Afturelding - 01.12.1934, Blaðsíða 4

Afturelding - 01.12.1934, Blaðsíða 4
AFTURELDING AFTUREIDIIG kemur sennilega út annan hvorn mánuð fyrst um sinn. Ritstjórar: Eric Ericson, Vestmannaeyjum og ÁsmuncLur Eiríksson, Haganesvík. Afgreiðsla: Box 85, Vestmannaeyjum. og hugsunarlaus, hljóp fram á skipið og hallaði mér yfir borðstokkinn, til að sjá, hvort tundur- duflið mundi springa við framstafninn. Ég sá þessa grænu kúlu koma nær og nær, þar til að hún hraktist fram með allri skipshliðinni. Um nóttina gátum við ekki séð duflið nánar, þar sem það hvarf í skugga skipsins. Við sáum aðems, hvernig það barst með stórri öldu burt frá skipinu. Sennilega var þetta þýzkt tundurdufl, sem stormurinn hafði slitið laust frá festum, því við fengum ljósaskeyti frá öðrum skipum um mörg tundurdufl, stundum þrjú, fjögur saman. Stýrimaðurinn hrópaði til mín: „Heyrðir þú ekki, að þú áttir að standa miðskipa. Sá, sem fyrst- ur hefði farið til helvítis, hefði verið þú“. Þetta voru hræðileg orð í niðamyrkri úti á ólgandi hafi. Þar stóð ég gagnvart alvöru lífsins. Ég spennti greipar, þakkaði Guði fyrir björgunina og bað hann að frelsa sál mína. En ekki datt mér í hug, að það voru bænir móður minnar, sem björguðu mér og félögum mínum frá voðalegu slysi. Ég var varla kominn inn fyrir dyr heima og hafði lagt sjópokann minn frá mér og tekið sæti á legubekknum, fyrr en mamma spurði: „Harry, hvernig leið þér úti á sjónum á hinni tilteknu nóttu? Varst þú ekki í sérstakri dauðans hættu? Ég sá greinilega lítinn bát úti á ólgandi hafi, og þú varst í þeim báti. Ég mátti til að berjast í bæn fyrir þér“. Enn höfðu bænir móður minnar mætt mér á vegi mínum. Nú hefir Guð í náð sinni frelsað mína sál og varðveitt mig þangað til í dag. Ég hefi sjálfur oft fengið að reyna marga undursamlega bænheyrslu, sem er mér undursamlegt vegamerki. Ég óska nú, að þessi bænheyrsla megi verða til uppörfunar biðjandi feðrum og mæðrum. Gleymið eigi, að Guð heyrir bænir, og að hann sendir hina himnesku herskara til þess, að þér fáið bænheyrslu. Máttug víkja myrkra ögur, morgunstjarnan blikar fögur, opnir standa allir dómar, ásýnd Guðs í jötu ljómar. Drottin Jesúm hróðri hyllum, honum allar gígjur stillum, hver og ein hann tigni tunga, tignum Jesú, barnið unga. Tignum kvala-krýnda þjóninn, kvíðvæn svella myrkra lónin; meðan aðrir glauminn gista, grætur ’ann milli bleikra kvista. Kvölum með og krossins dauða keypt’ ’ann ríka, blinda, snauða undan synda oki, helsi, eilíft gaf oss líf og frelsi. Hyllum konung konunganna, krýnum lávarð vegsemdanna. Hann er okkar, hans við erum, honum þökk og lofgjörð berum. Hann er líkn, ef hryggur grætur, hann er ljós í myrkri nætur. Hann er þögn í háværð dagsins. Hann er friður sólarlagsins. Dýrð því rómi Drottni allir, dýrðar hljómi tónar snjallir; jörð og himnar jafnt hann faðmi jötu hjá og krossins baðmi. Ásmundur Eiríksson orti. ☆ ☆ ☆ 4

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.