Alþýðublað Hafnarfjarðar - 19.12.1955, Page 6

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 19.12.1955, Page 6
6 ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR GLEÐILEG JÓL! Gæfuríkt komand ár! Kvenfélag Alþýðuflokksins. GLEÐILEG JÓL! Farsælt nýtt ár! Þökkum viðskiptin. Kjötiðjan. GLEÐILEG JÓL! Farsælt nijtt ár! Þökkum viðskiptin. Nýja bílstöðin h.f. Umboðs- og heildverzlun Siggeirs Vilhfálmssonar, Reykjavík, sendir öllum Hafnfirðingum beztu 1 J Ó L A- og NÝÁRSÓSKIR GLEÐILEG JÓL! Gæfuríkt komand ár! Geir Jóelsson. GLEÐILEG JÓL! Gæfuríkt komand ár! Verzlun Geiru og Leifu. GLEÐILEG JÓL! Gæfuríkt komand ár! Verzlun Halla Sigurjóns. GLEÐILEG JÓL! Farsælt nýtt árl Þökkum viðskiptin. Úra- og skartgripaverzlun Magnúsar Guðlaugssonar, Hafnarfirði. GLEÐILEG JÓL! Farsælt nýtt ár! Þökkum viðskiptin. Guðmundur Guðmundsson, umboðsverzlun, Hafnarfirði. * óskar öllum viðskiptavinum sínum GLEÐILEGRA JÓLA og góðs og farsæls nýárs. Þakkar viðskiptin á liðna árinu. Risar á alfaraleiðum (Framhald af hls. 4) ur líkur þeim, sem býr í eðli núpsins. Allir muna frásögn Njálu af draumi Flosa á Svínafelli, þann er hann bað Ketil úr Mörk að ráða og Flosa dreymdi skömmu eftir Njálsbrennu. Þóttist hann vera staddur að Lómagnúpi og horfa upp til núpsins. Gekk þá maður út úr núpnum og hét sá Járngrímur. Fór sá kallandi og kallaði á menn Flosa marga — og var það feigfðarkall. Það er ekki að undra, þótt menn tryðu að þar byggju vættir nokkrar, er ráða mættu örlögum þeirra og annarra, slíkt hamravígi er þar blasir sýnum. Sá sem kemur austan um Skeiðarársand í þokurofum og dimmviðri, þegar aðeins grillir í hamrariðin, og Núpsvötn velta fram í kolmóráuðum strengja- breiðum, og sýnast óvönum aug- um ferðamannsins langt um ófær, hann gleymir ekki þessari leið. Hann gæti trúað að þarna byggi örlagavættur sjálfs hans. Og þegar ég fór fyrsta sinni þessa leið í ágætri fylgd Helga á Núp- um og fleiri manna — í stórflóði og þoku, kom eins og ósjálfrátt fram á varir mér við einn dýpsta álinn þessi vísa: Mundi hér að fótum faila feigðarállinn regindjúpi. Heyrir einlwer ennþá kalla ísarn — Grím úr Lómagnúpi? Eitt sinn sóttu þeir Jón á Teygingalæk og Helgi á Núp- um mig og mitt fólk austur á sand. Við áðum sem jafnan und- ir núpnum, og við Helga rifjaði ég upp gamla fylgd yfir vötnin. Nú voru þau grunn og létu lítið yfir sér. En Ljómagnúpur var óumbreytanlegur, nema hvað áhrifavald hans verður alltaf meira og meira því fleiri ferðir, sem ég á inn um umráðasvæði hans. Einhvern tíma hafa sval- kaldar öldur úthafsins skolast um brúnir hans og nafir. En þær höfuðskepnur hefur hann líka staðið af sér, þótt þeirra sjáist nokkurrar menjar í dráttum hans og útliti. Núpsvötnin falla enn við fætur hans, leggja undir sig sandflæmið fram af honum, seil- ast jafnvel inn með honum að vestan, allt heim undir túnið á Núpsstað, þegar megin þeirra er sem mest. En nær 7 liundruð metra ofar þeirra leik gnæfa meitilhvassar eggjar hans í blá- heiði loftsins. I allri sinni drottn- andi tign blasir hann við þér, ferðamaður, bezt frá Núpsstað eða framanvert við suðvestur hornið, verðugur fulltrúi íslenzkr ar fjallanáttúru — ógleymanleg- ur þeim, er hann hafa séð. DETTIFOSS Ekki er það óvenjulegt að heyra eftir útlendingum, sem eitt hvað hafa um Island ferðast, að hér sé óviðjafnanleg náttúru- fegurð. Flest hefur þetta erlenda fólk ekki farið nema um nær- sveitir höfuðstaðarins og ef til vill norðurleiðina til Akureyrar og kannski til Mývatns, sjaldn- ast séð suma sérkennilegustu og mikilfenglegustu staði landsins. Hvað myndi það segja um út- sýn af Almannaskarði, af Lauga- felli eða Kerlingafjöllum? Hvað um staði sem Asbyrgi, Hólma- tungur, Skaftafell í Öræfum