Alþýðublað Hafnarfjarðar - 17.12.1962, Síða 6
6
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
Útgefandi:
ALÞÝÐUFLOKKURINN í HAFNARFIRÐI
Ritetjóri og ábyrgOarmaður:
HÖRÐUR ZÓPHANÍASSON
AfgreiÓsla i Alþýðuhústnu, sími 50499
PRENT8MIÐJA HAFNARFJARÐAR H.F.
VöruhappdræUi S.Í.B.S.
Ítorkostleg: fjölgrtin vÍHninga á ariiiu 1903
Nýr meirihluti - Breytt steína
Ýmsir bæjarbúar hafa undanfarið verið að leita að
helztu framkvæmdum hins nýja bæjarstjórnarmeirihluta
og þeirri stefnubreytingu, sem hann hafi markað í sögu
bæjarmálanna. Hefur þetta helzt orðið fyrir þeim:
1. Hærri útsvarsálögur en nokkru sinni fyrr, samfara
þeirri stefnubreytingu að þyngja skattbyrði launþeg-
anna, en létta á fjáraflamönnunum.
2. Aðgerðarleysi núverandi meirihluta á öllum fram-
kvæmdum á vegum bæjarins. Aðgerðarleysið afsakað
með peningaleysi bæjarsjóðs.
3. Reynt að svíkja hafnfirzka íþróttamenn í íþróttahúss-
málinu, og vegið sérstaklega að hafnfirzkum hand-
knattleiksmönnum með því að ætla að minnka stærð
leikvangsins í salnum úr 20X40 m.
4. Gífurlegar hækkanir á kaupi yfirmanna bæjar og
bæjarstofnana. (Þá er ekki minnst á að litlir peningar
séu í bæjarsjóði og þær ábendingar Alþýðuflokks-
manna, að eðlilegt sé að hækka laun allra starfsmanna
bæjarins jafnt hlutfallslega, ef bærinn hafi ráð á að
auka launagreiðslur sínar, fá engan hljómgrunn hjá
meirihlutanum. Nei, hækkunin skal vera hjá gæðing-
unum einum og hún ekki lítil!)
5. Pólitískar atvinnuofsóknir sbr. t. d. fyrrv. skrifstofu-
stjóra bæjarins, verkstjórann hjá bæjarútgerðinni,
framfærslufulltrúann o. fl.
6. Starfsmaður bæjarins, sem hefur stóra fjölskyldu á
framfæri sínu auk þess að vera öryrki að verulegu
leyti vegna vanheilsu, rekinn úr starfi. Þetta verk
meirihlutans mætti svo mikilli andúð bæjarbúa, að
hann sá sér þann kost vænstan að taka manninn
aftur í vinnu, enda höfðu þá ýmsir bæjarbúar sent
bæjaryfirvöldunum áskoranir um það og Öryrkja-
samband íslands skorizt í málið.
Þetta er ekki fagur listi, en þetta er það, sem þeir
menn finna, sem leita að „afrekum“ núverandi bæjar-
stjórnarmeirihluta.
Viðskilnaðurinn nú og þá
Árið 1926 tóku Alþýðuflokksmenn forystu í bæjarmál-
um Hafnarfjarðar, en þá höfðu íhaldsmenn haft forystu
á þessum vettvangi í 18 ár. Síðan hafa Alþýðuflokks-
menn haft óslitið forystu í Hafnarfirði þangað til í
sumar sem leið, að íhaldið fékk á ný forystuhlutverkið
í sínar hendur. Það er ólíku saman að jafna þegar Al-
þýðuflokkurinn lét af völdum í sumar og þegar Sjálf-
stæðisflokkurinn skilaði bænum úr heljargreipum sín-
um.
Þegar Alþýðuflokkurinn lætur af stjórn er skuldlaus
eign bæjarsjóðs kr. 34,4 milljónir. En skuldlaus eign
bæjarsjóðs var 45 þúsundir króna, þegar íhaldið skildi
við hann.
