Valsblaðið - 24.12.1959, Blaðsíða 9
VALSBLAÐIÐ
HVAÐ SAGT E R
Um cleilclaóhiio tm
LjoLmcývma
Jón Kristjánsson:
„Það sem hefur gefist vel
hjá öörum, ætti að gefast
vel hjá okkur.“
Hvað segir þú um deildaskipt-
inguna, Jón?
Ég get nú lítið um það sagt,
er tæpast nógu
kunnugur fé-
lagsmálunum í
heild. Ég held
þó, að það hljóti
að vera til bóta.
Mér skilst, að
með því fáist
fleiri til starfa,
og að þetta miði
sem sagt að því,
að fá sem flesta
að starfa með
ábyrgðartilfinningu. Ég held að
þeir skilji betur, hvað liggur á bak
við félagið og tilgang þess. Það
er ekki aðeins að fara í félagsbún-
ing út á völlinn.
Persónulega finnst mér, að ég
hafi þroskast meira á því að taka
þátt í störfunum og því, sem er
að gerast í kringum félagið en að
taka þátt í leikjunum, og það get-
ur oft verið mjög skemmtilegt \
samstarfi við áhugasama félaga.
Þetta fyrirkomulag hefur verið
reynt hjá öðrum félögum og gefizt
vel, og því ætti það þá ekki að gef-
ast líka vel hjá Val. En það fer
sem sagt eftir því, hvernig fólkið,
sem í deildunum starfar, skynjar
félagslífið og skyldurnar við það.
Hvernig féll þér ferðalagið til
Færeyja?
Mjög vel, fólkið var alveg fram-
úrskarandi skemmtilegt og við-
feldið, og gott að vera með því.
Mér féll vel sá andi, sem ríkti með-
al þess.
Framtíðarhorf ur ?
Mér lízt þær yfirleitt góðar,
fólkinu er að fara fram. Sjáum
t. d. stúlkurnar. Fyrir stuttu síðan
var kvennadeildin í öldudal, en nú
er svo komið, að þær eru í þriðja
sæti í meistaraflokki, og annar
flokkur vann sitt mót.
Hvað vilt þú segja að lokum?
Þó ég sé nýr í þessu, þá hygg
ég gott til samstarfsins við fólkið
í deildinni og við hina eldri hand-
knattleiksmenn félagsins, sérstak-
lega nú, þegar deildin er að stíga
sín fyrstu sjálfstæðu skref.
Ég vil að lokum vekja athygli á
því, að efling deildanna er aðeins
að efla Val, gera hann sterkari
sem félag.
Ég hefi trú á því, að með sam-
stilltum átökum megi handknatt-
leiksmönnum Vals takast að vinna
þannig, að Valur sé alltaf í fremstu
röð sem handknattleiksfélag.
Ægir Ferdínandsson:
„Það verða allir að vinna“
Hvernig lízt þér á deildarskipt-
inguna, Ægir?
Vel. Það er um
þetta semannað
ef menn fást til
að vinna vel,
þarf engu að
kvíða. Það er
ekki nóg að við
í stjórninni
vinnum.
Hvað vilt þú
segja okkur um
framtíðina. —
Nokkuð sérstaklega „planað“?
Já, okkur hefur dottið sitthvað
í hug, en fylling tímans er ekki
komin enn.. — Það hefur verið
ákveðið að við tækjum ekki við
æfingunum fyrr en fyrsta janúar
n. k. svo enn er nokkur tími til
stefnu. Þegar þar að kemur mun-
um við halda fund með hverjum
flokki fyrir sig og skýra frá því,
sem við ætlum að gera. Þá munum
við um leið skýra frá þeim gjöld-
um, sem verða lögð á flokkana, svo
þetta komi ekki alveg óviðbúið.
Nokkuð sérstakt, sem þú hefur
á samvizkunni?
Ja, það er nú alltaf eitthvað sem
hana þyngir, en ég veit ekki hvort
rétt er að ræða mikið hér að þessu
sinni. Ég vil biðja menn að taka
því vel ef til þeirra er leitað um
einhverja aðstoð, því þetta allt
hlýtur að byggjast fyrst og fremst
á þeim sjálfum og ef margar hend-
ur vinna saman verður allt léttara.
Þó við í stjórninni vinnum er það
ekki nóg, það verða allir að vinna.
Jón Þórarinsson:
„Sjálfsagt að reyna nýjar
leiðir.“
Hvernig lízt þér á deildaskipt-
inguna í Val?
Ég verð að segja, að ég er hlynt-
ur því að reyna
þetta. Við erum
búnir að hjakka
svo lengi í sama
fari, að það er
vel þessi virði
að reyna nýjar
leiðir.
Því er ekki að
neita, að fljótt á
litið virðist mér
að það muni
verða erfiðara fyrir handknatt-
leikinn en knattspyrnuna, fjár-
hagslega. Ég er samt ekkert svart-
sýnn, síður en svo. Auðvitað verð-
ur öllum þeim, sem taka þátt í
æfingunum, að vera ljóst, hvað það
er að vera félagi íþróttafélags, og
að með því að vera félagi verða
menn að taka á sig skyldur. Þeir
þurfa að skilja, að allt, sem að
þessu lýtur, kostar meiri og minni
peninga, og allir verða því að
skilja, að þeir verða að borga fyrir
það, sem þeir njóta, og að öll
skemmtun hvar sem er kostar pen-
inga, og þá oft mikla. Ég verð líka
að segja, að sú skemmtun, sem fé-
lagarnir njóta við leik og æfingar,
séu sízt lakari en þær, sem annars
staðar eru keyptar, og víst er það,
í deildunum til