Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.07.1963, Qupperneq 36

Æskan - 01.07.1963, Qupperneq 36
1. Hér er enginn götuslóði, og þokan er svo þykk, að ekki sér fram úr nug- um. Hér er aðeins eitt að gera, ganga undan brekkunni og komast niður i dai- inn áður en dimmir meira. — 2. Bjössi kjagar áfram og krækir sig fastan i steina og smákjarr. Allt i einu heyrist jarm í geithafri, og Bjössi verður held- ur en ekki feginn og biður í hljóði geit- hafurinn að visa sér nú veginn. — 3. Geithafurinn skoppar á undan Bjössa, en allt i einu standa þeir frammi á klettasnös. Ekki lízt Bjössa á blikuna, en geithafurinn hikar ekki heldur stekk- ur yfir á grænan bakka iiinum megin. — 4. Bjössi mælir fjarlægðina með aug- unum. Nokkuð á annan metra, hugsar iiann. Fyrst geithafurinn gat ]>etta, ætti mig ekki að muna mikið um það. Hann stekkur, en nær ekki brúninni og hrapar. Hann lokar augunum og býst við dauða sínum. — 5. En ferð hans í tóminu verður ekki löng, því áður en varir lendir hann á mjúku grasi. Bjössi hefur lent á kofaþaki, og það rýkur neistaflug úr reykháfnum. Allt i einu tekur Bjössi el'tir því, að það er ein- mitt pokinn hans, sem veldur þessu neistaflugi, ]>ví í fallinu hafði pokinn lent heint niður i reykháfinn. — 6. Bjössi togar af öliu afli í pokann, en nær honum ekki upp. Ef þú vilt ekki upp, ]>á skaltu niður, tautar Iiann við pokann, og pokinn fellur niður með miklum dynki. I>á heyrast mikil Iiróp neðan úr kofanum, og út um dyrnar kemur æðandi gráskeggur einn, all gust- mikill. 208 Eigandi þessa blaðs er:

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.