Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.08.1983, Qupperneq 1
íhaldið, Óháðir og framsókn samþykktu auknar álögur á fólk með
hækkun á gjaldskrá Rafveitunnar:
Alþýðuflokkurinn neitar
hækkunum á meðan þræla-
lögin eru í gildi
— Harðar deilur á aukabæjarstjórnarfundi
Bæjarfullrúar Alþýðu-
flokksins, Hörður Zóphanías-
son og Guðmundur Árni Stef-
ánsson, lýstu því yfir á auka-
bæjarstjórnarfundi, sem hald-
inn var í lok júlí, að þeir
myndu greiða atkvæði gegn
öllum tillögum um hækkanir
til opinberra aðila og stofnana
á sama tíma og þrælalög ríkis-
stjórnarinnar giltu í landinu.
Áðurnefndur fundur bæjar-
stjórnar var haldinn vegna
hækkunarbeiðni frá Rafveitu
Hafnarfjarðar og hækkun á
gjaldskrá Sundhallar Hafnar-
fjarðar. í samræmi við yfirlýs-
ingu bæjarfulltrúa Alþýðu-
Árið 1943, þann 29. ágúst, var
vígð útisundlaug í Hafnarfirði. Var
hún starfrækt mánuðina apríl til
október ár hvert til ársins 1951. Þá
var byggt yfir sundlaugina og hefur
hún verið opin allt árið síðan 1952.
Á þessum 40 árum er fjöldi bað-
gesta samtals 3.491.500. Miklar
endurbætur hafa verið gerðar á
sundhöllinni á undanförnum árum,
flokksins greiddu þeir atkvæði
gegn tillögum til hækkunar á
gjaldskrá Rafveitunnar og
Sundhallarinnar. Tillögurnar
voru samþykktar með átta at-
kvæðum bæjarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins, Óháðra
borgara og bæjarfulltrúa
Framsóknarflokksins, sem
hefur þótt réttast að lúta vilja
flokksforystunnar í ríkis-
stjórn. Auk bæjarfulltrúa Al-
þýðuflokksins, greiddi bæjar-
fulltrúi Alþýðubandalagsins
atkvæði gegn tillögum um
gjaldskrárhækkanirnar.
„Það er alveg á hreinu, að við
bæjarfulltrúar Alþýðuflokksins í
bæði í tækjabúnaði og bættri að-
stöðu fyrir starfsfólk og baðgesti.
Nú er unnið að stækkun
búningsherbergja við sundhöllina
og ætla má að því verki ljúki á
næsta ári.
Hönnun á nýrri útisundlaug í
suðurbæ Hafnarfjarðar er nú að
mestu lokið og er áætlað að fram-
kvæmdir hefjist fljótlega.
Hafnarfirði styðjum engar hækk-
anir til opinberra aðila á þjón-
ustugjöldum meðan þrælalög rík-
isstjórnarinnar eru í gildi. Það er
mikil kröfugerð í gangi fyrir opin-
ber fyrirtæki, en ekki er spurt á
sama tíma um þarfir verkamanna
og fjölskyldna þeirra, sem flestar
berjast í bökkum þessa dagana og
sjá ekki fram úr ástandinu. Með-
an löggjöf ríkisstjórnarinnar
stendur munum því engar hækk-
anir styðja. Hins vegar má skoða
málin á ný, þegar fullt frelsi til að
semja um afkomu verkamanna
verður komið á að nýju“ Þetta
sagði Hörður Zophaníasson, ann-
ar bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins.
Hækkunarbeiðni Rafveitunnar
var upp á 8%, en hún kemur til
viðbótar stórhækkun á útsölu-
verði raforku frá Landsvirkjun.
Mun þá raforka í Hafnarfirði
hækka um fjórðung í einu.
„Verkafólk hefur ekki lengur
rétt til að semja um afkomu sína.
Sá réttur hefur með þrælalögum
verið af því tekinn. Við getum
ekki staðið að baki stórhækkun-
um á fólk um Ieið og réttur þess til
að semja um afkomu sína hefur
verið frá því tekinný sagði Hörður
Zophaníasson. í bókun sem
Hörður og Guðmundur Árni
Stefánsson bæjarfulltrúar Al-
þýðuflokksins lögðu fram segir
m.a. að frjálsum samningsrétti
verkafólks hafi nú verið rift í
veigamiklum atriðum og launþeg-
ar sviptir almennum lýðréttindum
og samningsrétti.
