Æskan - 01.06.1904, Page 8
76
„Nu skulum við leika fallegan, ]eik,“ mælti
Serína. Að svo mæitu skundaði hún inn
í höllina og kom aftur með gullöskjur;
i þeim var ijómandi fræduft. Hún tók úr
þeim ofurlitla ögn með litlu putunum
sínutn og stráði fáeinum kornum á græna
jörðina. Óðara brá svo við að grasið lagð-
ist í býlgjur og eftir örfá augnablik skaut
upp .úr jörðunni Ijómandi rósarunnum;
hækkuðu þeir fljótt og breidddust út í
blómgun og lagði af þeim sætasta ilm.
María tók líka ögn af duftinu og dreifði
þvi út og þá spruttu upp hvítar liijur og
allavega lit negulblóm. En jafnskjótt sem
Serina gerði bendingu, þá hurfu blómin
aftur og önnur ný komu í staðinn.
„Nú skaltu sjá nokkuð, sem er enn
betra,“ mælti Serína.
„Hún lét tvö pinjukom* niður í jörðina
og stappaði niður fætinum. í sama bili
stóðu tveir grænir runnar frammi fyrir
þeim. „Berðu þig nú að halda þér fast
eins og eg geri,“ sagði Serína, og lagði
María handlegginn yfrum hana. Þá fann
hún að hún lyftist upp, því trén uxu und-
ir þeim rneð feikna hraða. Hinar hátt-
vaxandi pinjur hreyfðust og bæði börnin
hóldust í faðmlögum og kystust í rauðum
um kvöldskýjunum, en hin smábörnín klifr-
uðu með frábærum fimleik upp og ofan
með stofaum trjánna og hrundust á með
glettingum þegar þau mættust, og hlóu
hátt um ieið. Yrði einhverju barnanna
fótaskortur í þrönginni, þá flaug það í
lausu lofti og leið hóglega á léttu flugi
niður til jarðar. Loksins setti ótta að
Pinja er furutegund sern vex í suðurlöndum,
Maríu, en þá söng leiksystirin og tók nokkra
háa tóna og i sama bili sigu trén smám-
saman niður í jörðina og tyltu þeim niður
aftur, eftir að þau fyrst höfðu hafið þær
svo hátt upp til skýjanna.
Eirhlið var á höllinni og gengu þær þar
inn. Sátu þar inni margar friðar konur,
eldri og yngri í kringlóttum sal; þær voru
að neyta kostulegasta ávaxta og hljóm-
aði þar fegursta sönglist ósýnilegra hljóð-
færaleikenda. Á lofthvelfiuguna voru lit-
myndaðir pálinar, blóm og laufverk
og þar innan um voru mynduð börn
í allavega yndislegri líkamsstöðu klifr-
andi og rólandi, og breyttu myndirnar sér
eftir tónuin sönglistarinnar og Ijómuðu í
fránustu lit.um; ýmist blikaði hið græna
og bláa logskært eða dró úr litunum aftur;
það roðaði af purpuranum og eldi af gull-
inu. Sýndust svo börnin innan um blóm-
flétturnar sem lifandi væru; það sást er
þau önduðu að sér og frá sér með roða-
skærum vörunum og starsýnt lilaut manni
að verða bæði á tennurnar þeirra skínandi
hvítar og augun himinbláu.
tFramh.)
„ Æ s k a n“
kemur út tvisvar í mánuði, og auk þeBS jóiablað
skrautprentað mcð myndum), 25 blöð alls (100
bls.). Kostar 1 kr. og 20 aura árgangurinn. Borg-
ist í Aprílmánuði ár hvert. Sölulaun i/b. geíin
af minst 3 eintökum.
Guðm. Gamalíelsson bókbindari, Hafnar-
strœti ltí, Reykjavik, aunast útsendingu blaðsins
og alla afgrciðslu, tekur móti borgun og kvittar
fyrir o. s. l'rv.
Prentsmiðja Þoiiv. Þorvakbssonar.