og Dettifoss svo fáeinir séu nefndir, sem erlendir ferðamenn sjá sjaldnast, þeir, er annars til Is- lands koma. Ferðamaður, sem á björtum góðviðrisdegi heldur austur frá Asbyrgi, eftir hæfi- lega dvöl þar, og leggur leið sína upp að Dettifossi, hefur að þeirri för lokinni séð eftirminni- legustu staði, er náttúra Norður- lands geymir í skauti sínu, svo einstæða á sinn hátt sem Lómagnúpur er að sínu leyti sunnanlands. Strax og yfir Jök- ulsárbrúna er komið tekur Axar- fjörðurinn við. Byggðin er nær öll á vinstri hönd, norðan brúar. Þrír bæir liggja ofar, upp með ánni. Vestra- og Austaraland skammt upp með gljúfrinu, en þó góðan spöl austar, og Hafurs- staðir langt suður í heiði. Hólsfjallavegurinn gengur beint í suður, upp skógivaxna hlíð, sem nefnist Kinn, framan í Skógarhæð og upp hjá Löndun- um tveim, sem eru aðskilin af Landaánni, lítilli sprænu, er kemur sunnan úr Heiði. Vegur- inn er drjúgum brattur um niður- skornar moldargötur, en víðar lyngflesjur til beggja handa. All- langt ofar sér fyrir veginum heim að Hafursstöðum. Það er farið um Beitivelli og Tjaldstæðisháls, um jafnhækkandi gróið heiða- flæmi. En milli Sauðafellsháls og Hamarsöldu hverfur gróður allur, en við taka stórgrýtisöld- ur og klapparásar og á nokkrum stöðum sandur. Það er Hólssand- urinn, sem nálgast. Frá Rauðhólum lá Dettifoss- vegurinn suðvestur af þjóðleið- inni, rúml. 7 km. langur, en er nú miklu styttri orðinn með nýrri vegagerð um Hólssand. Jökulgljúfrin koma í augsýn. I vestri rís Eilífur yfir gömlu eyðibýli, og fjöllin á Mývatns- öræfunum blasa við. En í suðri stendur Herðubreið yzt í sjón- deildarhringnum, miklu hærri en öll önnur fjöll og fegurst allra íslenzkrá fjalla norðan jökla. Loks er komið á bergbunguna ; austan árinnar. Fossinn sést og heyrist — þó að litlu leyti enn. Akveginum líkur á breiðum, sléttum stalli. Þaðan er göngu- leið ofan á annan stall, og er þá komið á sjálfan gljúfurbarminn. Allt frá jökli fellur þetta mikla fljót Norðurlands á eyrum og söndum um flata hástléttuna, sums staðar í allbreiðum vatna- flákum, þar til áin steypist niður í 60 m. djúpt gljúfur eða gjáar- botn. Þessi gljúfur eru um 30 km. löng og þeim lýkur fyrst rétt ofan við gömlu brúna, austur undan Ásbyrgi. Þar sem Jökulsá á Fjöllum hrynur fram af gljúfurbrúninni, er Dettifoss. Skammt ofan við hann fellur áin að vísu fram af lágum bergstalli. Heitir þar Sel- foss. En við neðri fossinn hefj- ast hin miklu Jökulsárgljúfur. Fossbrúnin snýr frá norðaustri til suðvesturs og endar í mjórri rauf við vestri bergvegginn. Frá því ég sá Dettifoss fyrsta sinni, hef ég verið þess fullviss, að hann væri einn mestur foss í Evrópu, þeirra, er kunnir eru, Ekkert náttúrufyrirbæri á Is- landi kemst til jafns við hann í áhrifum. Eins og kunnugt er byggist mat okkar á samanburði. Við miðum einn hlut við annan, berum þá saman og lýsum þeim á grundvelli þess samanburðar. Þar sem ekkert er til viðmiðun- ar, verður lýsing og skýrgreining næst óljós — nánast engin. Og Dettifoss er engum öðrum fossi lýkur hérlendis. Hann er hærri en allir aðrir fossar lands- ins með sambærulegu vatns- magni. Hann er vatnsmeiri en þeir flestir. Hann hrynur í óbrotnu falli allt frá brún og í gjárbotninn. Gljúfrin að honum eru hrikalegri en að öllum öðr- um stórfossum Islands. Allt þetta gerir hann meiri og voldugri en önnur f allvötn. En sjálfum fossin- um er nær ógerlegt að lýsa, falli hans, svip, hinum mikla nið, geislabrotinu yfir honum, öllum (Framlwld á hls. 7) DETTIFOSS í AXARFIRÐI. „Niðurinn er drynjandi, yfirgnæfandi. Allt nötrar, veriíur smátt í návist jiessa gljúfra trölls." — Höfundurinn sést á miðri myndinni.

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.