Þetta sé gert undir því yfirskini
að eigi að stöðva verðbólguna í
landinu. Þar sitji ekki allir við
sama borð, ekki sé spurt um efna-
hag og afkomumöguleika fjöl-
skyldna og einstaklinga.
„Það hlýtur að vera lágmarks
siðgæðiskrafa til allra opinberra
aðila, sem verðleggja opinber
þjónustugjöld, að þeir gæti þess
vandlega á þessu kaupbindingar-
tímabili að afkomu heimilanna sé
ekki stefnt í enn meira óefni en
komið er með auknum álögumóg
hækkandi verðlagi Sé raunhæfur
vilji fyrir hendi í því að stemma
stigu við óðaverðbólgu í landinu,
verður fleira að koma til en kaup-
binding ein... Við þær aðstæður
sem ríkja í þjóðfélaginu er um-
rædd hækkun á raforku til Raf-
veitu Hafnarfjarðar siðlaus og ó-
svífin atlaga að hafnfirskum
heimilum, en vitað er að mörg
þeirra berjast nú í bökkum við
það að láta tekjur sínar duga fyrir
nauðþurftum — meðan kaup-
gjald er bundið í landinu með lög-
um og almenn lýðréttindi verka-
lýðshreyfingarinnar fótum troð-
iný segir í bókun alþýðuflokks-
manna.
Á bæjarstjórnarfundinum
urðu harðar deilur um þessi mál
og almennt um stöðu launafólks í
landinu sérstaklega í kjölfar
bráðabirgðalaga ríkisstjórnarinn-
ar. Guðmundur Árni Stefánsson
bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins
sagði það skyldu bæjarstjórnar-
innar, að standa vörð um hags-
muni og afkomumöguleika bæj-
arbúa. Það væri gjörsamlega ó-
þolandi að bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins og Framsóknar-
flokksins, hneigðu sig og beygðu
aðeins vegna þess að broddar
þessara flokka í ríkisstjórn kipptu
íspottana. „Þaðer ósvífni ef bæj-
arstjórn Hafnarfjarðar ætlar að
ganga á eftir og hnykkja enn frek-
ar á óhæfuverkum ríkisstjórnar-
innar með því að samþykkja
auknar álögur á bæjarbúaý sagði
Guðmundur Árni.
Bæjarfulltrúar stjórnarflokk-
anna bergmáluðu algjörlega sjón-
armið flokksforingjanna, Geirs
Hallgrímssonar og Steingríms
Hermannssonar. Andrea Þórðar-
dóttir annar bæjarfulltrúi Ó-
háðra borgara tók undir flest það,
sem fulltrúar íhaldsins mæltu á
fundinum, eins og oft áður.
Snorri Jónsson, sem einnig sat
þennan fund fyrir Óháða í fjar-
Framh. á 3. síðu
Mikið fjölmenni var á hátíðarfundi bæjarstjórnar í íþróttahúsinu sem
haldinn var á 75. afmælisdegi bæjarins 1. júní s.l. og meðal gesta var forseti
íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir. Á fundinum tilkynnti forsetinn að
hann gæfi til gróðurreits í Hamrinum þrjár birkihrísiur, sem helgaðar verði
þeim, sem taka munu í arf uppbyggingu umhverfisins: ein drengjum og
önnur stúlkum, sem nú eru að vaxa upp í Hafnarfirði, og hin þriðja þeim
óbornu, sem þau í framtíðinni eignast saman og annast.
Hinn 17. júní s.l. kom forsetinn í heimsókn til Hafnarfjarðar og afhenti
gjöf sína til bæjarbúa við athöfn á Hamarssvæðinu. Tréni, sem valinn
var staður í námunda við Flensborgarskóla, gróðursetti forsetinn með að-
stoð nokkurra hafnfirskra barna. Bæjarstjóri, Einar I. Halldórsson, þakk-
aði forseta fyrir þessa táknrænu gjöf og þann heiður sem Hafnfirðingum
væri sýndur með þátttöku forseta í hátiðarhöldum á þjóðhátíðardaginn.
Athöfninni við Hamarinn lauk með helgistund, sem sr. Bernharður Guð-
mundsson annaðist með aðstoð kórs Víðistaðasóknar.
Sundhöllin 40 ára
Frá opnun sundiaugarinnar 29. ágúst 1943.
Matvara
Fatnaður
ALI2AFIIMÐINNI
VERSWNARMIÐSIÖÐ HAFNARHRÐI