Æskan

Árgangur

Æskan - 01.09.1914, Blaðsíða 3

Æskan - 01.09.1914, Blaðsíða 3
Æ S K A N. 67 Þau borðuðu af beztu lyst, því þau voru nú alt af svo hraust og kát. Þegar þau voru búin að fá nægju sína af kvöldmatnum, þá tjóðruðu þau Jarp og Nönnu við tré og gengu siðan inn í hellinn. Þeir bræður fóru snemma að sofa, þvi að þeir voru orðnir dauðlúnir. Lilla-mamma var þá búin að sofa góða stund og Snati hjá henni. Jó- hanna var ein á fótum og breiddi vel ofan á systur sína. Síðan laut hún niður og kysti Björn bróður sinn, þar sem hann svaf; hann var foringinn fyrir þessu vinaliði. Það var sannarlega þung ábyrgð, sem á honum hvildi; en þrátt fyrir það, gat hann nú sofið vært, þegar hann var lagstur út af, svo að hann varð einskis var. Jóhönnu var eitthvað órótt innan- brjósts. Líf þeirra systkina hafði verið svo breytilegt þessa vikuna, og þegar nú siðasti dagur hennar var að kvöldi kominn, þá gat hún ekki annað en hugsað til þess, sem hún hafði slept og hvernig nú mundi 1‘ara fyrir þeim, þegar þau voru lögð af stað í föðurleitina. Tunglið skein glatt á heiðum hirnn- inum og stjörnurnar tindruðu hér og þar og litu svo blíðlega niður til jarðarinnar. Ljúfur sunnanblær lék bljóðlega 1 trjánum og lækjarniðuv- inn lét svo vndislega í eyrum. En all i einu þaut Snati upp; hann hlaut að hafa heyrt eitthvað; hann gelti eins og hann væri að vara við einhverju og kom lil Jóhönnu; hárið reis á honum og hann hvesti eyrun alt öðruvísi en hann var vanur. »Hvað er þetta, Snati?« spurði Jóhanna og klappaði á kollinn á honum. En hvernig sem hún horfði, þá gat hún ekki séð nokkurn skap- aðan hlut á ferð; hún fór þvi að halda, að Snata hefði missýnst og að hann væri að þessu að ástæðu- lausu. En alt í einu kom hún auga á ríðandi mann á götunni, sem lá rétt fram hjá hellinum. Jóhanna hraðaði sér þangað, sem þeir bræður lágu og sváfu, og ýtti við Birni og sagði: »Þú verður að vakna, Björn. Það er ríðandi maður á leiðinni hingað«. Björn spratt á fætur undir eins og gekk út úr hellinum; hann gaf sér engan tíma til að heyra systur sína segja nokkuð meira. »Maðurinn ætlar nú kannske að riða hérna fram hjá, og ef svo er, þá er ekki vert að dvelja för hans«, mælti Björn, þegar hann kom auga á manninn. »En kannske það sé stigamaður. Já, þá skulum við þegja eins og steinar, svo að hann verði ekki var við okkur. Þegiðu, Snati, segi ég! Nei, nú fer maðurinn út af götunni og kemur ekki hingað. Sé það stigamaður, sem ætlar að gera okkur ilt, þá skulum við vera við- búnir. En ef það er vinur okkur, þá skal hann vera hjartanlega vel- kominn«. Björn hafði bjfssuna sína tilbúna. En ókunni maðurinn, sem ekki átti nokkurra manna von á þessum slóð- um, steig af baki og gekk upp að hellinum. Þá hrópaði Björn þrum- andi röddu: »Hingað og ekki lengra!« Ókunni maðurinn nam staðar, þvi að þetta þrumandi hróp kom flalt upp á hann; en af því að hon- um fanst hann þekkja röddina, þá svaraði hann jafnharðan: wÞað er hann Kristján gamli! — Ég ætla ekki að gera ykkur neitt ilt«. Björn stökk þá á móti honum og lók fast og hlýlega í höndina á hon- um; sama gerði Jóhanna; og þegar Karl vaknaði og kom út til að sjá, hvað um væri að vera, þá þarf nú ekki að spyrja að þvi, að hann varð

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.