Æskan

Årgang

Æskan - 01.06.1904, Side 6

Æskan - 01.06.1904, Side 6
74 stóbu hringinn í kring um, og í henni var kofi og húsabyggingar nokkrar nálega í rústum; sjaldan sást reykur þaðan upp stíga og enn sjaldnar varð þar manna vart; einstöku sinnum höfðu einhverjir af forvitni hætt sér þangað svo langt að þeir sáu kvennsniftir nokkrar, ótótlegar og ræfilslega til fara, sitjandi á bekk fyrir framan kofann og höfðu þær ijót og ó- þrifaleg börn í kjöltu sinni; svartir hund- ar hiupu þar fyrir framan milli trjánna og stundum á kvöldin gekk afar stórvax- inn maður um fjalbrúna, sem lá yfir ána, og hvarf svo inn í kofann; því næst, er dimma tók, bar fyrir ýmsar myndir, sem voru á reiki kringum iogandi bál. Lágin, grenitrón og kofahróið í þessu græna, vina- lega landsplássi, stungu mjögsvoundarlega í stúf við hvítu húsin í þorpinu og greifa- höilina, sem var nýieist bygging og að öllu hin giæsiiegasta.. Bæði börnin höfðu nú neytt ávaxtanna og því næst hugkvæmdist þeim að reyna sig að hlaupa. María litla var fóthvatari en Andres og þess vegna alt af á undan. „Með þessu móti er það enginn vandi", kallaði hann loksins; „reynum einu sinni á iöngu hiaupi og sjáum svo hvort betur hefir". „Eins og þú vilt“, svaraði María litla, “við megum bara ekki hlaupa ofan að ánni“. „Yeit eg það“, sagði An- dres, „en þarna á hólnum stendur peru- tréð stóra, svo sem bæjarleið hóðan; eg hleyp hórna vinstra megin framhjá greni- láginni, en þú getur hlaupið hægra megin yfir merkurnar, svo við mætumst ekki fyrri en uppi á hóinum; við sjáum þá hvort okkar gerir betur". „Jæja þá!“ mælti María og fór á stað, „við hindrum þá ekki hvort annað á sömu leiðinni, enda segir pabbi að jafnlangt só að hóinum hvort heldur maður fer hérnamegin eða hinumegin við Sígauna- húsin“. Andres var þegar þotinn á undan, og María, sem sneri á leiðina til hægri hand- ar, sá hann ekki framar. „Þetta er í rauninni heimska", sagði hún við sjálfa sig, „því ekki þyrfti eg annað en að taka í mig hug og hlaupa yflr fjalbrúna, og svo fram hjá húsunum þarna yfir frá, þá kæmist eg víst fyr en hann“. Nú er hún þegar komin svo langt að áin og grenitrén eru fyrir framan hana. „Á eg að gera það?“ segir hún, „nei, mig óar við því“. Lítill hundur hvítur stóð hinu- megin og gelti sem mest mátti hann. í ofboðinu þótti henni fyrst sem kvikindið væri óvættur og hrökk á hæl aftur. „Æ“, sagði hún, „nú er Andres kominn góðan spöl á undan, meðan eg stend hór og víla fyrir mór“. Hundurinn gelti í sífellu, en þegar hún virti hann betur fyrir sér, fór henni ekki að þykja hann neitt hræðileg- ur, heldur miklu fremur geðslegur. Hann hafði rautt band um hálsinn með skínandi bjöllu og í hvert skifti sem hann reisti höfuðið og hristi sig geltandi, þá ómaði bjallan undurfagurt. „Það er best að hætta á það“, kallaði Maríalitla, „eghleyp alt hvað eg get og verð fljót; ekki munu þeir þó gleypa mig í sig samstundis“. Og þar með skundaði hún djarflega út á fjalbrúna og var óðara komin að hund- inum, sem nú var hægur og spakur og flaðraði upp á hana; því næst vatt hún

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.