Heima er bezt - 01.10.1993, Blaðsíða 20
an ég var þar, en það hafði þá legið
niðri um tíma.
Það var stórkostleg sjón að sjá
hraunið steypast niður í holskefl-
um og mynda glóandi hraunteppi
yfir hraunkragann í kringum gíg-
inn.
Ekki man ég nákvæmlega hvenær
ég fór næst út í eyjuna en tel þó lík-
legt að það hafi verið í mars.
í þá ferð fór ég með Osvaldi
Knudsen sem var mikill áhuga-
maður um eldgos og greip hvert
tækifæri sem gafst til að komast í
návígi við þau.
Hann náði stórkostlegum myndum af gosum fyrir
einstaka elju því hann eyddi ekki tímanum í að
hugsa um tæknileg atriði heldur myndaði þegar
eitthvað var að sjá.
Osvaldur var einstakur ljósmyndari og mikill
listamaður í þeirri grein.
Hraunelfur úr gígum Surtseyjar í ágúst 1966.
í baksýn sést Jólnir og efmyndin prentast vel má
sjá þýskt skólaskip sem lónar við eyjuna. Gígurinn
til hægri er sá sem lengst gaus í eyjunni.
Ævar Jóhannesson og Karl T. Sœmundsson staddir
í Surtsey í október 1993.
Svaðilfarír í Surtsey
Það var síðan þann 19. ágúst 1964 að ég lagði í þá
ferð til Surtseyjar sem mér er minnisstæðust fyrir
margra hluta sakir.
Ferðafélagi minn var góður vinur minn, Jón
Þórðarson framleiðslustjóri á Reykjalundi.
Jón er þekktur fyrir uppfinningar sínar en líklega
vita færri að hann er mikill áhugamaður um Ijós-
myndun og hefur tekið margar ágætar myndir og
meira að segja málað einnig.
Við Jón ákváðum að gera út leiðangur í Surtsey
og vera þar yfir nótt.
Ætluðum við að fara á þeim árstíma að ekki væri
mjög kalt um nætur því við höfðum heyrt af mönn-
um sem voru tæpt komnir eftir næturlanga veru
þar.
Þegar við Jón lögðum af stað var veður einmuna
gott og veðurspá eins og best verður á kosið, hæg-
ur norðaustanandvari og heiðskýrt.
Samkvæmt spánni átti að vera auðvelt að komast
frá eyjunni daginn eftir.
Við leigðum okkur bát sem flutti okkur út í Surts-
ey og gekk sjóferðin vel.
Þegar við komum í land fórum við strax að skoða
okkur um og mynda gosið.
Þá gaus úr einunt gíg en í honum var hrauntjörn á
annað hundrað metra breið, eins og pottur í laginu
340 Heima er hezt