Æskan - 01.11.1987, Side 11
LJÓÐASKRÁ
Sr. Friðrik Friðriksson:
ÆSKUDRAUMUR
Lítll drengur léttur og frár
leikur sér um völl.
Hann er eftir aldri knár
og orkustór þótt sé hann smár
og fýsir að ganga á fjöll.
Glaður drengur og léttur í lund
leikur sér um völl.
Hann hræðist ekki hamrasund
og hyggur að sækja á vættafund
og berjast við bjargatröll.
Ljúfur drengur með Ijósa brá
leikur sér um völl,
er smiður kænn og kann að sjá
í konungsstól sé hægt að ná
og byggja sér háa höll.
Lítill drengur svo Ijúft og dátt
leikur sér um völl.
Hann setur sér mark sitt mikið og hátt
sem mundi honum aldrei kraftafátt
að vinna sér veldin öll.
Lítill drengur með Ijósa kinn
leikur sér um völl.
á sæfarir hyggur sveinninn minn,
að sigla á dreka er stormurinn
sér leikur við lagarföll.
Svo líður bernska og líður tíð
og leikir hætta um völl
og brött verður leið um hamrahlíð.
En hæsta tindi hann nær um síð
ef hjartað er hreint sem mjöll.
Svo líður æska svo líður stund,
leikir hættta um völl.
Ef hátt hann stefnir með sterka lund
og styður sig fast við drottins mund
þá ógna engin tröll.
Hin Ijúfa æska líður brátt,
leikir hætta um völl.
Pótt eigi rísi húsið hátt
og hásœtið verði fremur lágt
þar verður hans hjartans höll.
Sr- Friðrik Friðriksson var þjóðþekktur fyrir störf að æskulýðs-
•nálum — en þeim helgaði hann alla krafta sína. Hann stofnaði
^FUM og var leiðtogi þess félags um áratugi.
Sr. Friðrik var ljóðskáld og mörg kvæða hans birtust í Æsk-
Unni, bæði meðan hann var ritstjóri, 1903-8, og síðar.
Á fimmtugsafmæli Æskunnar birtist í blaðinu ávarp frá Sr.
^riðriki. í lok þess segir hann:
»Þess vegna óska ég þess að þú eigir góða framtíð fyrir hönd-
um og eigir ennþá eftir að stækka og verða æ fallegri og ávallt
ung í anda. Þótt þú verðir 100 ára og þaðan af eldri óska ég þér
að þú verðir ætíð full af æskufjöri og hressandi hvöt til dugs og
dáða.
Haltu ætíð merkinu hátt fyrir fæddar og ófæddar kynslóðir ís-
lensks æskulýðs og veittu æ þeim ungu leiðbeiningu og hjálp til að
fylgja málefni Drottins, bindindis og siðgæða til heilla og ham-
ingju. Þess óska ég á hálfrar aldar afmæli þínu.“
11