Alþýðublað Hafnarfjarðar - 19.12.1955, Síða 8
8
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
Jol í Á§tralín
fíók Vilbergs Júlíussonar, Austur til Ástralíu, hefur feng-
ið mfög góða dóma gagnrýnenda. Hér birtist, með leyfi
höfundar, örstuttur kafli úr bókinni, sem ffallar m. a. um
fólin hjá andfætlingum okkar.
Seint mun ég gleyma jólanótt
í grasgarðinum í Melbourne.
Jólakvöldið er ekki haldið hátíð-
legt í Ástralíu frekar en í öðr-
um samveldislöndum Breta. En
á aðfangadagskvöld jóla er venja
að halda mikla hátíð í grasgarð-
inum í Mellrourne. Þessi hátíð
nefnist Carols by Candlelight
eða jólasálmar við kertaljós. Hún
er haldin til ágóða fyrir hjálpar-
vana börn, og eru seld kerti og
kertastjakar m. a. í þessum til-
gangi. Þetta jólakvöld voru sam-
an komnar um 200 þús. manna.
Hiti hafði verið geysimikill um
daginn, komzt upp í 30° á C, en
liann verður stundum svo mikill
um jólin, að kertin renna og
bráðna niður af sólarhitanum
eingöngu!
Það var einstaklega kyrrt og
milt þessa nótt. Mannfjöldinn
var mikill, og fólkið sat alls stað-
ar, sem hægt var að tylla sér nið-
ur, í grasinu milli trjánna í skóg-
arrjóðrinum, á bökkum tjarnar-
innar og árinnar. Og allir sungu
jólasálma, milli þess, sem hlýtt
var á vandaða skemmtiskrá und-
ir stjórn færustu manna. Hér
Jólamynd Bæjarbíós
„Hátíð í Napoli“ (Caro-
sello Napolentano) var upp-
haflega samin af Ettore
Giannini, sem stórkostlegur
dans- og söngleikur, er vakti
óhemju hrifningu á Ítalíu, og
hefur verið sýndur í flestum
. stórborgum Evrópu og Ame-
ríku af f jölmennum söng- og
dansflokki. Hinn frægi rúss-
neskættaði dans- og ballet-
meistari, Leonide Massine,
samdi dansana í myndina.
Hann dansar líka sjálfur í
myndinni. Frægasti ballet-
flokkur heimsins, „Grand
Ballet du Marquis de Cue-
vas“, dansar flesta balletana.
I myndinni eru yfir 40
Napoli-lög frá öllum tímum,
svo sem „St. Lucia“, O Solo
mio“ og „Vanþaklátt hjarta“.
Frægustu dansarar og söngv-
arar Itala koma fram í þess-
ari myrid, t. d. Beniamino
Gigli og Carlo Tagliabue, og
einnig dansar og syngur hin
fræga Sophia Loren í fyrsta
sinn í kvikmynd. — Kvik-
myndin hlaut „Prix Inter-
national“ á kvikmyndahátíð-
inni í Cannes 1954, sem er
mesta viðurkenning, sem ein
kvikmynd getur fengið, enda
var hún sýnd þar fyrsta
kvöldið. Hún var líka valin
sem opnunarmynd á ítölsku
kvikmyndavikunni í London.
s,________________________J
komu fram frægir söngmenn,
sjónleikir voru sýndir og óperett-
ur fluttar. Einn þáttur skemmti-
skrárinnar var sá, að valdir voru
menn og konur úr hópnum óg
fékk þetta fólk að tala við ætt-
ingja og vini í fjarlægum lönd-
um, t. d. Englandi, Kanada, Suð-
ur-Afríku og Bandaríkjunum.
Þannig gat fólkið sent jólakveðj-
ur og spurt, hvað jólabakstrinum
liði og kalkúnasteikinni.
