Æskan

Árgangur

Æskan - 29.05.1902, Síða 6

Æskan - 29.05.1902, Síða 6
66 ekki, því það kom í ljós, að þeir gátu ekki aliir komist fyrir í körfunni. Var hrúgað í hana öllum, er rúmast gátu, en þó urðu þrír að vera eftir unz, karfan kæmi niður í annað sinn. Yerkstjórinn bauðst þá til að verða eftir, en annar hinna var sá, sem hafði verið verstur við Jimrny Railstone. Yar hann afarhræddur, og kvartaði sáran yflr, að yrði hann eftir, mundi hann bíða hana af. Jimmy stóð í körfunni, og var húið að gefa merki um, að draga hana upp. Eiturloftið braust fram á ný, og var því lítil von um, að þeir þrír er eftir urðu, yrðu með lífi, þegar karfan kæmi ofan aftur. í sama bili hljóp Jimmy út úr körf- unni. „Bíðið örlítið!' kallaði hann upp, gekk að hinum óttaslegna manni og ýtti á hann upp í körfuna. Var tíminn svo naumur, að hann gat að eins sagt við hann: „Segðu henni mömmu, að eg gerði þetta guðs vegna“. Jimmy var örendur, þegar karfan kom ofan aftur. („Nordiak Bömeblad11). ------<^<x>------ Fágæt fóstra. Yeturinn 1709 var einhver hinn harðasti vetur, sem komið hefir í Miðevrópu. Fjöldi manns dó af kulda, ekki að eins úti á víða- vangi, heldur einnig á strætunum í borg- unum, inni í húsunum og jafvel í rúmun- um. Hversu mikið sem kynt var í ofnin- um, hitaði hann þó ekki herbergið þolan- lega. Þótt hann væri glóandi, botnfraus vatnið í þvottaskáiinni, sem stóð 6 álnir frá honum. Tré og kiettar klofnuðu, af þvi vatn, sem hafði safnast í sprungurnar, fraus. Smáfuglar, krákur og hrafnar duttu dauðir niður, og stórhópar af akurhænum fundust dauðar í snjónum. Hirtir og rá- dýr ráfuðu hálfdauð um á vegunum og jeituðu jafnvel hælis í húsum manna, og þegar voraði, fanst fjöidi af þeim dauður úti í skógunum. Stöðuvötn og tjarnir bornfrusu, og þegar ísinn þiðnaði, komu stórar hrannir af dauðum fiskum upp á yfirborð vatnsins, og lagði megna ódaun af þeim um vorið, er þeir tóku að rotna. Kornið, sem sáð hafði verið um haustið, vínviðurinn og ávaxtatrón eyðilögðust, og jarðarávextir og önnur matvæli skemdust af frosti, jafnvel þar sem hlýjast var. Þennan vetur bar svo við, að drengur einn frá Savoien var að hröklast um göturnar í bænum Luneville í Lothringen á Frakklandi. Hann átti engan að; foreldr- ar hans voru dánir, og bróðir hans, sem hingað til hafði verið einkatraust hans og athvarf, hafbi tekið að sér að flytja póst- sendingar til og frá bænum Nancy til að vinna sér inn með því nokkra franka; en eins og altítt var um ferðamenn það ár, hafði hann orðið úti, og var hann fluttur dauður heim aftur. Hversu vel sem ferða- mennirnir voru útbúnir og sveipaðir káp- um og ábreiðum, gátu þeir þó ekki varið sig gegn kuldanum. Stundum bar það við, þegar póstvagn kom að áfangastað, og eng- inn kom út úr honum, því bæði ökurnað- urinn og þeir, sem höfðu keypt sór far með honum, voru dauðir úr kulda. Yeslings munaðariausi drengurinn hafði dálítið að gera á daginn, að bursta skó og fleira, og margir þeirra, sem sáu hann á götunni, grátandi og skjálfandi af kulda, gáfu honum smápeninga. En á næturnar

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.