Æskan

Árgangur

Æskan - 15.12.1937, Blaðsíða 9

Æskan - 15.12.1937, Blaðsíða 9
1937 Jólabók Æskunnar 7 Séra Magnús Helgason áttræður Eftir M argréti Jónsdóttur Sci'íi Magnús Helgason er áreiðanlega sá núlifandi íslendingur, sem æskulýður íslands á einna mest að þakka. Hann varð áttræður 12. nóv. síðastliðinn. Æsk- unni er því bæði ljúft og skylt að minnast hans og þakka honum á þessum merku tímamótum, þótt eigi geti það orðið nema í stuttu máli. Fyrir tíu árum, eða þegar séra Magnús varð sjötug- ur, flutti Æskan grein um hann, en vegna margra nýrra lesenda, þykir rétt að geta helstu æfiatriða hans eirin- ig nú. Magnús Helgason er fæddur að Birtingaholti í Hrunamannahreppi 12. nóvcmher 1857. Og þar ólst hann upp hjá foreldrum sínum, miklum rausnar og merkishjónum, í stórurn systkinahópi. Voru þau Birt- ingaholtssystkini öll mjög mannvænleg, svo að við er brugðið, enda fengu þau óvenjulega gott uppeldi. Voru hræðurnir settir til mennta, og hafa þeir allir, er full- orðins aldri náðu, orðið þjóðkunnir merkismenn. Séra Magnús gekk fyrst í Latinuskólann og síðan í prestaskólann. Hann vígðist prestur árið 1883 að Magnús Helgason átlrœáur Breiðabólstað á Skógarströnd. En þaðan fluttist hann eftir tvö ár að Torfastöðum í Biskupstungum og var þar prestur í 19 ár. Þá lét hann af prestsskap og gerðisl kennari við Flensborgarskólann í nokkur ár. En árið 1908 var Kennarasltólinn í Reykjavík stofn- aður. Var séra Magnús þá fenginn til að veita honum forstöðu. Lítur út fyrir, að þar hafi hollvættir íslands verið að verki, því að betri mann til þess að stjórna hinum nýstofnaða kennaraskóla var áreiðanlega ekki unnt að finna. Séra Magnús gegndi skólastjórastörfum við Kenn- araskólann í rúm 20 ár, eða fram til ársins 1929, en þá lét hann af embætti, sjötugur að aldri. Séra Magnús kvæntist árið 1882 Steinunni Skúladóttur, hinni mestu ágætiskonu, er hún látin fyrir 8 árum. Séra Magnús Helgason var svo ástsæll, bæði sem prestur og kennari, að frábært má teljast. Og með hin- um hollu og göfgandi áhrifum sínum, ckki hvað síst sem skólastjóri Kennaraskólans, hefir hann unnið þjóð sinni og þá einkum hinni uppvaxandi æsku í landinu, meira gagn en flestir aðrir. Séra Magnús hefir hlotið margskonar viðurkenningu fyrir störf sín. Meðal anriars hefir hann verið sæmdur prófessors nafnbót. Á áttræðisafmæli hans var afhjúp- að líkneski af honum og konu hans, í Stúdentagarð- inum. En séra Magnús hefir gefið Háskólanum hóka- safn sitt, sem er bæði inikið og gott. Við þetta tæki- færi flutti Ásgeir Ásgeirsson, fræðslumálasjóri, ræðu. Lét hann þá svo um mælt, að hann teldi séra Magnús Helgason glæsilegasta, núlifandi fulltrúa þeirrar menn- ingar, sem hófst hér á landi með kristnitökunni árið 1000, en lauk um eða eltir heimsstyrjöldina 1914—1918. Og ennfremur, að liann væri á þeirri stundu vinsæl- asti Islendingurinn, sem nú væri uppi. Þetta er mikið sagt, en eg hygg, að það sé alveg rétt, og að engu leyti ofmælt. Eg er ein þeirra, er átti því láni að fagna, að vera nemandi séra Magnúsar Helgasonar, og hefi eg ekki kynnst neinum manni, er væri betri, göfugri og gáfaðri en hann. —- Ef til vill gefst mér síðar kostur á, að segja lesendum Æskunnar frá því, er eg sá og heyrði Magnús Helgason í fyrsta skipti, en þá var eg telpa um fermingu. En nú verður þetta að nægja. Séra Magnús Helgason! Æska íslands færir þér hjartans þakkir og innilegar árnaðaróskir! Ástarkveðju og ástarþakkir, áttræði öldungur, eg vil þér færa. Lifa og vaka í vitund þjóðar, afreksverk þín, meðan ísland stendur. Æskulýð íslands eg óska vildi, áð margir í spor þín mættu feta, þá yrði framtíð þjóðar minnar fögur og hrein sém ferill þinn. ☆ #☆

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.