Alþýðublað Hafnarfjarðar - 17.12.1962, Page 12
12
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
Oi'isóknarherferðiii heldur út'ram
\ú er það Þórður —
Hrer verður næistur?
Þau fáheyrðu tíðindi gerð-
ust á síðasta bæjarstjómar-
fundi, að íhaldið hér í bæ
lét Jón 5. samþykkja með sér
að leggja niður istarf fram-
færslufulltrúa bæjarins. Er
engu líkara en meirihlutinn
í bæjarstjóminni hafi viljað
undirstrika með þessum að-
gerðum sínum hug sinn til
þeirra, sem minnst mega sín.
Og tíminn er einnig smekk-
lega valinn, þ. e. a. s. sjálfur
jólamánuðurinn.
Starf framfærslufulltrúa
Hafnarfjarðarbæjar var þeg-
ar tekið upp fyrir valdatöku
Alþýðuflokksins í bæjar-
Stjórn. Ihaldsmennirnir fyrir
1926 sáu þá þegar þörfina
fyrir þennan starfsmann bæj-
arins, en síðan hefur bærinn
stækkað og margfaldazt, og
framfærslufulltrúinn þess
vegna greitt götu æ fleiri
bæjarbúa. En nú skal sú
þjónusta skert. Hafnfirzka
íhaldið í dag er enn hatramm-
ara og þröngsýnna en það
var 1926, og fannst mönnum
þá þó nóg um, sem vonlegt
var.
Það var vitað áður, að
íhaldinu hér er Iítið um Þórð
Þórðarson gefið. Hann hefur
orðið að þola það, sem marg-
ir mætir borgarar þessa bæj-
ar hafa orðið að þola, að vera
hundeltur og níddur af
íhaldinu. En þetta hefur
ekkert bitið á Þórð. Verk
haiis hafa talað gegn mold-
viðri íhaldsins. Þess vegna
hefur Sjálfstæðisflokkurinn
tryllzt í ofstæki sínu og vill
nú hefna sín á Þórði með því
að hrekja hann úr starfi.
Og það var nú kannski ekki
annað en það sem vænta
mátti af Sjálfstæðisflokknum
í Hafnarfirði. En menn vænta
þess, að hann gerði það þá
beint og krókalaust, í stað
þess, eins og nú er komið í
ljós, að níðast um leið á
þeim, sem höllustum fæti
standa í þjóðfélaginu, svipta
þá þeirri þjónustu sem þeir
hafa notið undanfarna ára-
tugi.
Sá verknaður er verri en
menn höfðu vænzt, jafnvel af
Sjálfstæðisflokknum hér í
Hafnarfirði.
Hinar ofsafengnu pólitísku
atvinnuofsóknir íhaldsmann-
anna hafa vakið reiði og
furðu bæjarbúa, eins og áð-
ur er sagt, og er nú algeng-
ast að maður spyrji mann:
HVER VERÐUR NÆST-
| UR?
MENN hafa verið að sptjrja: Hvers vegna fer
ekkert starf fram hjá Æskultjðsráði Hafnarfjarðar? Hvers vegna
eru engin námskeið eins og í ftjrra? Hvers vegna er ekki hús-
njmið í t. d. Öldutúnsskólanum, þar sem sjóvinnunámskeiðið og
mosaiknámskeiðið voru í ftjrra, notað til sams konar starfsemi
nú? Hvers vegna liggur allt æskulýðsstarf á vegum bæjarins
niðri? — Svarið er einfaldlega það, að bæjarstjórnin hefur ekki
einu sinni haft svo mikið við að skipa æskuhjðsráð bæjarihs.
Sýnir þetta dæmi m. a. Img hinna nýju bæjanjfirvalda til bæjar-
æskunnar. Það er því ekkert undarlegt, þótt menn með þvílíku
hugarfari sýni ftjrirhuguðu æskuhjðs- og tómstundaheimili ftjllsta
tómlæti, ef ekki beina andstöðu.
★
MIKLAR Itreinsanir og stórorrustur eru nú háðar
innan Sjálfstæðisflokksins hér í bæ, sem m. a. hafa komið fram
í því, að Matthías A. Mathiesen felldi Stefán fónsson, forseta
bæjarstjórnar, úr formannssessi í fulltrúaráði Sjálfstæðisflokks-
ins. Virðist Matthías vera að reyna með þéssu að treysta aðstöðu
sína til þess að hljóta sæti ofarlega á lista Sjálfstæðisflokksins
í kosningunum í vor.
