektir hans, en dreif hann þó út í góða veðrið. En það þótti mér athyglisvert, að þegar hann kom út, tók hann strax á rás þá leið, sem ég hafði rekið sauðina undanfarna daga. Svo hraðstígur var hann, að brátt hafði hann halarófað allan hópinn. Þegar hann var kominn miðja vegu milli fjalls og fjöru, fór hann þvert af leið og stefndi í norðvestur inn með fjallinu. Kallaði ég til-hans í höstum róm og hefi kannske sagt eitthvað ljótt. Skeytti hann því engu. enda datt mér þegar í hug að láta hann ráða öllu í dag, því að víst mundi hann nú gruna eitthvað, sem mér var ekki ljóst. Stansaði Gráni ekki fyrr en á svonefndri Þverurð, en hún er uppi undir fjalli mitt á milli Beruness og Þernuness og í landi hinnar fyrrnefndu jarðar. Þarna var allgóð rifjörð og dreifðu sauðirnir fljótt nokkuð úr sér. Um hádegisbil fór að dimma í lofti nokkuð sviplega. Hætti þá Gráni alveg að líta í jörð, en gekk upp á litla hæð. Stóð hann þar og virtist mér sem hann hefði gætur á öllu. bæði lofti og jörð. Var nú farið að hrjóta snjór úr lofti og dimmdi óðum að með éli. Allt í einu hentist Gráni ofan af hæðinni, líkt og hundur hefði hlaupið í hann. Verkaði þetta viðbragð hans þannig á hina sauðina, að þeir hlupu saman í harðan hnapp utan um hann. Á sama augnabilki að heita mátti brast á iðulaus stór- hríð. Hottaði ég nú á hópinn og þurfti nú ekki að eggja Grána. Hann tók þegar forustuna með stefnu á beitarhúsið og sauðina í hóp á eftir sér. Fór hann nú að engu óðslega og mátti vel sjá, að hann gætti þess að ekki slitnaði sundur hópurinn. Sá ég nú ekki eftir því að hafa lofað Grána að ráða um morguninn hvert farið var. Nú var heldur undan veðri að sækja, en ef ég hefði ráðið hvert farið var, hefði það verið að mestu í fangið. Hefði það orðið mjög harðsótt, þótt tekist hefði máske að lokum. Húsinu náðum við eftir eðlilegan tíma, því ferð okkar gekk vel sem mest var Grána að þakka. En ekki þurfti að þvinga hann í hús að þessu sinni, enda varð úr þessu tveggja daga hríð og innistaða. Margar fleiri sögur gæti ég sagt af vitsmunum Grána, en sleppi því hér. Þetta nægir sem sönnun þess, að ýmsar skepnur hafa oft til að bera meiri hyggindi en við menn- irnir. VII Oft hefi ég séð þess ótvíræð merki að hrafnar eru vitrir fuglar. Þau kynni rttín af þeim hafa oft verið byggð á lítt vinsamlegum viðskiptum, en einkum á ýmsu sem gerst hefir er ég hefi af einhverjum ástæðum sókst eftir lífi þeirra. Eitt sinn hefi ég þó bundið vináttu við krumma og skal nú hér stuttlega frá því sagt. Það var eitt vor á Þernunesi að hrafninn lagðist mjög á lömb og drap á sauðburði, en slíkt kom oft fyrir þar. Kvað svo rammt að þessu að ég og Eðvarð bróðir minn, sem þá var um tvítugt. lögðum af stað með byssu í hönd til að leita hreiðurs hans. Fundum við það uppi í fjalli. Skaut Eðvarð krummahjónin og gat klifrað svo nærri hreiðrinu, að hann gat rótað því niður með byssukrassanum. Þrír ungarnir meiddust í fallinu og drápum við þá, en hinn fjórði var ómeiddur og tókum við hann heim og hugðumst veita honum fóstur. Móðir mín, sem var mikill dýravinur, tók hann að sér er heim kom. Varð hann strax hændur að fólkinu. fór ágæt- lega fram og gekk án feimni eftir mat sínum. Át hann allt sem fram var reitt, ef það bara var úr dýraríkinu. Krummi kom sér vel og varð brátt allra vinur á heimilinu. Hann tók sér aðsetur á þurrkhjalli (lausahjalli) að bæjarbaki. Þar settist hann að kveld hvert kl. 7 og var úrillur og amasamur, ef nokkur ónáðaði hann þar. Eftir að hann varð vel fleygur, fór hann ætíð úr hjallinum kl. 4 að morgni. Fór hann þá til næstu bæja og gerði sig á ýmsan hátt heimakominn þar, en fyrst lengi öllum að meinalausu. Þegar krummi fékk mat sem honum þótti sérstaklega góður, var hann vanur, er hann hafði étið nægju sína, að safna í kok sér eins og hann kom fyrir og fljúga í burt með það. Faldi hann það síðan einhvers staðar, t.d. í holu í vegg, undir steini eða torfublaði, o.s.frv. Kom hann svo að vörmu spori og heimtaði meira. Það sem hann faldi át hann svo, þegar hann þóttist þurfa, en alltaf fannst okkur sem hann reyndi þá að láta ekki neinn sjá til sín. Glysgjarn var krummi og hætti til að stela öllu er hann sá fallegt, t.d. ef hengd voru út föt, einkum kvenföt með næl- um í, plokkaði hann þær úr af hinni mestu lægni og flaug með í burt. Aldrei flaug hann með það nema stuttan spöl í einu, en lét eltast við að ná því, alveg eins og ódæll og stríðinn krakki. Fyrir kom einnig að hann elti gesti sem fóru frá okkur ef þeir báru á sér eitthvert skart. Reyndi hann að ná því af þeim. Helst voru þetta húfuprjónar eða nælur kvenna. Kom fyrir að við þurftum að fara til og hjálpa, því að margir eru hræddir við krumma. Ef gluggi stóð opinn og krummi sá eitthvað í honum sem freistaði hans, var hann fljótur að renna sér að og grípa það, en fór aldrei inn um opinn glugga. Miklar og margbreytilegar voru þær radd- Heima er bezt 97

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.