Heima er bezt - 01.12.1994, Qupperneq 5
Breiðaf j ör ð
Þó að ég sé fæddur árið 1921, er það svo að jóla-
minningar mínar virðast tengjast mest árunum 1930
til 1935 og veru minni að Hvalgröfum (Gröfum) á
Skarðsströnd, sem á þeim tímum var afar afskekkt
sveit við innanverðan Breiðafjörð.
Eg tel mig ekki muna nein einstök jól heldur rennur
þetta allt saman í eina heild, svo að úr verður sam-
ræmd minning og það er þessi minning sem mig
langar til að koma hér fyrir augu ykkar.
Þó að einhverjir telji að það geti varla hafa orðið
miklar breytingar á jólahaldi hérlendis á tæpum sex-
tíu árum, þá er veruleikinn sá að það er slíkur munur
á þeim jólum sem haldin voru hátíðleg í afskekktri
sveit þess tíma og þeim sem nú eru haldin hér og
auðvitað á það mest við um þéttbýli nútímans, að
erfitt er að koma þessum mun vel til skila án umtals-
verðra skýringa.
Því miður verður að segja það eins og það er, að
unga fólkið þekkir ekki lífskjör þess fólks sem lifði
hér fyrir 55-60 árum úti á landsbyggðinni. Þetta segi
ég ekki til þess að kasta rýrð á unga fólkið, heldur
sem staðreynd þess að það hafi ekki haft tækifæri til
þess að kynnast sögu þessa fólks, meðal annars
vegna samvistaslita við eldra fólkið, því miður.
Þessi formálsorð læt ég nægja pistli mínum og hef
hér frásögn mína.
Heima er best 397