Afturelding - 01.06.1949, Qupperneq 12

Afturelding - 01.06.1949, Qupperneq 12
A F T U R E L D I N G Hann er í nánd, fyrir dyrum. Framhald aj bls. 34. ið Bernadotte burtu á úrslitastundu, og sett dr. Bunche sáttasemjara í hans stað. Eftir það var betur séð um rétt Gyðinga. Það var einmitt fyrir samningalipurð dr. Bunclie, eftirmanns Bernadotte, að Gyðingar fengu það höfuð- skilyrði sett inn í vopnahléssamningana við Egypta, að mega hafa vopnað setulið í höfuðhorg Negev-svæðisins — Beerseba. Jafnhliða því, sem Gyðingar hafa lagt svo mikið kapp á að tryggja sér yfirráðaréttinn yfir eyðimörkinni, auka þeir stöðugt innflutning kynsmanna sinna, alls staðar frá. Síðastliðinn vetur er talið að um 10,000 Gyðingar hafi flutzt inn í landið mánaðarlega. En þetta þykir Davíð Ben Gurion ekki nóg, heldur hefur hann sett sér þá djörfu áætlun, að flytja inn 1 milljón Gyðinga á næstu fjórum árum. Það þýðir, að þá þarf hann að taka á móti um það bil 22,000 hvern mánuð í fjögur næstu ár. Sumir, sem skrifað hafa um þessi mál, liafa sagt það fjarstæðu, að Gyðingar fengju aðstöðu til að mynda þjóðarheimili í Landinu helga. llinn sívaxandi straumur innflytjenda er svar Biblíunnar við þeirri ályktun. En þeir, sem alllaf hafa trúað þessum orðum Heiiagrar ritningar og aldrei reynt að teygja þau til annarrar merk- ingar en beint lá við að skilja þau, hafa fengið að sjá þau rætast, jafnvel í sundurgreindum liðum. Tökum lil dæmis þessi orð hjá Jeremía spámanni: „Sjá, ég flyt þá úr Iandinu norður frá og safna þeim saman frá út- kjálkum jarðar, á meðal þeirra eru bæði blindir og lamir, bæði þungaðar og jóðsjúkar konur, í stórum hóp hverfa þeir hingað aftur“. Jer. 31,8. Hér er talað um blinda menn og lama „bæði þungaðar og jóðsjúkar konur.“ 1 sambandi við þessi orð má geta þess, að bæði íslenzk blöð og útvarp sögðu frá því í fyrra, að á einu skipi t. d., sem var á leið til Palestínu með Gyðinga, voru „blindir menn og lamir“ og r.m 400 konur af eitthvað um 600 farþegum. Margar þeirra voru þungaðar, og allmargar fæddu börn sín í lestarklefum skipsins. Þannig rætist orð Guðs í öllum atriðum. Þá er hitt ekki síður eftirtektarvert, að um leið og Gyð- ingar eru að þyrpast inn í land sitt, vottar slrax fyrir undirstraumi trúarlegrar vakningar í þessu unga þjóð- lífi. Það hefur vakið athygli, að Gyðingar hafa tekið inn í þann útvarpslið, sem fram fer á Hebresku, að lesa Biblíuna (Gamla testamentið). Þetta gera þeir daglega. Lesturinn fer fram rétt á undan nýjustu fréttum hvern dag. Þannig hafa Gyðingar valið Biblíunni bezta slaðinn 44 í dagskrá útvarps síns. Tveir kapítular eru lesnir dag- lega. Með því móti ætla þeir sér að lesa alla Biblíu sína (G. T.) á einu ári. — Hér gera Gyðingar hinum svo kölluðu kristnu Jjjóðum mikla minnkunn, með því að gefa trúarbók sinni svona veglega viðurkenningu. Af þessu má ætla, að það sé skammt þangað til þessi rilning rætist á Gyðingum: „Yfir Davíðs hús og yfir Jerúsalemhúa út- helli ég líknar- og bænaranda, og þeir munu líta til lians, sem þeir lögðu í gegn.“ Sak. 12,10. Með heimkomu Gyðinga í Landið helga sjá kristnir menn eitt hið gleggsta tákn upp á endurkomu Krists. Hann sagði við lærisveina sína rétt fyrir dauða sinn: ,,En nemið líkinguna af fíkjutrénu: Þegar greinin (Gyð- ingar eru ein grein af ísrael — fíkjutrénu) á því er orðin mjúk og fer að skjóta út laufum, þá vitið þér að sumarið er í nánd. Þannig skuluð þér vita, að þegar þér sjáið allt þetta, þá er HANN í nánd, fyrir dyrum.“ Menn hafa stundum viljað reyna að gera endurkomu Krists óraunverulega. Þeir hafa lúlkað liana, eins og hún væri einhvers konar andleg þróun. En þannig sögðu ekki englarnir að hún yrði, sem töluðu við lærisveinana við himnaför Jesú. Þeir sögðu: „Þessi Jesú, sem var uppnum- inn frá yður til himins, mun koma á sama hátt og þér sáuð. hann fara lil himins.“ (Post. 1,11). Hann mun koma á sama hátt og þér sáuð hann fara til himins. Þetta er fullvissa endurleystra Guðs harna í dag um allan heim. Og þau vita livað klukkan er slegin, þegar Jiau heyra um þjóðflutning Gyðinga heim í Landið helga. Þau vita, að HANN, sem þau vænla og elska er í nánd, fyrir dyrum! Á. E. Að sunnan. 1 FíladelfíusöfnuSimim í Reykjavík hefur veriS viðvarandi vaku- ing frá því í haust. Þegar þeir eru taldir meS, sem nýlega eru frelsaSir og bíSa nú eftir skirn, hefur um 40 manns á þessum tíma tekið afstöðu með kenningu Guðs orðs, eins og hún liggur fyrir okkur í Nýja testamentinu, og Hvítasunnumenn hoða hana. Hefur það verið mjög uppörfandi að fylgjast með þvi, hvernig Guðs Andi hefur starfað í söfnuðinuin. Búast má við, að Guð sé nú jafnhliða þessu að undirbúa vakningu í hjörtum fólks annars staðar. Ef til vill er það svo með margt fólk úti I dreifbýlinu, að það vantar ekki annað en snertingu eða vitnisburð trúaðra manna, til þess að það öðlist örugga trúarfullvissu. Bréf og önnur sambönd, sem við höfum við menn víða, geta bent í þessa átt. Af því tilefni ættu Ilvítasunnumenn að leggja meiri áherzlu á útbreiðslustarfið á þessu sumri en nokkru sinni áður. Þetta ættu allir að liafa í huga, sem nokkurn möguleika hafa á því uð gefa sig i þetta starf, svo að hægt verði að ná til sem flestra staða á komanda sumri.

x

Afturelding

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.