Æskan

Árgangur

Æskan - 15.12.1937, Blaðsíða 10

Æskan - 15.12.1937, Blaðsíða 10
8 jólabók Æskunnar 1937 Sveinn hafði unnið kappsundið, er gagnfræðanemarnir í Tobæk þreyttu með sér, og vakti það ým- ist aðdáun eða gremju meðal skóla- bræðra hans. Þeir voru að vísu miklu fleiri, er dáðust að honum og litu svo á, að hann væri mesti íþróttamaður skólans, og sjálfkjör- inn foringi, þótt hann á stundum væri nokkuð ráðríkur og einþykkur. Þannig var Sveinn orðinn. Heppni hans og dugnaður hafði gert hann að hálfgerðum harðstjóra. Hann þoldi ekki, að nokkur meðal drengj- anna væri sér fremri, eða stæði sér jafnfætis. Hann vildi ávallt vera fremstur allra. Þetta var ástæðan til þess, að nokkrir drengjanna gátu ekki glaðst yfir þessum nýja sigri Sveins. Þeir óttuðust, að sigurinn yrði til þess að gera hann ennþá dramblátari og drottnunargjarnari en áður. En þetta voru, eins og áður er sagt, aðeins fáeinir drengir, og þeir héldu ekki sérstaklega saman, en hugsuðu þannig hver með sjálfum sér. Leifur var einn þeirra. Hann var fátækur fiskimannssonur. Foreldr- ar hans urðu að leggja hart að sér til þess að geta stutt hann til náms, og ókeypis skólavist hafði hann. Leifur hafði orðið fyrir sárum

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.