Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1920, Blaðsíða 59
ALMANAK 1920
37
liann ætlaíSi aS ná í járnbrautarlest, og ekki var til mik-
ils fyrir hann aS spyrja þá, sem hann mætti, hvaS
klukkan væri, því engan veginn var víst aS þeirra
klukkum bæri saman viS járnbrautarklukkuna. Eina
ráSiS var aS fara á járnbrautarstöSina og spyrja þar
hvaS klukkan væri; og jafnvel þá var ekki víst aS
klukkunni þar og klukku Iestarstjórans ibæri saman.
Ýmsar tillögur komu fram um þaS, hvernig ætti
aS ráSa bót á þessu. Einn af Iþeim fyrstu, sem stakk
upp á umbótum í þessa átt, var Sir Sandford Fleming,
nafnkendur kanadiskur verkfræSingur. Prófessor
Charles F. Dowd í Saratoga N. Y. fann einnig upp ráS
til þess aS leiSrétta tímann. Þetta var um 1 869. En
loksins var fallist á, fyrir forgöngu ameríska járnbrauta-
félagsins, aS fylgja tímareikningi þeim, sem skrifari fé-
lagsins, W. F. AUen í New York, setti.
Og svo var þaS aS 18. nóvember 1883 á hádegi,
aS klukkur og úr voru sett éftir þeim tímareikningi um
öll Bandaríkin. Á ýmsum afskektum stöSum var hald"
iS áfram aS fylgja “gam'la tímanum”, en þeir, sem voru
breytingagjarnari bæSi í bæjum og þorpum, fóru yfir-
leitt aS fylgja “nýja tímanum” daginn sem hann var
settur. Þeir, sem voru svo afturhaldssamir, aS vilja
ekki taka upp þessa nýbreytni, eru nú flestallir komnir
undir græna torfu, þó aS ennþá 'finnist fáeinir, sem eru
svo langt á eftir tímanum, aS þeim finst “tíminn” ram-
skakkur.
Samkvæmt viStekna tímareikningnum er NorSur-
Ameríku skift í belti viS 60., 75., 90., 105. og 120.
hádegisbaug vestur frá Greenwich. Mismunurinn á
tíma viS hvern þessara bauga er ein klukkustund.
Klukkan er ýmist á undan eSa eftir viStekna tímanum,
eftir því hvort um staS fyrir austan eSa vestan tíma-
baugana er aS ræSa. Rétti tíminn er auglýstur dag-
lega á hádegi frá veSurathuganastofnuninni í Washing-
ton, og honum skeikar aSeins um einn þúsundasta hluta
úr sekúndu.