Alþýðublað Hafnarfjarðar


Alþýðublað Hafnarfjarðar - 23.02.1962, Blaðsíða 2

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 23.02.1962, Blaðsíða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR — ■ ■■ ■— ■■■ - ■ -.... ■ ------------------------ ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR Utgefandi: ALÞÝÐUFLOKKURINN í HAFNARFIRÐI Ritstjóri og ábyrgSarmaSur: HÖRÐUR ZÓPHANÍASSON AfgreiSsla í AlþýSuhúsinu, sími 50499 PRENTSMIÐJA HAFNARFJARÐAR HF Misrétti útsvarsmálanna aflétt með landsútsvörum? Það hefur áður verið bent á þá staðreynd í þessu blaði, að á síðastliðnum fjórum árum hefur fólksfjölg- unin í Reykjavík hlutfallslega minnkað ár frá ári á sama tíma og hlutfallstala fólksfjölgunarinnar í Hafnarfirði hefur farið ört vaxandi. Það hefur verið á það bent, að fólksfjölgunin í Hafnarfirði nú á seinni árum hafi num- ið meiru en tölu allra íbúanna á Húsavík. Það hefur verið bent á, að þessi öra uppbygging er dýr og vegna þess, hve mikill hluti af fjármagni bæjarins fari í að byggja nýjar götur og leggja nýjar að- og frárennslis- lagnir, hafi ekki verið hægt að gera eins mikið, t. d. í varanlegri gatnagerð og æskilegt hefði verið. Ekki virð- ast Sjálfstæðismennirnir hafa gefið þessu gaum, held- ur tuldrað geðvonskulega í barm sér um sæluríkið í Reykjavík. Það hefur verið bent á hve gatnagerðin hér í Hafnarfirði er erfiðari og dýrari en í Reykjavík vegna bæjarstæðisins. Jú, sumir íhaldsmenn hafa látið sér skilj- ast þetta. Það hefur verið bent á aðstöðumismun IIafn-| arfjarðar og Reykjavíkur til skattlagningar, hvernig Reykjavík getur lagt iitsvör á ýmis fyrirtæki og stofn- anir, sem í raun og veru eru ekkert frekar fyrirtæki Reykjavíkurborgar en annarra landshluta. Jú, þetta hafa bæjarfulltrúar Sjálfstæðismanna þótzt skilja, þegar þeir hafa greitt atkvæði í bæjarstjórninni með Jdví að skora á Aljúngi að samþykkja lög um álagningu landsútsvara, til þess að ráða bót á þessum misrétti Reykjavíkur ann- ars vegar og hinna ýmsu sveita- og bæjarfélaga hins vegar. Þegar svo hefur komið að Jiví að ákveða útsvarsupp- hæð hverju sinni, hafa Jreir alveg gleymt Jressum stað- reyndum — eða a. m. k. látist gleyma Jreim. Þá hafa Jreir sagt: „Það verður að leggja á eftir sömu reglum hér og í Reykjavík“. „Já, víst ætti J>að réttu lagi að vera,“ segja menn, „en þar sem Reykjavík hefur ennþá allt aðra og betri möguleika á tekjuöflun, eins og viður- kennt hefur verið af sjálfu Alþingi, með því að gera ráð fyrir Jirenns konar útsvarsstigum landsbúum til handa, verðum við þá ekki að gjalda Jiessa misréttis að ein- hverju leyti?“ Við Jiessu fæst ekkert svar frá Sjálfstæðis- mönnum. „Eigum við kannski að láta íbúum okkar bæj- ar minni Jrjónustu í té en Reykjavík?“ spyrja menn enn. En það heyrist ekkert svar frá Sjálfstæðisflokknum. Al- þýðuflokkurinn hefur sagt nei við þessari spurningu. Hann hefur sagt: Við verðum að reyna að kveða Jætta misrétti niður, eins fljótt og við getum, og Jrá getum við fyrst verið fyllilega sambærilegir í Jiessu efni. Við vilj- um ekki stöðva uppbyggingu Hafnarfjarðar. Við viljum ekki minnka þjónustu bæjarins við borgarana í bænum. Þess vegna höfum við orðið að Jiola það, að útsvarsstig- inn er heldur óhagstæðari skattgreiðendum hér en í Rvík. A]J)ýðuflokksmönnum