Æskan

Årgang

Æskan - 01.05.1926, Side 2

Æskan - 01.05.1926, Side 2
34 Æ S K A N inni i kenslustofunni. Þá kemur Níels rjúkandi inn og heill hópur með hon- um og spurði: »Er það satt, að hann föðurbróðir þinn liafi skotið björninn?« »Já, það er satt«. »Og þú hefir ekkert minsl á þaðl Var hann stór?« »Það er stærsti björninn, sem hefir nokkurn tíma veiið skolinn«, sagði Egill. »Gat hann ekið honum heim?« »Nei, hann varð að lála hann Iiggja í snjónum þar sem hann féll. í dag fór hann með sleðann. Hann hélt að hann gæli komið honum heim í kvöld, af því að sleðafærið er svo gott núna«. »Ó, gaman væri að sjá björninn i heilu líki! Hann er víst ekki búinn að ílá hann?« »Nei«. »Eigum við ekki að verða samferða heim að Núpi í kvöld, drengir?«, sagði Olafur frá Ási. »Okkur er það hægðar- leikur, því að nú er skíðafæri«. »Já, já!« hrópuðu þeir þá allir hver ofan íannan«. Drengirnir sátu nú í skólanum allan seinni pailinn og biðu þess með óþreyju að kenslutíminn væri úli. Þegar þeir voru búnir að syngja kvöldsálminn sinn, ruku þeir allir á dyr í einni bendu, svo að kennarinn varð að hasta á þá og biðja þá að halda röð og reglu, en ryðjast ekki af slað eins og »bráðsoltnir úlfar á hræ«. Þetla kvöld fékk Egill að fara heim lil sín einn síns liðs, því að hinum drengjunum bráðlá svo á, að þeir fóru á skíðunum beint af augum og voru komnir löngu á undan Agli heim að Núpi, þó að hann hlypi því sem næst altaf. Egill gekk upp á leili nokkurt og sá þaðan heim að Núpi; furðaði hann mjög á, að hann sá engan drengjanna úti á túni. Var Gunnar þá ekki kom- inn? Þarna sá hann skíðin drengjanna, en livar voru þeir sjálfir? Inni í slof- unni, eða hvað? Ó, ef þeir hrifsa nú dýrin mín, sem ég er búinn að skera út, og brjóta þau fyrir mér! hugsaði hann. Hann titraði af hræðslunni um þetta. Svitinn spratt út um hann allam Fáum augnablikum siðar var hann kominn heim í anddyrið og hlustaði með öndina í hálsinum. Já, þarna voru þeir allir inni. Hann gengur inn. Ó, þeir höfðu tekið dýrin hans niður af hillunni, handléku þau og skoðuðu þau í krók og kring, »Varið ykkur að missa þau ekki á gólfið, svo að þau brotni!« hrópaði Egill með ákefð. »Góði, farðu nú varlega«, sagði liann við Niels og létti fram hönd- ina til að taka af honum tréhestinn. »Og ég skal ekki éla hann!« sagði Níels háðslega og stjakaði Agli frá sér. »Hver hefir skorið út þessi dýr?« spurði Níels. Það voru hestur, kýr, kind, hyrnd- ur geithafur og manns-liki hálfsmiðað. »Það er víst Gunnar«, svaraði Ólafur frá Ási. »Ég hefi skorið þau út«, sagði Egill. »Því skrökvar þú?« sagði Níels. »Já, víst er um það, að þú ert ekki þess- legur, að þú kunnir að beita bnífnum svona haglega!« sagði Níels og gerði sér upp hlátur, »en Gunnar er skurð- hagur mjög«. »Heíirðu séð annað eins og þetta. Hafurinn sá arna er alveg eins og hann væri ljóslifandi«, sögðu þá margir dreng- irnir með hinni meslu aðdáun. »Jú, ég hefi skorið út öll þessi dýr«, sagði Egill. »Og ég á enn fleiri smíðis- gripi heima«. »Og þegiðu«, sagði Níels. »Gaman þætti mér að vita, hvað Gunnar vildi fá fyrir hestinn. Ég ætla að kaupa hann«. Egill varð hræddur. »Komdu með hann!« kallaði hann til Níelsar og þreif hestinn af honum. Níels reiddi þá að honum kreptan hnefann. »Engar ryskingar í kvöld!« sagði einn af drengjunum, og tóku hinir undir það.

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.