Æskan

Volume

Æskan - 01.07.1963, Page 7

Æskan - 01.07.1963, Page 7
ÆSKAN Verðlaunagetraunin, sem birtist í 4- tölublaði Æskunnar með myndum þeim Jan og Kjeld, hefur orðið mJög vinsæl, því alls bárust 963 ráðn- ötgar. Af þeim voru 825 réttar. Dreg- yar um, hverjir skyldu hljóta verð- launin. Nöfn þessara komu upp: ®^nar Kr. Guðfinnsson, Bolungarvík, "^orðiir-ísafjarðarsýslu, Ingibjörg Sig- 'aldadóttir, Barði, Miðfirði, Yestur- Húnavatnssýslu, Sig. G. Hilmarsson, ''nðuigötu 62, Siglufirði, Anna Gests- úóttir, Aðalstræti 74, Patreksfirði og ^’Uðný Ólöf Jónsdóttir, Hóli, Tjör- nesi» Suður-hingeyjarsýslu. Rétt svar. Verðlaunin verða send til verð- Iaunahafa nú á næstunni. Hann elskaði rósir. Neró lieisari elskaði rósir. Heima hjá sér bar hann alltaf kórónu, sem húin var til úr nýjum rósum. í svefnlierberg- inu átti alitaf að liggja rósa- ábreiða á horðinu og yfir gólf- ið, jafnframt því sem sessur og dýnur voru fylltar með rósa- blöðum. Læknir hans leitaðist við að láta meðul keisarans ilma af rósum. Annars vildi Neró ekki taka þau inn. Loksins tókst lioiium að komast upp um lestarlúguna. ^aginn áður. Það skyldu þó aldrei vera rottur í lestinni? ei kilegt, að ég skyldi aldrei liafa orðið var við þær fyrr. g ‘estu nótt þorði ég varla að halla mér út af til að sofna. g hafði sett kassann með kexinu við hliðina á mér til reyna að verja hann fyrir rottunum. Ég lá grafkyrr, I egar ég fann allt í einu, að stóreflis rotta skreið yfir ruagann á mér. Ég greip hana í hendingskasti, og aldrei shal ég gleyma urrinu í henni þá. Áður en ég vissi af, ^ u hún höggvið nagtönnunum í handarbakið á mér. g skrækti hátt af hræðslu og hrökk upp. Leið mér ekki Vei við þá tilhugsun, ef rotturnar tækju upp á því að éta mig til agna meðan ég svæfi. Nú þorði ég ekki að loka augunum framar. Ég hafði brotið fjöl af kassanum, og með hana að vopni reyndi ég að halda rottunum frá mér, en þær urðu sífellt nærgöngulli. Þær bitu mig hvað eftir annað, og mig logsveið í sárin. Siðasta kexkakan var etin, ég var orðinn magnþrota af svefnleysi — ég örvænti um líf mitt. Hvað átti ég að gera? Áður en ég legði árar í bát ætlaði ég að reyna að klifra svo hátt upp sem ég kæmist. Spurningin var, hvort vörustaflarnir næðu svo hátt upp, að ég gæti komizt upp að þilfarinu. Þetta var erfitt og mesta hættuspil, því að ég gat alltaf búizt við að hrapa eða þá að eitthvað dytti ofan á mig. Loks tókst mér þó að komast upp að lestarlúgunni, og ég sá aðeins móta fyrir ljósrifu. Ég barði með hnefunum í lúguna eins og vitskertur maður, og augnabliki síðar var lúgan opnuð og birtan streymdi inn. Ofbirtan blindaði mig, og þegar ég kom upp á þilfarið, reikaði ég og datt, svo rnátt- farinn var ég orðinn eftir fangelsisvistina. Þegar ég raknaði við mér aftur, stóð öll skipshöfnin í kringum mig og glápti á mig eins og einhverja furðu- skepnu. Þegar ég sá mig síðar í spegli, gat ég betur skilið, að þeir gláptu, því það var eymdarsjón að sjá mig, ná- bleikan og skinhoraðan og skítugan. Skipstjórinn hellti í mig heitri rnjólk, svo að ég hjarnaði við, og síðan sagði ég honum sögu mína. Það er víst sjaldgæft, að stroku- fangi fái eins alúðlegar viðtökur og ég fékk, því það var farið með mig eins og konungsgersemi. En löngun mín eftir sjónum hafði horfið svo eftirminnilega við ferða- lagið í lestinni, að ég valdi mér landvistina eftir það. Þegar ég loks kom heirn aftur, kvaddi ég skipshöfnina með virktum og hélt heim til móður minnar til að fá strýkinguna, sem ég hafði unnið svo vel til.“

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.