Sumarnóttin var hlý og yndis-
legt var að dvelja þarna og
skemmta sér. Hundruð þúsunda
kertaljósa loguðu þarna í skóg-
inum, og þegar maður leit yfir
garðinn í rökkurmóðu næturinn-
ar, líktist ljósadýrðin einna helzt
fífusundi á vori. Ég held, að fá-
um hafi komið svefn í hug þessa
jólanótt, a. m. k. háttuðum við
nokkrir félagar okkur ekki fyrr
en í dögun. Við vorum orðnir of
seinir til vinnu á flugvellinum,
en þar unnum við öll jólin. Við
vorum sælir og hamingjusamh
þessa nótt, enda frá köldum lönd-
um. Minningar okkar um jólin
voru að vísu tengdar birtu, en
oftast frosti og snjó. Okkur hafði
víst fáa órað fyrir því, að við
ættum eftir að sitja úti heila jóla-
nótt, undir beru lofti, og horfa
á kertaljós loga í næturkyrrð, þar
sem ekki blakti hár á höfði, —
og fólkið söng jólasálmana rétt
eins og það sæti í stofunni sinni
heima.
Samt átti ég heldur bágt með
að sætta mig við jól um hásum-
arið, og einhvern veginn fannst
mér verða heldur lítið úr jóla-
haldinu á heimilum. Hitinn og
veðurblíðan átti sinn þátt í því.
Menn reyndu að vera sem mest
úti við á daginn og fram eftir
kvöldum. Ég skrapp oft til bað-
strandarinnar við Hobsonflóa, og
hafgolan var bezta jólagjöfin,
sem ég fékk í þetta sinn.
Sagt er að nykur sé í Hvaleyr-
arvatni annað árið, en hitt árið
í Kasthúsatjörn á Álftanesi. Sel-
staða var áður fyrr við Hval-
eyrarvatn, og sér enn tættur af
selinu við vatnið. Eitt sinn voru
í selinu karl og kona og gættu
búpenings.- Konan fór sem off-
ar að sækja vatn, en kom ekki
aftur. Seinna fannst lík hennar
mikið skaddað rekið upp úr vatn-
inu, og þótti líklegt, að nykurinn
hafi drekkt konunni.
Eldri menn hafa oft heyrt mik-
inn skruðning og hávaða út í
Hvaleyrarvatni, einkum þegar
Og ekki má gleyma að minn-
ast á baðstrandirnar. Þær eru
ekki svo fáar, stundirnar, sem
Ástralíumenn eyða þar. Bað-
strandir Ástralíu eru mjög góð-
ar frá náttúrunnar hendi, sand-
urinn hvítur, mjúkur og hreinn,
og sjórinn er hlýr og yndisleg-
ur, en þær eru frenmr snauðar
og standast á engan hátt saman-
burð við baðstrandir Suður-
Evrópu, þar sem menn geta stig-
ið dans og fengið sér snúning,
hlýtt á góða tónlist eða gjört
sér ýmislegt annað til skemmt-
unar, milli þess, sem þeir stinga
sér í himinblátt Miðjarðarhafið
og fá sér snarpa sundspretti.
I hinum miklu sumarhitum
þyrpist almenningur í Ástralíu til
stranda, glettist við öldur Kyrra-
hafsins og liggur þess á milli eða
mókir í volgum sandinum. Fólk-
ið þráir og elskar hafgoluna, sem
strýkur vanga þess, og fagnar
henni því ákafar sem hitinn vex
örar. Baðstrandarlífið er þægi-
legt og skemmtileg tilbreyting í
daglega lífinu, en gerir fólk frem-
ur latt og svifaseint. Undantekn-
ing frá þessu er þó hin hressandi
og heillandi íþrótt að fara á sjó-
(Skíðum (surf), en hún freistir
margra. Margir eru til hennar
kallaðir, en fáir útvaldir, enda
krefst hún góðrar sundkunnáttu
og nákvæmni og öryggis í hreyf-
ingum. Siglingar eru töluvert
stundaðar, og standa Ástralíu-
menn framarlega í þeirri íþrótt.
Það er ekki hægt að skilja svo
við baðstrandir Ástralíu, að ekki
sé minnzt á mikinn vágest, sem
heimsækir þær stundum. Hann
gerir aldrei boð á undan sér, læt-
ur mikið að sér kveða og skilur
oft eftir djúp og seingróin sár.