hefur gramizt Jretta misrétti og krafizt Jress um margra ára skeið að misréttið væri leiðrétt. Og nú er svo komið að þessar sanngirniskröfur eru í Jrann veginn að komast í framkvæmd. A Bæjarmála- ráðstefnu AlJ)ýðuflokksins upplýstu ráðherrar flokksins, öllum AIþýðuf]okksmönnum til mikillar ánægju, að rík- isstjórnin væri nú með löggjöf um landsútsvör í undir- búningi og væri stjórnarfrumvarp um það efni væntan- legt bráðlega. Þarna er árangur að margra ára bar- MINNINGARORÐ: Páll Sveinsson, yfirkennari Sú fregn barst mér til eyrna sl. sunnudagskvöld, að vinur rninn Páll Sveinsson hefði lát- izt þá um morguninn að heim- ili sínu hér í bæ, Sunnuvegi 7. Mér brá, því þá fyrir nokkrum dögum höfðum við spjallað saman í shna kvöldstund eina. Og þá eins og oftar um hugðar- efni okkar beggja. En J)ar sem hann er nú allur, þykir mér rétt að biðja Alþýðublað Hafnar- fjarðar fyrir nokkur minningar- og kveðjuorð um þennan látna vin minn. Ég kynntist Páli heitnum fljótlega, eftir að ég fluttist hingað í bæ 1931, en aðallega hófust kynni okkar í 15 ára sam- starfi í stjórn Byggingafélags alþýðu. Minnist ég jafnan Jæss samstarfs með ánægju, og þá sérstaklega. að félag þetta hóf starfsemi sína á miklu kreppu- árunum um miðjan fjórða tug þcssarar aldar. Voru mörg erfið vandamál við að glíma á frum- býlingsárunum, en með sam- stilltum kröftum stjórnar félags- ins og með aðstoð ýmissa góðra manna, óx félagið og dafnaði. Er nú félag þetta orðið öflugt og þróttmikið. Mun engum eins mikið að þakka frami J)essa fé- lags og Páli heitnum, sem var gjaldkeri þess frá upphafi til æviloka. Ég hygg og veit raunar með öruggri vissu að fátt gladdi Pál meira, en sjá og vera aðaljrátt- takandi í að færa fagra hugsjón í framkvæmd, en ég hika ekki við að fuliyrða að starf þessa félags hér í bæ hefur verið fög- ur og þörf hugsjón, sem hundr- uð bæjarbúa liafa notið góðs af. Og Jrað var ríkur eðlisþáttur í fari Páls, að vinna jafnan fyrst og fremst í J>águ þeirra, er erfið- asta áttu aðstöðuna í Jjjóðfélag- inu. Lífsstarf hans var barna- kennsla og var hann Jrar ábyggi- lega á réttri hillu. Hann reynd- ist því góður leiðbeinandi ung- dómsins hér í bæ og hefur starf hans í rúman aldarþriðjung ver- ið fólgið í einlægu og fórnfúsu starfi, að fræða og upplýsa ungu kynslóðina hér í Hafnarfirði. Margir foreldrar minnast þess jafnan með þakklæti, þegar hann lagði leið sína út á land á sumrum, á stríðsárunum, og veitti forstöðu sumardvalar- heimili barna hér úr bænum. Páll Sveinsson. Páll vann mörg verk fyrir þetta bæjarfélag. Hann var í mörg ár heilbrigðisfulltrúi, í stjórn Sjúkrasamlags Hafnar- fjarðar, ritari V.M.F. Hlífar 1926—1927. Formaður Alþýðu- flokksfélags Hafnarfjarðar um fjögurra ára skeið. Yfirkennari við Barnaskóla Hafnarfjarðar hin síðari ár. Var samvmna skólastjóra og yfirkennara með ágætum. Páll Sveinsson gekk ekki heill heilsu til starfs og sízt hin síð- ustu ár, en lítt hafði hann á orði slíkt. Það var honum allt að árangur yrði af starfi hans. Hann hlífði sér lítt í starfi, þótt veill væri. Hann var reglumaður í starfi og allri umgegni og var góð fyr- irmynd ungu kynslóðarinnar, er naut leiðsögn hans um tugi ára. Ekki má gleyma barnabókum Páls heítins, sem hann ritaði áttu að koma í Ijós. Vegna