Nú reka íhaldssprauturnar upp mikið ramakvein um
skuldir bæjarsjóðs, þegar Alþýðuflokkurinn fer frá völd-
um. Þó nema skuldir bæjarsjóðs í árslok 1961 ekki nema
tæpri útsvarsupphæð bæjarbúa í eitt ár. Hins vegar voru
skuldaklafar íhaldsráðsmennskunnar í árslok 1925 orðn-
FJÓEtÐI HVER iniDI VljNNUU AD JAFXADI
Fjárhæð vinninga vex svo milljónum króna skiptir.
[jp^sp Samanlögð fjárhæð vinninga er
kr. 23.400.000.oo
og hefur vaxið um nær 5 milljón kr.
frá fyrra ári.
Hæstu vinningar eru: 1/2 niilljón kr.
Lægstu vinningar: 1. þús. krónur.
Vinningar ársins eru 10250 að iölu
og hefur fjölgað um 4250.
1354
vinningar útdregnir að meðaltali á
mánuði hverjum.
Happdrætti S.Í.B.S. er við allra hæfi, þeirra sem spila vilja um stórvinninga og
hinna, er heldur kjósa að vinningar séu sem flestir.
Kynnið yður vinningaskrána hjá umboðsmönnum happdrættisins.
Verð miðans í 1. fl. og við endumýjun er 50 krónur. Tala útgefinna miða er óbreytt.
UMBOÐ í HAFNARFIRÐI:
Fclagrið Bcrklavörn, afg-r. Sjjúkrasamlag Ilafnarfjarðar.
Hafnarframkvæmdum má ekki
hraða, segir nýi meirihlutinn
(Framhald af bls. 12)
ætlað mun að verulegu leyti
til hafnarframkvæmda.
Tillögur þessar sýna, svo að
ekki verður um villzt, að þótt
Alþýðuflokkurinn sé kominn í
minnihluta í bæjarstjórninni,
markast aðgerðir hans af alvöru
og ábyrgðartilfinningu og temur
hann sér því vinnubrögð, sem
eru gerólík þeim., sem Sjálfstæð-
isflokkurinn hafði, þá er hann
var í minnihluta. Hefði því mátt
ætla, að hinn nýi meirihluti
fagnaði slíkum breytingum á
vinnubrögðum minnihlutans.
En það var nú öðru nær. Sjálf-
stæðismennirnir og Jón 5. gátu
ekki hugsað sér að samþykkja,
að byggingu vöruskemmanna
yrði hraðað eftir því, sem frek-
ast er hægt. Það var svo fjarri
þeirra hugsunarhætti, að þeir
vísuðn tillögunni frá. Og ekki
vildu þeir heldur samþykkja að
hraða sem mest mætti verða
byggingu smábátabryggjunnar.
Nei, hraði í framkvæmdum
ir slíkir, að þá þurfti útsvör 6 ára til þess að greiða
skuldirnar.
Þessi er munurinn á stjórn Alþýðuflokksins og íhalds-
ins.
Og það er kannski ekki nema von, að ótti og tauga-
titringur, ofsi og upphrópanir, fari um íhaldsherbúð-
irnar, þegar á borðinu liggja staðreyndir, eins og að
eignir bæjarsjóðs hafi meira en tvöfaldast á síðastliðnu
kjörtímabili bæjarstjórnarinnar. Það eru slíkar stað-
reyndir, sem stinga á íhaldsblöðrunni og taka úr henni
vindinn.
má ekki verða, jafnvel þótt það
sé hægt.
Tillögunni um dráttarbraut-
ina var vísað til hafnarnefndar.
En fjórðu tilögunni um það,
hvernig skuli leitað eftir fjár-
magni til hinna aðkallandi hafn-
arframkvæmda, var vísað frá.
Hinn nýi bæjarstjórnarmeiri-
hlnti virðist því, af þessu að
dæma, ætla að sýna sama sinnu-
leysið og ábyrgðarleysið í bæjar-
málum Hafnarfjarðar og minni-
hluti Sjálfstæðisflokksins sýndi
áður.
Stórbættar...
(Framhald af bls. 1)
áður var og veitir almenningi
miklu fullkomnari bætur en þa
gerðist.
Enn er unnið að breytingum
og Iagfæringum á þessari lög-
gjöf í milliþinganefnd, og er til-
lagna frá henni að vænta i
byrjun næsta árs.