Heima er bezt - 01.10.1993, Blaðsíða 9
Þessi mynd er tekin í göngugötunni fyrir framan
barinn, en þar er oftast maður við mann þegar
kvölda tekur yfir háannatímann
leit að vinalegum bar. Þess vegna var barinn fáan-
legur á skikkanlegu verði. Við seldum íbúðir sem
við áttum heima og tryggur frændi lánaði okkur
það sem upp á vantaði. Og við keyptum barinn.
Karlinn sem seldi okkur varð svo feginn að losna
við barinn að hann bauð allri götunni í kampavíns-
veislu. Núna veit ég að hann
væri tilbúinn að slá upp
annarri enn stærri veislu ef
hann gæti náð barnum af okk-
ur aftur,“ segir Bára með
stolti.
Já, þær systur veðjuðu þarna
á réttan hest. Stuttu eftir að
þær keyptu barinn ákváðu
stjómendur bæjarins að breyta
miðbænum í göngusvæði og
barinn þeirra Jóhönnu og Báru
lenti við hjarta þess miðbæjar-
kjarna. Þær systur gerðu bar-
inn nýtískulegri og fyrr en
varði lá straumurinn til þeirra.
,,Kollegar okkar hér í göt-
unni urðu æfir til að byrja
með, sögðu ótækt að einhverj-
ar stelpugálur ofan af Islandi
væru að reka hér bar, kölluðu
okkur mellur og öllum illum
nöfnum,“ segir Jóhanna og
verður greinilega fokill þegar
hún hugsar til þessa tíma.
,,Já, já, þeir spunnu upp alls
konar sögur um okkur til að
koma á okkur höggi,“ bætir
Bára við. ,,Þeir létu að því
liggja að við tældum til okkar
viðskiptavini með vafasömum
hætti og kaupin hefðum við
örugglega fjármagnað með
hórmangi. En núna hafa þeir
tekið okkur í sátt, blessaðir, og
bareigendur hafa myndað með
sér samtök. Þar erum við Jó-
hanna einu konumar.“
Gamla fólkið grœtur liðna tíð
Það hefur orðið bylting í Portúgal á liðlega ára-
tug og þeir innfæddu eru ekki alveg sáttir við þessa
þróun. Þetta á ekki hvað síst við um Algarve, þar
sem ferðamannaflóðið hefur gert suma ríka en aðr-
ir standa uppi jafnfátækir og áður, jafnvel fátækari.
Það er til dæmis ekki óalgengt að starfsfólk á hót-
Heima er bezt 329