★
ÞAÐ ER ekki laust við, að hinir heiðarlegri
íhaldsmenn liér í bænum beri nokkurn kinnroða, þegar atvinnu-
ofsókn íhaldsins á hendur Þórðar Þórðarsijni ber á góma, svo
og niðurfelling á starfi framfærslufulltrúa. Vefst þeim þá tunga
um tönn, en segja síðan: „Við gátum ekkert að þessu gert. Fram-
sókn vildi þetta endilega. Og eitthvað verða nú Framsóknar-
menn að hafa upp úr samstarfinu. Einhverju verður hún þó að
fá að ráða, eða a. m. k. að halda að hún ráði.“
Það var og, Framsóknarmenn.
\yi meirihlutinn vísar frá
að hraða hafnar-
framkvæmdum
Á síðasta bæjarstjórnarfundi báru bæjarfulltrúar Alþýðuflokks-
ins fram fjórar tillögur um hafnarmál Hafnfirðinga. Alþýðu-
flokkurinn hefur alltaf haft skýra og afdráttarlausa stéfnu í hafn-
armálunum, eins og glöggt kom fram í stefnuskrá flokksins fyrir
bæjarstjórnarkosningamar í vor.
Þar markaði Alþýðuflokkurinn stefnu sína, en á sama tíma
sat Sjálfstæðisflokkurinn ráðlaus og stcfnulaus og sveikst undan
þeirri sjálfsögðu skyldu sinni, að birta stcfnuskrá og segja þannig
kjósendum sínum, hvað hann hygðist gera eftir kosningarnar.
Enda hefur eftirleikurinn hjá íhaldinu orðið eftir því: ráðleysi
og framkvæmdaleysi.
Bæjarfulltrúar Alþýðuflokks-
ins báru fram eftirfarandi til-
lögur á fundi bæjarstjórnarinnar
hinn 4. desember s.l.:
1. Bæjarstjórn samþykkir að
fela hafnarnefnd að hraða
eftir því sem frekast er hægt
byggingu fyrirhugaðrar vöru-
skemmu og uppfyllingar í
norðurhöfninni.
Kjördæmisráðsfundur
Fundur var haldinn í Kjör-
dæmaráði Alþýðuflokksins í
Reykjaneskjördæmi sl. sunnu-
dag. Þar fluttu ráðherrarnir Em-
il Jónsson og Guðmundur I.
Guðmundsson fróðlegar ræður
um stjórnmálaviðhorfið. Stjórn
kjördæmaráðsins var endurkjör-
in, en hana skipa: Þórður Þórð-
arson, form., Axel Benedikts-
son, ritari, og Ásgeir Einarsson,
gjaldkeri. Mikill áhugi ríkti á
fundinum.
2. Bæjarstjórn samþykkir að
fela hafnarnefnd að hraða
sem mest má verða fyrir-
hugaðri smábátabryggju og
smábátahöfn í suðurhöfninni.
Á Hlífarfundinum hinn 10.
desember s.l. lýstu fundarmenn
andúð sinni á atvinnuofsóknum
Sjálfstæðisflokksins hér í bæn-
um. Töluðu þar m. a. nokkrir
flokksbundnir Framsóknannenn
og voru ómyrkir í máli um
þennan samstarfsflokk Fram-
sóknar í bæjarstjórninni. Meðal
þeirra var Markús B. Þorgeirs-
son og þótti fundarmönnum
ýmsar upplýsingar í ræðu hans
hinar fróðlegustu.
Hann sagði m. a.:
„. . . Það var klukkan 8 að
3. Bæjarstjórn samþykkfr að
fela hafnarnefnd að hefja nú
þegar nauðsynlegan undir-
búning og áætlun um bygg-
ingu dráttarbrautar á vegum
Hafnarfjarðarhafnar, sem geti
tekið upp allt að 500 rúm-
lesta skip. Ennfremur sé gert
ráð fyrir í þeim áætlunum
að byggja nauðsynlega hlið-
argarða og nauðsynlegar
byggingar.
4. Bæjarstjórn samþykkir að
fela hafnarnefnd og bæjar-
stjóra að afla nauðsynlegrar
aðstoðar ríkisstjórnar um
ríkisframlag o. fl. til framan-
greindra hafnarframkvæmda.
