Valsblaðið - 24.12.1959, Side 18

Valsblaðið - 24.12.1959, Side 18
14 VALSBLAÐIÐ Undanfarin ár hefur sú þróun orðið í félagslífi stærri íþróttafélaganna, að þau hafa upp tekið svo kallaða deildar- skiptingu í einhverri mynd. Tilhögun þessi er í því fólgin að hver íþróttagrein myndar sjálfstæða heild innan félagsins með eigin stjórn og sér fjárhag, en ljtur þó aðalstjórn félagsins, að vissu marki. Á þennan hátt dreifist starfið á fleiri hendur og hægt er betur en áður að helga sig einni íþróttagrein og ná um leið betri árangri félagslega og íþrótta- lega. Með bættri lífsafkomu þjóðarinnar, aukinni atvinnu og miklum peningum, hefur það orðið æ erfiðara að fá nægi- lega mikla starfskrafta fyrir félögin til að gegna hinum fjölmörgu trúnaðar- og ábyrgðarstörfum, sem þeim eru sam- fara og nauðsynleg eru til að geta haldið uppi því mikla menningar- og uppeldis- starfi, sem þeim er ætlað að gegna, og gegna þrátt fyrir allt, fyrir land og þjóð. Dugandi félagar, eldri og yngri, hafa á síðari árum færst mjög undan störfum, því enda þótt þeir í raun og veru hefðu getað og viljað inna einhver störf af höndum fyrir félag sitt, vildi það oftast verða mikið meira starf en þeir hugðu í fyrstu og notuðu svo fyrsta tækifærið til að losa sig við öll störf og síðan þora þeir tæpast að koma ná- lægt sínu gamla félagi af ótta við ágang þess eftir nauðsynlegum starfskröftum. Það hefur líka verið mörgum eldri fé- lögum nokkur ráðgáta, hvers vegna svo fáir yngri félagar hafa haldið áfram störfum fyrir félag sitt, eftir að þeir hættu æfingum og leik og um leið hve fáir leikmenn félagsins hafa í raun og veru tekið virkan þátt í félagsstarfinu sjálfu, jafnframt æfingum. Sú spurning hefur því þráfaldlega skotið upp kolli, hvort þeir eldri standi í vegi fyrir eðli- legri yngingu forystuliðs félagsins, eða hvort hinp aukni möguleiki æskufólks til annarra skemmtana, með aukinni vel- megun þjóðarinnar, sé rétta ráðningin á þessum félagslegu erfiðleikum. Með deildarskiptingu þeirri, sem nú hefur verið tekin upp í félaginu, vakna tvíþættar vonir Valsmanna. Annars veg- ar að fleiri eldri félagar taki að sér störf fyrir félag sitt, með tiltölulega lít- ið starf á hvern einstakan, og hins vegar að fleiri og fleiri yngri félagar komi til átaka fyrir félagið, og eftir að hafa kynnzt betur starfsemi og uppbyggingu þess í ýmsum ábyrgðarstöðum og störf- um, hafi þeir þroskazt og aukizt svo ás- megin, að þeir séu færir til að taka við af þeim eldri. S. Z. r---------------------- Vestmannaeyjaför V______________________) Það bar til eitt sinn í sumar, að ákveðið var að Meistara- og 1. flokkur skyldu fara í Vestmanna- eyjaför. Tilurð þeirrar ferðar er óþarfi að rekja hér, þekkja hana allir, sem eitthvað kemur það mál við, en förin var farin í byrjun júlí. Ekki er heldur þörf á langri og ýtarlegri frásögn, svo að hér verður aðeins stiklað á stóru. Við fórum fimmtán saman í gömlum Renobíl austur yfir Fjall og var förinni heitið að Eyrar- bakka, en þar skyldi báturinn, sem mjólkina flytur út í Eyjar, tek- inn. Við komum á Eyrarbakka um hádegisbil, og þar sem ekki fannst sá staður í þorpinu, sem hægt væri að fá keyptan heitan mat, fóru allir í kaupfélagið og keyptu sér eina dós af fiskibollum og mjólk með. Báturinn átti að koma um tvö leytið, en þegar klukkan var fimm- tán mínútur gengin í tvö var í hans stað komið símskeyti á sím- stöðina þess efnis, að eftir okkur væri beðið Þorákshöfn. Við þökk- uðum gott boð og sögðumst hvergi fara, báðum þá vel að lifa og sögðum að eftir þeim væri beðið á Eyrarbakka. Hjálmar vildi hins vegar fara á hestum til Þorláks- hafnar og koma við á Þingvöllum. Sú tillaga var felld með öllum greiddum atkvæðum, en þeim, sem voru með tillögunni, var synjað réttar til atkvæðagreiðslu. Þegar klukkan var hálf f jögur kom báturinn og sigldi mikinn. Stigu nú menn á bátsfjöl og kvöddu Tsland að sinni. Fannst mönnum mikið koma til veðurblíð- unnar og vegsömuðu hana óspart, sumir þó fölir á vanga. Þetta veður hélzt allt til Eyja, en sem lengur gekk ferðin, því föl- ari urðu sumir á vanga, og svo fór að lokum, að sú fæða, sem etin var á Eyrarbakka, gekk hjá mörgum upp. Hjá einum gekk hún þó sinn vanagang niður. Til Eyja vai- komið klukkan átta. Þar tóku á móti okkur -Tón Krist- jánsson og Björgvin Dan, en þeir höfðu daginn áður komið þangað með flugvél. Var nú snæddur mat- ur á Hótel H.B., en að því loknu var gengið til leiks. Það hlotnaðist mér í þessum leik að vera línuvörður og það segi ég satt, að heldur vil ég ganga á tvinna yfir stærstu gjá heims- ins heldur en að vera línuvörður í Eyjum, þegar halla tekur á Eyja- skeggja. Leiknum auk með sigri okkar, 6—1. Sögðu sumir, að við hefðum sigrað með tenkniskri sjó- riðu. Eftir leikinn var svo farið á dansleik. Næsta dag voru allir það snemma á fótum, að þeir mættu skammlaust í mat. Þegar hann hafði verið snæddur fóru flestir inn í Herjólfsdal að sjá golf, en Meistaramót Isands í þeirri íþrótt stóð þar yfir. Heldur er það lá- kúruleg íþrótt, svona fljótt á litið. Seinni leikur okkar í Eyjum hófst svo kukkan fimm. Nokkrar breytingar höfðu Eyjamenn gert á liði sínu. Stóð leikurinn sínar níutíu mínútur, og að þeim lokn- um kom í ljós, að Eyjaskeggjar höfðu skorað þrjú mörk gegn níu. Dómari í þessum báðum leikjum var hinn gamli og góði Valsmað- ur, Ellert Sölvason, og dæmdi vel eirís og blöðin segja. Fugvélin, sem flaug okkur heim, kom um átta leytið og gekk ferðin að óskum. Þetta var ánægjuleg ferð í alla staði og aðbúnaður í Eyjum mjög til fyrirmyndar. — Kunnum við I.B.V. beztu þakkir fyrir. J. O. O. * P Arsþing K.S.I. Knattspyrnusamband íslands hélt árs- þing sitt dagana 28. og 29. nóv. s.l. Mættir voru 63 fulltrúar úr öllum fjórð- ungum landsins. Mikill áhugi ríkti á þinginu fyrir framgangi knattspyrnu- íþróttarinnar, og ýmsar mikilvægar til- lögur voru samþykktar. Björgvin Schram var endurkjörinn formaður K.S.f. í sjötta sinn, og er stjórnin að öðru leyti eins skipuð og undanfarið ár.

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.