Alþýðublað Hafnarfjarðar - 23.02.1962, Side 6
6
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
' í STUTTU MÁU
UNDIRBÚNINGUR að bijggingu smábáta-
bryggju er í fullum gangi. Vitamálasljóri hefur verið beðinn að
panta nauðsynlegt efni til bryggjugerðarinnar. Þá hafa menn á
vegum vitamálaskrifstofunriar verið liér að undanförnu að at-
huga botnlag liafnarinnar fyrir innan nýju bryggjuna framundan
verkamannaskýlinu með byggingu smábátabryggju fyrir augum.
★
ÆSKULÝÐSRÁÐ hefur fengið aukið liúsrúm til
afnota, en pað er í nýja Öldutúnsskólanum. Þess vegna hefur
verið hægt að auka á fjölbreytni þessarar starfsemi. Nú eru t. d.
nýbyrjuð þar tvö sjóvinnunámskeið og tvö námskeið í mósaik-
vinnu, svo að eitthvað sé nefnt. Yngvi Rafn Baldvinsson hefur
verið formaður æskulýðsráðs frá upphafi þess.
★
ÞAÐ VAKTI ALMENNA ATIIYGLI hér í bæn-
Þakkað fyrir 50 ára Þrastasöng
Hinn 19. fehrúar 1912 komu saman 10 menn í barnaskólahúsinu (gamla) í
Hafnarfirði og stofnuðu Karlakórinn Þresti. Forgöngumaður að stofnun kórs pessa
var Friðrik Bfarnason, kennari og tónskáld, og átti hann tillöguna að nafni kórs-
ins. Friðrik Bjarnason tókst þegar á hendur söngstfórn kórsins og var söngstfóri
Þrasta 12 ár samfleytt.
í dag lifir ennþá Karlakórinn Þrestir góðu lífi og átti því 50 ára afmæli sl.
mánudag. Það er mikil gæfa hverfu hæfarfélagi að eiga slíka menningarstofnun starf-
andi, sem góður karlakór vissulega er.
Þeir eru ekki ófáir Hafnfirðingarnir, sem notið hafa hamingju góðs félagsskap-
ar í Þröstum, notið þess að ganga á vit sönggyðfunnar í hópi glaðra félaga, not-
ið þess að eignast hlutdeild i því mikla starfi sem liggur að haki 50 ára sögu kórs-
ins. Þó eru hinir Hafnfirðingarnir ennþá fleiri, sem notið hafa ávaxtanna af því
starfi sfálfum sér til ánægju og þroska. Því segja allir hæjarhúar einum munni: Heill
ykkur Þrestir á 50 ára heiðursdegi, — hjartans þakkir fyrir allan sönginn, — megi
hamingfa og heill fylgfa störfum ykkar hér eftir sem hingað til.
um, þegar bæjarfulltrúar Sjódfstæðisflokksins undir forystu Páls
V. Daníelssonar greiddu, allir sem einn, atkvæði gegn því að
fjárveitingin til skólabygginga á fjárhagsáætluninni í ár, væri
hækkuð í eina milljón krónur, þrátt ftyrir það, að öllum sé Ijóst,
að stórt átak þarf að gera í þe'ssum málum, — og það fljótt, —
ef hin öra fólksfjölgun í bænum á ekki að setja bæjarfélagið í
óhugnanlegan vanda í húsnæðismálum skólanna. Menn velta því
mjög fyrir sér þessa dagana, hver sé eiginlega þáttur fræðslu-
ráðsmannsins Páls V. Daníelssonar í skólamálum Hafnfirðinga.
★
Á SÍÐASTA bæjarstjórnarfundi var samþykkt að
veita til Hellisgerðis 85 þusund krónum, en Ilellisgerði hefur
löngum verið stolt og augnayndi bæjarbúa.
★
Á ÞESSUM sama bæjarstjórnarfundi var sam-
þykkt að heimila bæjarstjóra að taika lán til vatrisveitufram-
kvæmda að upphæð kr. 1.000.000.00 hjá Tryggingarstofnun ríkis-
ins.
★
IIUGMYNDASAMKEPPNI um skipulag bæjar-
ins lauk í byrjun þessa mánaðar. Dómnefndinni munu liafa bor-
ist 8 tillöguuppdrættir. Þeim verður öllum komið fyrir í nýju
Öldutúnsskólanum, en þar mun dómnefndin skoða þá og kveða
upp úrskurð sinn. Þegar dómnefndin hefur lokið störfum munu
tillöguuppdrættirnir verða almenningi til sýnis í skólanum.
★
LANDLEIÐIR liafa nú breytt ferðum sínum í
bænum og tekið upp fdstar ferðir að Sólvangi, eins og auglýst
er annars staðar í blaðinu, Er þetta til mikils liagræðis fyrir
bæjarbúa.
★
ÞAÐ HEFUR VAKIÐ nokkra athygli í bænum,
að Hamar hefur ekki sagt eitt aukatekið orð um þær upplýsing-
ar Vegamóta, að Páll V. Daníelsson þiggi 15 þúsund krónur í
bílastyrk hfá vinnuveitenda sínum. „Er það kannski ekki sama
lwer það er, sem bílastyrkinn fær?“ spyrja menn.“ Eða er hag-
speki hagstjóraris eitthvað öðruvísi í Reykjavík en í Hafnarfirði
og þá hvers vegna?“
Mjór er mikils vísir.
