Æskan

Árgangur

Æskan - 12.04.1901, Blaðsíða 2

Æskan - 12.04.1901, Blaðsíða 2
46 að svo fagurt, blítt og elskuvert andlit svo nærri sór, að hún stilti grátinn eins snögg- lega og hún hafði byrjað að gráta, og stalck óhreinu fingrunum sínum í löngu og hvítu liöndina, sem að henni var rétt. Því næst ■sagði hún í smá skömtum frá því, hvernig hún hefði fylgt eftir lúðraflokknum og að hún hefði síðan vilst, og að hún hefði heyrt þenna undraverða söng i gegnum gluggann og hefði staðið við til þess, að hlusta á hann. Hún gat ekki sagt frá því, hvernig hún hefði komist inn í húsið, af því, að hún mundi það ekki. En hún vissi það eitt, að hún kom til þess að finna sönginn. Áður en Sally hafði lokið sögu sinni, sat hún i knjám kvennengilsins með ann- an handlegginn utan um háls hennar, en hinn utan um dýi-mæta brauðið sitt. Fræga söngkonan og tötralega stúlkan, gátu undir eins skiiið hvor aðra, því þær elskuðu báð- ar hið sama mál, sem er tunga englanna, og sem við köllum söng. Það mundi taka oflangan tíma, að segja frá öllu því, sem Saliy hafði upp úr því, að heimsækja söngkonuna; hvernig hún og brauðið bennar voru flutt heim t.il hennar i- fallegum vagni, að söngkonan átti langt samtal við móður Sallyar, og að Sally var nokkru siðar send í skóla, til þess hún gæti lært töluvert um söng. Eftir margra ára slit og langvarandi þol- inmæði rann ioks sá dagur upp, þegar Sally var sjálf orðin mikil söngkona, og söng einmitt sömu söngvana og höfðu leitt hana til svo mikillar hamingju, en alla sína æfi söng hún þá þó aldrei án þess að minnast kvennengilsins velgjörara síns. Brunnur vitringanna. eftir Selmu Lagerlöf. Einu sinni endur fyrir löngu var kerl- ing inneyg og hörkuleg útlits á gangi á Gyðingaiandi, og fór yfir skrælnaða þistla og sviðna grasrótina. Fað var Þerrinornin, sem drepur allan jarðargróða, varnar rign- ingunni að koma úr loftinu, og breytir feg- ursta gróðurlandi í eyðimörk. I’etta var um sumar. Sólin skein á bera fjallatindana. Minsti vindblær þyrlaði þykkum kaikrykskýjum yfir skrælnaða jörð- ina; hjarðirnar höfðu hópað sig saman niður í dölunum kringum lældna, sem voru að þorna upp. Þerrinornin gekk um og gætti að vatns- birgðunum. Hún kom að Salómonsbrunn- uriutn og andvarpaði, því hún sá, að þar var enn töluvert af vatni niður í kletta- sprungunum. Síðan gekk hún að Davíðs- brunninum fræga við Betlehem, og fann vatnið einnig þar. Og svo gekk hún sila- lega eftir veginum, frá Betlehem til Jerúsa- lem. Þegar hún va.r komin nálægt rniðja vega kom hún auga á brunn vitringanna, sem er þar rétt við veginn. Brunnur þessi er úr einum steini, sem er holaður innan. Þerrinornin settist á barminn og horfði ofan í brurminn og sá þegar, að hann var rétt þornaður upp. Brunnurinn var vanur að vera nærri barmafullur, en nú sást að eins dálítil vatnsglæta, gruggug og græn af slimi í botni hans. Og það fór angistar- hrollur um brunninn, þegar hann sá skorp- na og veðurbarða andlitið f’errinornarinnar spegla sig í Jitla og gmgguga vatnsfletin- um.

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.