Æskan

Árgangur

Æskan - 01.11.1987, Blaðsíða 29

Æskan - 01.11.1987, Blaðsíða 29
Á Bolungarvík 17 MÖRK í EINUM LEIK! Agnar Ásbjörn, Hálfdán og Friðrik Öolvíkingar hafa í sínum röðum ágætt sundfólk. Þeir geta líka verið stoltir af Því að eiga unga og efnilega knatt- sPyrnumenn. Blaðamaður Æskunnar komst að því þegar hann ferðaðist um ^estfirði í sumar. Friðrik Árnason er markvörður hjá flokki UMFB, Ungmennafélags Bol- ungarvíkur. Hálfdán Daðason er tengi- liður í sama liði en Agnar Ásbjörn Guð- Oiundsson er í framlínunni. Liðinu hef- Ur gengið vel í sumar, vann m.a. ís- flrðinga 3-1, sem þykir góður árangur eu tapaði seinni leiknum, 2-0. Strák- ornir segja að það sé skemmtilegast að s*gra ísfírðinga af öllum liðum. Mesta s,gur, sem þeir hafa unnið á öðru félagi, unnu þeir í fyrra á Patreksfirðingum. Loik þeirra lyktaði með því að Bolvík- lugar sendu andstæðinga sína 16 sinn- uni eftir boltanum í netið en fengu að- e,ns eitt mark á sig. í sumar sigruðu Þeir svo Þingeyringa, 9-1. 4. flokkur UMFB æfír tvisvar í viku. Agnar Ásbjörn á reyndar heima á isafírði en er hjá systur sinni á Bolung- 3rvík á sumrin. Hann er einn mark- hæsti leikmaður liðsins og hafði skorað ntark í öllum leikjum þess á þessu sumri nema einum þegar viðtalið var tekið. Hn hvemig leggst það í vini hans þeg- ar hann er að leika gegn þeim? „Þeir hafa gaman af því að stríða mér Þegar þeir vinna okkur,“ svarar hann. »Þeir segja þá kannski sem svo að ég v*ri betur kominn í liði þeirra." — Er einhver rígur á milli staðanna? »,Svona dálítill.“ — Líkar þér betur að vera hérna á Sumrin en heima á ísafirði? »,Já, hér er skemmtilegra. Krakkarn- lr eru félagslyndari." Agnar Asbjörn starfaði í bæjarvinn- unni á Bolungarvík í 4 vikur í sumar og líkaði vel. Hann getur hugsað sér að dveljast þama í fleiri sumur enda á hann orðið jafnmarga vini á báðum stöðum. 121 kr. á tímann Hálfdán var líka í bæjarvinnunni. Hann segir að þeir hafi haft 121 krónu á tímann. Starfið fólst í að hreinsa til, tína msl og tyrfa. Hann lagði mestallt kaupið sitt inn á bankabók en er ekki búinn að ákveða í hvað hann eyðir því. Þegar hann er spurður hvort hann eigi einhverja draumaprinsessu á Bol- ungarvík svarar hann neitandi. Að minnsta kosti vill hann ekki tjá Æsk- unni það. Friðrik fæddist á ísafirði eins og svo margir Bolvíkingar en hefur átt heima á Bolungarvík alla tíð. í sumar vann hann við að afgreiða bensín. „Þetta er lítið spennandi starf til lengdar," segir hann okkur. „Afi minn rekur bensínstöðina og þannig fékk ég vinnuna. Ég vinn 8 tíma á dag og fæ 6000 kr. á viku. Vinnutíminn er frá 4 til 11 á kvöldin. Um kvöldmatarleytið fæ ég alltaf ókeypis Tomma-hamborgara í sjoppunni." — Ertu góður markvörður? „Ég vil ekki dæma um það sjálfur.“ Vinir hans grípa þá inn í og segja að hann sé víst góður, annars væri hann ekki í markinu hjá þeim. — Hlakkarðu til að byrja í skólan- um í haust? „Nei! Þá er stundum betra að vinna á bensínstöðinni.“ Að síðustu spyr blaðamaður strák- ana hvort þeir hafi ferðast mikið um Vestfirði. Þeir segja að svo sé ekki, — þeir hafi einkum ferðast í tengslum við knatt- spyrnuleiki. „En það kemur að því að við skoðum Vestfirðina betur,“ svara þeir. „Kannski þegar við erum sjálfir komnir með bílpróf." Það eru lokaorðin í samtalinu. 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.