Þetta er hákarlinn. Hann leitar
þegar minnst varir úr djúpi hafs-
ins til strandar, og enginn veit
fyrri til en hann hefur orðið hon-
um að bráð. Líf þess manns er
oftast lokið í þessum heimi. Há-
karlinn veldur oft skelfingu og
upplausn baðgesta með komu
sinni, og þótt Ástralía eigi ágæt-
lega þjálfuðum björgunarsveit-
um á að skipa, sem árlega bjarga
ísa leysir, og þykir líklegt, að
það starfi af völdum nykurs-
ins.
Sagt er, að einu sinni hafi börn
úti á Álftanesi, fjögur að tölu,
verið að leika sér við Kasthúsa-
tjörn og hafi þá séð dýr eitt, grátt
að lit, sem þau héldu að væri
hestur og lá við tjörnina. Þau
settust öll á bak nema eitt barri-
ið; það sagðist ekki nenna á bak.
Þegar barnið sagðist ekki nenna
á bak, hristi dýrið börnin af sér
og stökk út í tjörnina. Þóttust
menn af þessu sjá, að þarna hefði
nykurinn verið.
Aí g ö m1u m b1öðum
Hvaleyrarvatn
mörgum mannslífum, fer hákarl-
inn öllu sínu fram þeirra vegna.
Þegar útvörp eða blöð flytja
fregn um, að hákarl liafi limlest
eða gleypt með liúð og liári ein-
hvern baðgest, slær óhug á alla
þjóðina. Hákarlinn er að vonum
mesta lirollvékja öllum bað-
strandargestum.
Jólin í Ástralíu eru ekki hátíð
gleði og birtu fyrir alla menn
og konur þar í landi. Hún er
blandin sorg og kvíða. Skógar-
eldarnir varpa skugga á jólahá-
tíðina. Þeir eru í almætti sínu um
jólin. Landið stendur í björtu
báli, og svo virðist sem eldarn-
ir kvikni af sjálfu sér. Menn
reyna að fara gætilega með eld-
inn, þegar hitarnir geisa. Litill
neisti verður oft að stóru báli.
Utvarpsstöðvarnar trufla þrá-
faldlega dagskrár sínar með að-
vörunum um að fara nú varlega
með eldinn. En allt kemur fyrir
ekki. Það er jafnvíst að eldar
kvikna í skógunum og jólin
koma, — og tjónið er óskaplegt.
Það er ömurlegt að ganga um
brunasvæðin eftir að skógareld-
urinn hefur geisað og brennt upp
heilar lendur skóga, sviðið tún
og akra, stökkt dýrum á flótta
og hrakið fjölda fólks frá heim-
ilum sínum. Það er raualegt að
fá slíka jólagjöf á hátíð ljóssins
og friðarins.
Guðsþjónustur
í Fríkirkjunni. Á aðfangadags-
kvöld: aftansöngur kh. 8,30. Á
jóladag: messa kl. 2 e. h. Annan
jóladag: harnaguðsþjónusta kl.
2. Gamlárskvöld: aftansöngur kl.
8,30. Á nýársdag: messa kl. 2,00
e. h.
í Þjóðkirkjunni. Á aðfangadag:
aftansöngur kl. 6. Jóladag: messa
kl. 2. Gamlárskvöld: aftansöng-
ur kl. 6. Nýársdag: messa kl. 2.
B E.IAlt U1 Ó IIAFAAK FIK I> I
JÓLAMYNDIN 1955
HÁTÍll í MPOLI
Stærsta dans- og söngvamijnd, sem ítalir hafa gert til þessa. 40
þekkt lög frá Napoli erirí myndinni. Myndin er í Pathé-litum.
fíarnamtjnd Bæjarbíás á annan í jólum verður
HEIÐA
Ný, þtjzk úrvalsmtynd eftir hinni heimsfrægu sögu Jóhönnu Spt/ri,
sem komið hefur út í íslenzkri þýðingu og farið sigurför um aill-
an heim. — HEIÐA er mynd, sem allir hafa gaman af að sfá. —
HEIÐA er mynd, fyrir alla ffölskylduna.
SÝNDAR Á ANNAN í JÓLUM