Ennfremur sé þeim falið að
leita eftir nauðsynlegum lán-
um og meðal annars að sækja
um lán af því fé, sem Alþingi
hefur nýlega samþykkt að
taka að láni í Englandi og
(Framhald á hls. 6)
morgni. Hlíf hafði boðað sam-
úðarverkfall með verkalýðsfé-
lögum Suðurnesja. Verið var að
lesta fisk á vegum Þorleifs Jóns-
sonar í erlend fiskmóttökuskip,
er hér var í höfn. Bílaröð Suð-
urnesjamanna náði orðið að
búð Jóns Mathiesen kaup-
manns. Allir voru bílar þessir
fullir af fiski. Þá víkur Þor-
Icifur sér að Hermanni Guð-
mundssyni, sem þá var formað-
ur Hlífar eins og í dag, og segir:
„Þú ert ákveðinn að láta bílana
(Framhald á bls. 7)
„Leiðir þeirra fara
ekki saman^
*XM*x*xxxxxxM*WXM***M****:*X*x**:*:*J*:#y*****J*:******x********»**M*:****M**:*X*>.
Þeir íá kauphækkun!
Það verður ekki annað sagt, en hinir
ungu forystumenn Sjálfstæðisflokksins í
Hafnarfirði kunni lagið á því að koina sér
vel fyrir á þeim stöðum, þar sem þeir geta
skákað í skjóli meirihlutaaðstöðu Sjálf-
stæðisflokksins.
Hafsteinn Baldvinsson bæjarstjóri fær
rúmar -16 þúsundir króna í föst mánaðar-
laun og samkvæmt upplýsingum Páls V.
Daníelssonar á svo bæjarstjórinn að fá að
auki ýmsar aðrar greiðslur, svo seni niður-
jöfnunarnefndarlaun o. fl. Og svo sam-
kvæmt sömu heimild, auðvitað kauphækkun
við fyrsta tækifæri. Það er ekki nema sjálf-
sagður hlutur, segir Páll.
Svipuð laun munu Ottari Hanssyni ætl-
uð, framkvæmdastjóra bæjarútgerðarinnar.
Þessum ungu mönnum, sem Sjálfstæðis-
flokkurinn Sótti til Reykjavíkur til þess að
hafa í forystu um bæjarmál Hafnarfjarðar,
er þannig óneitanlega vel borgað fyrir störf
sín í þágu Hafnfirðinga.
Og nú vill Matthías Á. Mathiesen, al-
þingismaður og sparisjóðsstjóri, ekki vera
minni maður. Hann vill ekki þola það, að
hann verði neinn eftirbátur Reykvíking-
anna í kaupkröfupólitíkinni. Ilann mun
hafa sótt það mjög fast að fá verulega kaup-
hækkun í Sparisjóðnum og fékk hana eftir
nokkurra vikna þjark og þref. Kaup hans
mun nú vera 15 þúsund krónur á mánuði
og að auki þúsund króna bílastyrkur á
mánuði. Það verður ekki annað sagt en
þessar greiðslur til alþingismannsins séu
mjög rausnarlegar, þegar þess er gætt, að
Matthías vinnur ekki í sparisjóðnum nema
hálft starf mikinn hluta ár.sins, vegna starfa
sinna á alþingi. Þegar þingfararkaupið og
aðrar aukagreiðslur bætast svo við þessi
laun Matthíasar, þá munu mánaðarlaun
hans nema á milli 20—30 þúsunda króna.
Nú er eftir að vita, hvort ráðamenn bæj-
arins og sparisjóðsins sýna öðrum starfs-
mönnum sínum sarns konar rausn og áður-
greindum forstöðumönnum og liækki laun
þeirra eftir sömu hlutföllum. Eða er bæjar-
búum kanski ætlað að horfa á með auð-
mýkt og virðingu með tvær hendur tómar,
glaðir í hjarta sínu yfir því að þegar bet-
ur sé að gáð, þá séu það reyndar þeir,
sem greiða kauphækkanir þessara stór-
menna?
t3*3*3*3*3*3*3*3*3*3«3*3*3*3*3*3*3*3*3*3*3*3*3*3*3*3*#3**3*3«3*3«3***J3*3*3*3«3*3**3*j*3*:*j*3«*3*3*;***j*3«3*3*j*j«3*3*:**j*3«3«3*3*3*3*