Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1988, Qupperneq 29

Heima er bezt - 01.03.1988, Qupperneq 29
MAGNÚS GUÐMUNDSSON, Reyðcirfirði: Af forystu- Gránu °g afkomendum hennar Tilefni þess, að ég tek mér penna í hönd, og rifja upp minningar um for- ystufé er sú, að forystukind, sem ég kynntist, hagaði sér að einu leyti öðruvísi en þær, sem ég hef lesið um. Á unglingsárum gætti faðir minn sauða frá Steinum í Borgarfirði vestra, fylgdi þeim í haga og stóð yfir. Hetju- sögur. sem hann sagði af forystu- sauðunurri urðu mér ógleymanlegar. Því varð ég fljótt upptekinn af hegðun forystu-Gránu. Fjárhúsin stóðu á hól í Vallanes- túninu. Oft var þýft gljálendi á leið fjárins í hagann. Grána fór á undan, en rann ekki hratt. Pabbi stóð á hóln- um, og benti henni á hvaða leið var best að rekja. Hvernig hún GAT FYLGST með bendingum hans, er mér hulin ráðgáta. En kæmi fyrir að pabbi kallaði til hennar nam hún staðar og leit til baka. Þá var gefið mál, að hún þurfti að taka á sig stóran krók. En hvorki brást henni skilningur né hlýðni. Annar þáttur í frásögn minni af Gránu er tengdur sláturfjárrekstrum til Reyðarfjarðar. Meðan Grímsá var óbrúuð, var það hlutverk Gránu að fara fyrir fé Vallanesbænda austur yfir ána. Hinir bændurnir áttu gott forystufé. En Grána var eina forystu- kindin, sem lét svo vel að stjórn, að alla fyrirhöfn sparaði. Stundum var grunnt á vaðinu, þar sem féð var rekið yfir. Grána rann alltaf þá leið, sem til var ætlast. Ef hópurinn slitnaði, kom Grána til baka ótilkvödd og sótti féð, sem eftir stóð. Ég man ekki til, að til hennar þyrfti að kalla. Sama má um segja, þegar svo við bar, að ófært var talið að reka yfir á vaðinu, en féð sundlagt, þar sem straums gætti lítið. Þriðji þáttur Gránuminninga verð- ur um veðurskyn hennar. Væri góð- viðri framundan, stóð hún fram við dyr, þegar hleypt var út, en innst í kró, væri óveður í aðsigi. Slík hegðun for- ystufjár er alkunn. Nú kemur að því að lýsa hvað gerðist, þegar pabbi hélt að Grána væri helsjúk. Blíðviðri var, en Grána fékkst ekki út. Hún stóð hnípin innst í kró og mjakaðist ekki, þótt við henni væri stuggað. Pabbi rak féð austur á Grímsárbakka. Tvær léttrækar dætur Gránu, sem ætíð fylgdu henni fast, runnu nú á undan. Þegar pabbi kom heim frá rekstrin- um, snéri hann sér beint að því að vitja um Gránu. En um leið og hann opnaði fjárhúshurðina rauk Grána út og hélt spretti í slóð hjarðarinnar. Það glaðnaði yfir pabba vegna svo skjóts bata hjá Gránu. Um þetta var rætt í eldhúsinu meðan pabbi sat þar, og fékk sér kaffisopa. En ekki hafði hann lokið úr bollanum, þegar á var skollin norðvestan stórhríð. Hann bjó sig í skyndi út í slíkt veður, og hugðist freista þess að ná fénu heim, eða koma því í hlé við Bakkahúsatæftur. Sú ferð varð ekki löng. Grána var komin heim með allt féð, sem nú stóð í skjóli við fjárhúsin. Fleira vel ég mér ekki til frásagnar um Gránu eina. Hér eftir koma niðjar Heima er bezt 101

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.