Valsblaðið - 24.12.1959, Síða 7

Valsblaðið - 24.12.1959, Síða 7
VALSBLAÐIÐ 3 gert hefur verið á árinu til rækt- unar og fegrunar á félagssvæðinu. Af þessu stutta yfirliti um skýrslu stjórnarinnar og nefnd- anna má það ljóst vera, að víða hefur verið við komið og að mörgu hugað á starfsárinu. Er formaður hafði lokið ræðu sinni, tók Baldur Steingrímsson gjaldkeri til máls og skýrði reikn- inga félagsins, sem lágu endur- skoðaðir fyrir fundinum, auk þess las hann upp reikninga Valsblaðs- ins og skíðaskálans. Þá skýrði Sig- urður Ölafsson gjaldkeri íþrótta- hússnefndar reikninga þeirrar nefndar jafnframt því, sem hann gat um rekstur íþróttahússins og starfsemi þess almennt, og Jón Þórarinsson las upp reikninga hús- nefndar (félagsheimilisins). Lágu síðan skýrsla og reikningarnir fyr- ir til umræðu, en umræður urðu ekki miklar, nokkrar fyrirspurn- ir, sem voru gerðar, var svarað og umræðum að því búnu lokið. Reikningar því næst bornir upp og samþykktir í einu hjóði. Næsta mál á dagskránni var lagafrum- varpið. Formaðurinn hafði fram- sögu og rakti hann í stuttu máli tildrögin að því, að frumvarpið var fram komið og skýrði það. Um- ræður urðu talsverðar um málið, og voru ræðumenn yfirleitt á því, að rétt væri að fara inn á þá braut í skipulagsmálum, sem frumvarpið boðaði, en rétt þótti þó, þar sem hér var um yíirgrips- mikið mál að ræða og gjörbreyt- ingu á fyrra fyrirkomulagi í fé- lagsstarfseminni, að skýra málið enn nánar fyrir félagsmönnum. og var því samþykkt að stjórnin kall- aði saman til fundar, væntanlega deildarmeðlimi til frekari um- ræðna, og leggi þær niðurstöður, sem af slíkum umræðum fengist, fyrir framhaldsaðalfund. Var að- alfundinum að því búnu frestað til 15. nóvember. Voru svo sér fundir haldnir bæði með knatt- spyrnumönnum og handknattleiks- félögum, og málin skýrð ítarlega og rædd. Var á báðum þessum fundum samþykkt einróma að setja á stofn deildir með því fyrir- komulagi, sem ráðgert er í frum- varpinu. Á framhaldsaðalfundin- um 15. nóvember var svo laga- Stjórn Knattspymudeildar 1959—60 — Frá vinstri: Jón Þór Jóliannsson, Elías Hergeb'sson, Ægir Ferdinandsson, form., Hermann Hermannsson, Páll Aronsson. frumvarpið samþykkt eins og pað var upphaflega lagt fram af hálfu undirbúningsnefndar, og ákveðið að hefja undirbúning að stofnun deildanna. Að því búnu var aðal- fundinum enn frestað og til 22. nóvember. Voru svo stofnfundir deildanna haldnir og þeim kosin stjórn. 1 stjórn handknattleiks- deildarinnar hlutu kosningu: Jón Kristjánsson, foi-maður; Áslaug Benediktsdóttir, Jón Þórarinsson, Sveinn Kristjánsson og Sigurður Guðmundsson. Varamenn: Sigríð- ur Sigurðardóttir, Ingólfur Hiart- arson og Sólmundur Jónsson. Stjórn knattspyrnudeildarinnar er þannig skipuð: Ægir Ferdín- andsson formaður, Elías Hergeirs- son, Hermann Hermannsson, Páll Aronsson og Jón Þór Jóhannsson. Varamenn: Gunnar Gunnarsson, Skúli Þorvaldsson og Sigurðui' Ólafsson. Skíðadeildin kaus sína stjórn þannig: Guðmundur Ingimundar- son formaður, Guðmundur Guð- jónsson, Sigurður Marelsson, Guð- mundur Ásmundsson og Stefán Hallgrímsson. Varamenn: JónGuð- mundsson, Guðný Þorsteinsdóttir og Sigmundur Tómasson. Þriðji og síðasti áfangi aðal- fundarins var svo haldinn, eins og Stjóm handknattleiksdeildar 1959—60. — Frá vinstri: Jón Þórarinsson, Sigurður Guðmundsson, Jón Kristjánsson, form., Áslaug Benediktsdóttir, Sveinn Kristjánsson.

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.