Æskan - 31.12.1902, Qupperneq 1
ÆSK AN.
VI. ÁRG.
Eignarrétt htfir
Stór-Rtúka Islnndfs (I. O. G. T.)
31. DES. 1902.
Rititjöri;
H j ú 1 tn a r Sigurðsson.
6.-7. TBL.
Gufuskip.
ARIÐ 1736 fæddist á Skotlandi drengur,
sem skírður var James Watt (les:
Djems Vott). Hann var af fátækum kom-
ínn og lifði mestan hluta æfl sinnar sem
fátækur verkmað-
ur. En honum er
þó að þakka ein
hin mikilsverð-
asta framför, sem
orðið hefir á síð-
ari öldum, því að
það var hann,
sem fyrstur fann
upp á því að nota
vatnsgufuna til að
starfa í þarflr
mannanna. Þetta
hafði að vísu ver-
ið reynt áður og
tekist að nokkru
leyti; en James
Watt endurbætti
svo mikið alt það
fyrirkomulag, sem menn^höfðu áður viðhaft,
að hann er venjulega talinn höfundur gufu-
vélarinnar.
James Watt ólst upp hjá frænku sinni,
og er þess getið, að eitt sinn, er hann var
í æsku, sat hann lengi við teborðið, niður-
sokkinn í að taka eftir, hvarnig vatnsgufan
í tekatlinum lyfti hvað eftir annað lokinu
af honum, og hvernig gufan varð að vatns-
dropum, er hún kólnaði. Frænka hans
kom að og ávít.aði hann harðlega. „ Aldrei
á æfl minni hefl eg þekt annan eins letingja,*
mælti hún; „ætli þér væri ekki nær að taka
heldur bók og gera eitthvað þér til gagns.
Skammastu þín
ekki, að eyða
svonatímanum?"
Hún hafði auðvit-
að enga hugmynd
um, að það, sem
hann var að gera,
mundi hafa svo
mikla þýðingu
fyrir mannkynið,
eins og raun hefir
á orðið. Vatns-
gufan í tekatlinum
varð fyrst til að
vekja hjá honum
hugmyndina um
gufuvélina.
Eins og allir
vita, eru nú gufu-
vélar notaðar á margvíslegan hátt og til
margvíslegra starfa, þar á meðal til að
knýja skip áfram, og eru þau skip, sem
ganga fyrir gufuafli, nefnd gufuskip.
Sá, sem fyrstur fann upp á því að nota
gufuvélina til að knýja áfram skip, hét
Robert Fulton og átti heima í Ameríku.
fegar hann sagði mönnum frá þessari hug-