þeirrár baráttu er Jiess að vænta að Hafnfirðingar geti bráðum setið við sama borð og Reykvíkingar í útsvarsmálunum og er J>að vel. En Jjrátt fyrir Jrað misrétti, sem Hafnarfjörður hefur rnátt búa við í álagningu útsvara miðað við Reykjavík Jrolir Reykjavík ekki samanburð við Hafnarfjörð í ýms- um efnum. Tökum varanlega gatnagerð sem dæmi. Meðaltal íbúatölu í Reykjavík á árunum 1954—1962 var 66.423 en 6.294 á sama tíma í Hafnarfirði. Á þessu ára- bili hafa 15.610 fermetrar af götum verið malbikaðir og steyptir í Hafnarfirði, en 121.454 fennetrar í Reykjavík. En í réttu hlutfalli við íbúatöluna hefði Reykjavík átt að steypa og malbika götur að stærð 166.466 fennetra miðað við Hafnarfjörð. Þarna vantar Jiví upp á hvorki meira né minna en rúma 44 Jmsund fermetra til Jjess að Reykjavík standist samanburðinn við Hafnarfjörð í Jressu efni, þegar miðað er við fólksfjölda, eins og sanngjarnt er. Og svona er þetta víðar. Það er kannski einmitt þetta, sem m. a. er skýringin á því, að Hafnarfjörður vex hlut- fallslega meira en Reykjavík. undir nafninu „Dóri Jónsson“. Hann var ritfær vel og hafa þessar bækur hans náð athygli og vinsældum, en sér í lagi hjá yngstu lesendum. Mér var vel kunnugt um að eftir hann komu nokkrar blaðagreinar. Var sam- eiginlegt með þeim öllum að tala máli þeirra, er veikasta að- stöðu höfðu í Jijóðfélaginu. Páll varð sextugur 9. nóv. sl. Hann fæddist á Kirkjubóli í Onundarfirði 9. nóvember 1901. Kvæntur var liann Þórunni Helgadóttur bæjarfulltrúa frá Melshúsum í Hafnarfirði. Heim- ili áttu J>au gott og aðlaðandi og eina dóttur barna. Við vinir Páls heitins, sem enn stöndum eftir á strönd, hérna megin móðunnar miklu, minn- ugir J>ess að leið okkar liggur í sömu átt, — fyrr eða síðar, — við geynium minningu um góð- an dreng genginn, sem við hefð- um allir kosið að hefði deilt kjörum með okkur nokkur árin enn. En örlaganornin, sem vefur J>ræði lífsferils allra, spyr okkur ekki ráða. Þar verða aliir jafnir að lokum. Við vonum að þegar starfi Páls hér er nú lokið, J>á starfi hann áfram á öðrum sviðum til- verunnar og ég veit liver hugð- arefnin verða honum J>ar kær- komnust. Ég sendi að lokum eftirlifandi konu hans og fjölskyldu inni- legar samúðarkveðjur. Við geymum minningu Páls Sveinssonar og þökkum sam- fylgdina, sem J>ví miður varð of stutt. 7. febrúar 1962. Oskar Jónsson. t Hallgrímur Jónsson Hallgrímur Jónsson, verka- maður, Urðarstíg 1, andaðist á ' Sólvangi að kvöldi 16. febrúar sl. Hallgrímur vann um árabil hjá Bæjarútgerð Hafnarfjarðar og var einn af elztu starfsmönn- um útgerðarinnar. Hallgrímur heitinn var verkmaður góður og vann öll störf sín af stakri samvizkusemi, enda var hann eftirsóttur í vinnu. Ilann tók virkan J>átt í verkalýðsbarátt- unni og átti jafnan samleið með AIJ>ýðuflokknum í þeim málum. Hallgrímur var kvæntur Jónínu Jónsdóttur, mestu myndarkonu, en hún lézt árið 1941. Þau hjónin eignuðust þrjú börn, Margréti, sem er gift Guðjóni Klemens- syni lækni, Jónas, forstjóri Hús- gagnavinnustofu Hafnarfjarðar, og er hann kvæntur Þórunni Jóhannsdóttur, og Sigurlaugu, sem er bókari hjá Bæjarútgerð Hafnarfjarðar. AlJ)ýðublað Hafnarfjarðar I vottar aðstandendum hins látna ! fyllstu samúð.

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.