Afturelding - 01.01.1954, Page 1
21. ÁRG.
REYKJAVÍK 1954.
1.—2. TBL.
RILU (ÍRAIIASI
lleiiiilli, sem
•ai' Cnllð.
Fyrsta grein.
Billy Graham í Amerfku er einn l>ckkta8ti og raunsœasti aftur-
hvarfsprédikari, sem nú cr uppi í hciminum. Ekki fyrir löngu
síðan flutti hann rœðu í Los Angcles um fjölskyldulífið frá Biblíu-
legu sjónarmiði. Vegna þess að ræðan er orð í tíma talað, vill
Afturclding biría hana í 3 eða 4 tölublöðum. Vorða þá fyrir
sagnir greinaflokkanna þessar: Heimili, sem heiðrar Guð, Eigin-
konan, Eiginmaðurinn og Börnin. Lcsendurnir ættu að fylgjast
með þessum greinum frá upphafi. — Graham tekur nú til máls:
jp^yrir mörgum árum síðan stóð hinn mikli stjórnmála-
maður, Ilenry Grady, í ríkisþinghúsinu í Washing-
ton og sagði við sjálfan sig: „Þetta er hjarta Ameríku.“
Síðan mælti hann upphátt: „Það er eins og þinghúsið
hverfi mér sjónum og ég sjái lítið heimili í fjöllum Norð-
ur-Karólínu. Þegar ég hugsa um litla heimilið þar, sé ég
í anda fátækan, slitinn og sólbrenndan föður, með sigg-
aðar hendur. Á hverju kvöldi safnar hann börnunum sín-
um utan um fjölskyldubiblíuna gömlu og les húslestur
og flytur bæn.
Ég man, hvernig faðir minn vakti okkur á hverjum
morgni við sólarupprás og sagði okkur að fara á fætur,
svo að hann gæti sameinazt með okkur í morgunbæn. Við
hverja máltíð báðum við borðbæn. Faðir minn vann all-
an daginn á akrinum, hendur hans urðu siggaðar, and-
lítið sólbrennt og svitinn streymdi af cnni hans. F.n hann
var heiðarlegur maður, sem kenndi börnum sínum guðs-
ótta og leiðbeindi þeim. Þegar ég nú stend hér og sé þetta
allt fyrir mér, er mér ljóst, að grundvöllur hins ameríska
þjóðfélags, og sjálft hjarta Ameríku, er ameríska
heimilið." Þannig mælli Henry Grady.
I dag er ég sannfærður um, að grundvöllur þjóðfélags-
ins er heimilið. Ég er einnig sannfærður um, að þegar
heimilið fer að missa á okkur tökin og leysast upp, er
Billy Graham.
þjóðfélagið í mikilli hættu. Orðið „heimili“ vekur þús-
undir minninga í hjörtum okkar. Svo lengi, sem ég lifi,
get ég aldrei gleymt heimili mínu. Ég get aldrei gleymt
föður mínum og móður. Þau kenndu börnunum sínum
guðsótta. Ég vissi aldrei til, að foreldrar mínir væru ósátt-
ir. Ég minnist þess aldrei, að þau hefðu ljót orð um munn.
og að sjálfsögðu aldrei blótsyrði. Þau báðu fyrir okkur
börnunum sínum, og nú tilheyrum við öll Jesú. Hann er
okkar persónulegur Frelsari.
Merkasta stofnun, sem nokkru sinni hefur verið á fót
komið, er heimilið. Guð stofnaði heimilið á undan söfn-
uðinum, skólanum og landsstjórninni. Fyrsta vígsluat-
höfnin fór fram í garðinum í Eden, og það var Guð siálf-
ur,‘ sem framkvæmdi hana. Nú sem stendur er 31,000000
heimili í Bandaríkjunum. Næstum því hver maður hér i
Los Angeles mun í kvöld fara til þess staðar, sem hann
kallar heimili sitt. — Fólksfjöldinn á götunni á leið til
skemmtistaðanna, og þeir sem eru niðri á Skid Row, vita,
hvar þeir kunna bezt við sig. Sjálfur grundvöllurinn að
öllu lífi okkar er lagður í heimili okkar. Það þýðir með
öðrum orðum, það að hvort sem við erum ríkir eða fá-
tækir, og hverrar þjóðar sem við annars erum, þá eigum
við ætíð einhvern stað, sem við köllum heimili okkar. Það
er sama, hvort það er höll eða hreysi, heimili nefnum
við það eigi að síður. Heimilið er þungamiðjan í tilveru
okkar. Orðið vekur til lífsins þúsundir minninga frá liðn-
um dögum, og við minnumst föður og móður og systk-
ina okkar.
Fæðing Jesú Krists var undursamleg. IJann unni eigi
aðeins sínu eigin heimili, heldur og heimili Mörtu, Maríu
og Lazarusar. Hann kom inn í mörg heimili og helgaði
LANOSöÓKASArX
19980!)