Eins og áður er sagt voru
10 menn á stofnfundi Þrasta, en
12 voru þeir orðnir, eins og
postularnir, þegar þeir héldu
fyrstu opinberu söngskemmtun
sína hinn 4. apríl 1912 í Góð-
templarahúsinu í Hafnarfirði. I
dag, 50 árum seinna, þegar
Karlakórinn þrestir er orðinn
elzti starfandi karlakór á land-
inu, eru söngmenn orðnir 47,
en styrktarfélagar kórsins um
eða yfir 500. Þó ekki væri nema
þetta nefnt talar það sínu máli
um það, hvernig kórinn hefur
leyst hlutverk sitt af hendi.
Á ýmsu hefur gengi'Ö í 50
ára starfi.
I stuttri blaðagrein er ekki
hægt að rekja 50 ára sögu
Þrasta, nema aðeins stikla á því
allra stærsta. Það ber margt við
í styttri sögu. Eitt af þeim
vandamálum, sem oft hefur ver-
ið erfitt að leysa, er að ná í
góðan söngstjóra, enda mun tala
söngstjóra ná töluvert á annan
tuginn á þessu tímabili. Meðal
þeirra má finna marga af kunn-
ustu tónlistarmönnum landsins.
Lengst hafa þeir stjórnað kórn-
um, Friðrik Bjamason, fyrsti
söngstjóri hans, og Jón Isleifs-
son, sem oft og iðulega liefur
stjórnað kórnum og er söngstjóri
hans í dag.
Fyrsti formaður Þrasta var
Salómon Heiðar og var hann
formaður fyrstu fimm árin, en
þá fluttist hann til Reykjavíkur.
Hann varð síðar formaður Sam-
bands íslenzkra karlakóra um
skeið. Bjarni Snæbjörnsson
læknir var lengi formaður Þrasta
og hélt m. a. uppi söngæfingum
kórsins um nokkurra ára skeið,
þegar Þrestir voru söngstjóra-
lausir. Árið 1936 verður svo
Guðmundur heitinn GissurarSon
formaður Þrasta og hefst undir
forystu hans mikið blómaskeið
hjá kórnum. Vann hann mikið
og fórnfúst starf í þágu kórsins
og eiga Þrestir honum mikið
að þakka. Núverandi formaður
Þrasta er Stefán Jónsson. Hann
hefur reynst ötull og duglegur
forustumaður kórsins og á stór-
an þátt í því, hve myndarlega
kórinn minnist þessara tíma-
móta. Þótt ekki séu aðrir nefnd-
ir hér að sinni, liggur þó í aug-
um uppi, að hinir ýmsu menn,
sem setið hafa í stjórn Þrasta
á ýmsum tímum, hafa skilað
FriSrik Bjarnason, tónskáld,
og stofnandi Karlakórsins Þrasta.
bæði góðu og gagnmerku verki,
sem aldrei verður ofmetið. —
Stjórn Karlakórsins Þrestir er nú
skipuð þessum mönnum: Stefán
Jónsson, formaður, Benedikt
Einarsson, Páhni Ágústsson,
Magnús Guðjónsson, Stefán
(Framhald á hls. 5)
Fremsta rtið, frá vinstri: Sigurður Stefánsson, Btiðvar B. SigurSsson,
Geir Þorsteinsson, Páll Þorleifsson, Pálmi Agústsson, SigurSur Þorláks-
son, Stefán Jónsson, form., Jón ísleifsson, söngstjóri, Benedikt Eirtars-
son, Magnús Guðjónsson, Stefán Sigurðsson, Þórður B. Þórðarson,
Vigfús Sigurðsson, Þorleifur Guðmuiulsson, AðalsteiUn Þórðarson. —
Miðrtið: Ingvi Guðmundsson, Guðni Kristjánsson, Bjarni Þórhallsson,
Ólafur Ei/jólfsson, Hinrik V. Jónsson, Jón Ingi Sigursteinsson, Bjtirn
Jónsson, Ólafur Norðfjtirð, Magnús Magnússon, Marinó Þorbjörnsson,
Kristinn Guðjónsson, Páll Ilelgason, Svavar Júliusson, Þórður Stef-
ánsson, Júlíus Sigurðsson, Magnús Sig. Kristinsson, Jóhann Kr. Bjtirns-
son. — Aftasta rtið: Pétur Þorbjörnsson, lltirður Vigfússon, Btiðvar J.
Guðmundsson, Gunnar Bjarnason, Skidi lngvarsson, Sigursteinn Jóns-
son, Ragnar Jónsson, Pétur Asgeirsson, Friðgeir Kristjánsson, Jónas
Guðvarðsson, Kristinn Jóhannsson, Hafsteinn Sigurþórsson, Einar
lngvarsson, Brynjólfur ÞorbjörnssOn, Ingvar ívarsson, Agúst Jónsson.