Alþýðublað Hafnarfjarðar - 23.02.1962, Qupperneq 1
1 afnaðarstefnan
er stefna
alþýðunnar
ALÞYDUBLAD
Verzlið við þá, sem
auglýsa í Alþýðu-
blaði Hafnarfjarðar
IHIAJF fcl Aim IFJJ AIRHD) AIRÍ
XXI. ÁRGANGUR HAFNARFIRÐI, 23. FEBRÚAR 1962 3. TÖLUBLAÐ
Sólvangur er óbrotgjarn minnisvarði um
farsæla stjórn Alþýðnflokksins í bæjarmál-
um Hafnarf jarðar
Ilvít, tígulleg og stílhrein bygging blasir við auguin
vegfarandans, sem leggur leið sína upp með læknum í
Hafnarfirði. Þetta er Sólvangur, stofnun, sem stendur
nærri hjarta hvers Hafnfirðings. Þarna er athvarf fjölda
gamalmenna. Þarna fá þau ágæta aðbúð og aðhlynn-
ingu og njóta hvíldar eftir oft langt og strangt ævistarf.
Þarna eru yngstu borgararnir í heiminn bornir og þarna
starfar heilsuverndarstöð og er það ómetanlegt heil-
brigðislegu öryggi bæjarbúa. En hverjum er það að
þakka, að Hafnarfjörður á þennan Sólvang í orðsins
fyllstu merkingu? Það er fyrst og fremst framsýni hinna
fjölmörgu Hafnfirðinga, sem fólu Alþýðuflokknum mál-
efni sín. Þeir treystu Alþýðuflokknum og sagan sýnir að
þeim varð að trú sinni. Það voru Alþýðuflokksmenn sem
hófu baráttu fyrir byggingu Sólvangs og báru hitann
og þungann af því veglega verki. Árið 1944 var kosin
byggingarnefnd elliheimilis, sjúkrahúss og fæðingar-
deildar og var Guðmundur heitinn Gissurarson formaður þeirrar nefndar og hafði
hann alltaf alla umsjón með byggingarframkvæmdunum. Árið 1947 var svo hafizt
handa um bygginguna og hinn 25. október 1953 var hið nýja hjúkrunarheimili
Hafnarfjarðar vígt. Þá höfðu margir mætir menn lagt gjörva hönd að verki og eiga
þeir þakkir fyrir það.
Ekki er hægt að nefna svo byggingu Sólvangs, að ekki sé um leið nefnt Bæjar-
bíó. Bæjarbíó var eitt af þrætueplum Alþýðuflokksins og íhaldsins. Sjálfstæðismenn-
irnir sögðu: Ekkert Bæjarbíó. Alþýðuflokksmennirnir settu það á stofn. Sjálfstæðis-
nienn reyndu með öllum ráðum að knésetja þennan rekstur, en Alþýðuflokksmenn
stýrðu Bæjarbíói gegn um brimrót og boða íhaldsins og kornu því heilu í höfn.
Og nú hefur Bæjarbíó, t. d. á 7 ára tímabili, getað lagt af mörkum til Sólvangs
1 millj. 430 þús. kr. Þannig hefur Bæjarbíó verið einn af meginþáttunum í því, að
gera Sólvangsdrauminn að veruleika. Sagan hefur þegar dæmt þetta og önnur verk
Alþýðuflokksins og sagan er réttlátur dómari.
Sólvangur hefur átt því láni að fagna að þangað liefur ráðist gott starfsfólk
°g stjórn hans liefur alltaf verið í höndum valinkunnra sæmdarmanna, fyrst fyrrv.
forseta bæjarstjórnar Guðmundar heitiris Gissurarsonar og síðar Jóhanns Þorsteins-
sonar núverandi forstjóra Sólvangs. Alþýðublað Hafnarfjarðar sneri sér til Jóhanns
°g lagði fyrir hann nokkrar spurningar um reksturinn á síðastliðnu ári og er við-
talið við hann á 3. síðu.
Sólvangur í jólabúningi.
Framkvæmdir í varan-
legri gatnagerð - Reykja-
vík að baki Hafnarfirði
Á árunum 1954—1962 var meðaltal íbúafjölda í Reykja-
vík 10,6 sinnum hærri en í Hafnarfirði. Þess vegna liefði
það verið eðlilegt, að Reykjavík liefði 10,6 sinnum meiri
framkvæmdir t. d. í varanlegri gatnagerð en Hafnarfjörð-
ur. En hverjar eru staðreyndirnar í þessu máli? Þær eru í
stuttu máli þessar: Á þessu árabili frá 1954—1962 hafa
verið steyptar og malbikaðar götur sem hér segir:
Hafnarfjörður
hefur í ferm.
Malbikað .. 11.990
Steypt ....... 3.620
Alls 15.610
Reykjavík Reykjavík
átti að gera vantaði upp á
Reykjavík í ferm. í sam- í ferm. í sam-
hefur í ferm. anb. við Hf. anb. við Hf.
105.783 127.094 21.319
15.671 38.372 22.701
121.454 165.466 44.020
Á árinu 1961 voru 253 íbúðir í smíðum
Nýlega hefur Alþýðublaði
Hafnarfjarðar borizt í hendur
yfirlitsskýrsla byggingarfulltrú-
ans í Hafnarfirði um byggingar-
framkvæmdir í bænum á árinu
sem leið. Þar kemur í ljós, að
161 stcinhús hafa verið í smíð-
um sl. ár. og í þeim hafa verið
252 íbúðir að stærð samtals
102.725 rúmmetrar. Eitt timbur-
hús var í smíðum og var það
ein íbúð. Á árinu 1961 var lok-
ið við 22 steinhús með 39 íbúð-
um samtals að stærð 15.117
rúmmetrar. Þannig varð liver
íbúð að meðaltali 687 rúmmetr-
ar. Stærð íbúðanna skiptist þann
ig miðað við fjölda herbergja
auk eldhúss: 1 íbúð með 1 her-
bergi, 2 íbúðir með 2 herbergj-
um, 1 íbúð með 3 herbergjum,
14 íbúðir með 4 herbergjum,
17 íbúðir með 5 herbergjum, 3
íbúðir með 6 herbergjum og 1
íbúð með 7 herbergjum. Á ár-
inu var byrjað á 13 íbúðarhúsa-
byggingum með 14 íbúðum
samtals 6.415 rúmmetrar að
stærð.
Iðnaðar-, verzlunar- og skóla-
hús, sem voru í smíðum á árinu
voru samtals 21 og voru 68.226
(Framlrald á bls. 4)
Reykjavík vantar þannig rúma 44 þúsund fermetra til
þess að þola samanburð við Hafnarfjörð í varanlegri gatna-
gerð á þessum árum.
Flokksskrifstofa
Alþýðuflokksins
í Alþýðuhúsinu er opin á hverju kvöldi
frá klukkan 8—10.
Flokksfólk er hvatt til að hafa sam-
hand við skrifstofuna, sími 50499.